Þegar ég var í gaggó var busað eitthvað smá og það var eiginlega bannað en ekki svo auðvelt að fylgjast með því. Fyrsta daginn var flestum dýft í drullupoll og næstu vikuna á eftir voru ýmsir hrekktir, ég fékk þvegið á mér hárið í vaski inni á klósetti, einn var hengdur upp á snaga á beltinu, einn fékk flösku af rakspíra yfir sig, sprautað var dekkjafroðu á einn og svo var farið í skógeymslu 8. bekkjar og bundnar saman allar reimarnar okkar í rembihnúta. Einn strákurinn var að flýta sér heim...