Það er bannað að reykja í þjónusturými fyrirtækja, þ.e.a.s. þar sem almenningur kemur. Auk þess á starfsfólk rétt á því að það sé ekki reykt í kringum það. Tóbaksvarnalög 2002 nr. 6 segja í 12 gr.: “Með þeirri undantekningu sem leiða kann af 2. og 3. mgr. 9. gr., sbr. þó 5. mgr. sömu greinar, skal hver maður eiga rétt á reyklausu andrúmslofti innan dyra á vinnustað sínum og vinnuveitandi sjá til þess að hann njóti þess réttar.” Þetta hefur verið túlkað þannig að eingöngu megi reykja inni á...