Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Minningar garður WTF...

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það er helling af skýjakljúfum þarna sem eru með margt starfsfólk þó þeir séu kannski ekki eins frægir og WTC. Það væri líka alltaf hætta á að kerfin klikkuðu og myndu skjóta á lögregluþyrlur eða þyrlur fréttamanna. Eða jafnvel að hryðjuverkamenn myndu komast inní kerfin og nota þau til að skjóta af einni byggingu á aðra.

Re: Minningar garður WTF...

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Byssur á toppnum? Ertu ekki að grínast? Vélarnar hefðu bara lent á einhverjum öðrum skýjakljúfum og drepið eitthvað annað fólk þá.

Re: Farsímarafhlöður endast skemmur en ..(frétt úr DV)

í Farsímar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hvernig síma ertu með? Mér hefur fundist það vanta á þá 2 síma sem ég hef átt að geta séð það nákvæmlega hvað er mikið eftir af batteríinu. Bara 3 strik eða svoleiðis. Sá sem ég á núna er með skjá sem maður getur farið í og séð nákvæmar en bara uppá 6 strik.

Re: Eru kettir með barnatennur?

í Kettir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Já, kettir eru með barnatennur eða kettlingatennur og byrja að fá fullorðinstennur um 3-4 mánaða gamlir. Sama með hvolpa.

Re: Hundaár?????

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ef henni líður ekki illa þá er engin ástæða til að láta svæfa hana.

Re: ÆTTBÆKUR SEM ERU KOLRANGAR.

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ásta á að vita hvaða hunda hún hefur selt hverjum. Á fólk bara að geta sagt henni að hundurinn þeirra sé t.d. undan flottustu verðlaunahundunum hennar og hún gefur þá bara út ættbók á það eins og ekkert sé?

Re: Hár á baki! HJÁLP!

í Heilsa fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það er flott að hafa hár á bakinu. Mundu bara að greiða þau ;) Annars er hægt að taka þau með háreyðingarkremi eða vaxi og í báðum tilfellum koma þau aftur og aftur en ef þú vilt losna við þau fyrir fullt og allt er hægt að fara í rafmeðferð eða laser og þá koma þau í sumum tilfellum samt aftur, bara ekki í sama magni.

Re: Minningar garður WTF...

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mér finnst bara fínt að hafa garð þarna. Annars ráða þeir náttúrulega hvað þeir setja. Hvernig öryggiskerfi átti að setja í byggingarnar? Áttu þær að geta beygt sig ef það kæmi flugvél? :)

Re: Nauðsyn þess að vera með tryggingarnar í lagi!

í Heilsa fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Er það orðið leyft á Huga að skrifa greinar til að auglýsa vöru sem maður er að selja? Ekki að ég hafi neitt að selja en þetta gæti breytt Huga ansi mikið. Hvað næst? Skyldi koma grein um gæði WV bíla frá sölumanni hjá Heklu? Ráðleggingar um íbúðakaup frá fasteignasala? Kynning bankanna á reikningum sem þeir bjóða uppá? Og er þetta góð þróun?

Re: Frásögn ungrar stúlku!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég hef heyrt sögur af því að börn hafi verið tekin af fólki út af engu eða litlu til að “redda” ákveðnum fósturforeldrum barni og svoleiðis getur náttúrulega gerst ef spilling er í gangi í barnaverndarnefndum en hins vegar eru líka sumar þessar nefndir að frétta af málum og gera ekkert í þeim. Réttur foreldra getur verið sterkur og eins og þau fái oft endalaus tækifæri þó þau séu greinilega ekki að standa sig og þá virðist frekar verið að hugsa um rétt þeirra heldur en velferð barnanna. Svo...

Re: Eru til Galdrabækur.

í Hugi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það voru alla vega til einhverjar skræður hér í gamla daga og einhvern tímann heyrði ég þá sögu að það væri enn til ein svo mögnuð að það kæmi ólán yfir hvert það hús sem hún væri geymd í. Sagt var að síðast hefði hún verið komin í eitthvað bankahólf.

Re: FIMM pulsur í pakka!!!!

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég er líka úr Kópavogi, algjör skítabær og hvergi fleiri villingar nema kannski dekraða liðið í Garðabæ :)

Re: FIMM pulsur í pakka!!!!

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
já eða þegar maður er einn í heimili, passar að éta 2 pylsur í máltíð en maður verður að éta 2, svo 2 og þá er bara ein eftir.

Re: Starfsmenn Impregilo leggja hendur á Íslendinga...

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Já, við erum komnir eitthvað út fyrir efnið en alla vega finnst mér að það eigi að pína þá til að virða íslensk lög um laun og aðbúnað :)

Re: Stelpur hafið þið lent í þessu ???

í Rómantík fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Flestir eru alveg inni á þessu persónulega rými og koma ekki of nálægt en svo vantar þetta alveg í suma. Ég var einu sinni að vinna með stelpu sem gerði þetta, maður var kannski að tala við hana og gera eitthvað og svo leit maður upp og þá var hún alveg ofan í manni. Annars ef þú heldur að vinkona þín sé lessa, þá geturðu bara spurt hana. Ef hún er á leiðinni út úr skápnum þá gæti það hjálpað til og ef hún er ekki lessa, þá bara segir hún það. Ég á eina frænku sem var ekki við karlmann kennd...

Re: Starfsmenn Impregilo leggja hendur á Íslendinga...

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það að fara illa að fólki virkar hugsanlega betur á einhverja en á langflest af því fólki sem ég hef unnið með virkar það þveröfugt. Ég var með yfirmann sem átti mjög erfitt með mannleg samskipti og gargaði á alla. Ef einhver gerði eitthvað vitlaust þá var gargað. Það voru allir á vinnustaðnum sammála um það að þetta var ekki að virka vegna þess að ef fólk á von á slíku, þá annað hvort stressast það upp og gerir fleiri mistök eða því verður skítsama og vinnur kærulaust. Annars skil ég ekki í...

Re: Kárahnjúkar/Laun/Aðstaða

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það eru skítalaun að vinna í venjulegum verksmiðjum en það hefur hingað til verið ágætlega borgað að vinna í álverum á Íslandi.

Re: Ljóskubrandarar bannaðir með lögum

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þú hefur 3 kosti í stöðunni, læra að taka gríni, lita á þér hárið eða flytja til Bosníu. Þessi launakönnun þar sem ljóskur fengu lægri laun er kannski meira til gamans og líklega ekki sérlega vísindaleg eða marktæk. Ef þér finnst ekki að fólk taki þig alvarlega og heldur að það sé vegna háralits þíns, prufaðu þá að lita á þér hárið og sjá hvort það breytir einhverju. Ef fólk er virkilega með fordóma gagnvart ljóskum, þá er ekkert hægt að banna það. Það er ekki hægt að banna skoðanir....

Re: Kettir sem ganga lausir úti...

í Kettir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Allir eru að segja þér að þú hefðir átt að fara með hann í Kattholt en þú ferð ekki neitt í Kattholt að kvöldi til. Það er ekkert opið þannig að þú hefðir þurft að geyma köttinn þar til daginn eftir eða jafnvel lengur þar til þeir gætu tekið við honum. Ég lenti í þessu fyrir fáeinum árum, fann kettling sem var að þvælast fyrir utan húsið, ómerktur og virtist ekki rata heim. Ég tók hann inn og hringdi í Kattholt daginn eftir og þau gátu ekki tekið við honum fyrr en daginn eftir þannig að ég...

Re: HJÁLP, MAGASPIK!??

í Heilsa fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, það er eitthvað í fæðunni. Nefnilega það að þú borðar of mikið miðað við hvað þú hreyfir þig ;) Það eru bara 2 leiðir til að missa þessa fitu, borða minna eða hreyfa þig meira. Þá er ég að tala um brennslu, ekki að labba útí búð. Bestum árangri nærðu með því að gera bæði. Hættu alveg að éta sykur og fitu og ekkert svindl. Farðu svo út að skokka, ef þú hefur ekki pössun getur þú fundið líkamsræktarstöð sem er með barnapössun og farið í eróbikk eða notað hlaupabrettin og stigvélarnar....

Re: Air Canada

í Ferðalög fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Winnipeg er náttúrulega engin stórborg eða þannig en ég fann á expedia.ca far til London frá CDN$960 báðar leiðir með United, millilent í Chicago. Bara um að gera að prófa mismunandi daga ef maður finnur ekki eitthvað við hæfi. Það getur munað slatta á verði stundum að prófa að slá inn 1-2 dögum áður eða eftir en maður var að spá í. Annars ættirðu líka að leita uppi einhver Íslendingafélög þarna úti vegna þess að þeir hafa stundum verið með bein flug á ákveðnum árstímum svo...

Re: Ökukennsla og ökunemar

í Bílar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég lærði að vetri til þannig að það var engin möl, bara snjór og hálka þannig að ég lærði á það alla vega. Kannski þyrfti bara að vera meiri strúktúr á ökukennslunni, t.d. einhver listi yfir atriði sem ætti að fara í. Jafnvel hægt að láta nemanda og kennara kvitta fyrir hvert atriði sem er farið í og hvenær það var gert.

Re: Re: Skoða hvort ástæða sé til þess að beita Íslendinga

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það væri hægt ef allir tækju sig saman um það. Hins vegar virðast flestar þjóðir styðja þessar frumbyggjaveiðar. Annars finnst mér að ef þeir eru svona svekktir yfir þessum rannsóknarveiðum, þá ættu þeir bara að taka út ákvæðið sem leyfir þær.

Re: Skoða hvort ástæða sé til þess að beita Íslendinga

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nákvæmlega. Þeir eru að veiða hvalategundir sem eru í útrýmingarhættu.

Re: Starfsmenn Impregilo leggja hendur á Íslendinga...

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mín skoðun er sú að ef þú hefur ekki betri stjórn á skapi þínu en svo að þér hættir til að berja vinnufélaga þína, jafnvel þó þeir séu heimskir, þá hefurðu bara ekkert að gera í hættulega vinnu. Hvað gerist ef þú missir stjórn á skapi þínu við að gera eitthvað hugsanlega hættulegt? Þá geturðu stofnað eigin lífi eða annarra í hættu vegna þess að þú hefur ekki stjórn á sjálfum þér.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok