Ég var með hón sem voru mjög hamingjusöm, áttu vini og allt var bara fullkomið hjá þeim en þau áttu ekki börn venga þess að þau voru ekki komin á það stig ennþá.

Alla vegana hún fór svo að elda mat handa þeim, hún kunni að elda, en alla vegana það kveiknaði í. Slökkvuliðið kom ekki strax eins og venjulega. En ég lét hana bara fara að gera annan mat. En þessi eldur var næstum óstöðvandi og slökkvuliðsmaðurinn var mjög lengi að stoppa hann þar sem hann kom alltaf upp aftur. En svo loksins náði að slökkva hann og þá var nánast öll eldhúsinnréttingin farinn! En það var allt á rúfi og stúfi í eldhúsinu og hónin mistu allt í room svo ég lét þau þrífa þetta upp. Það tók rosalega langann tíma að sópa upp öskuna. En svo voru þau loksins búin og ég var búin að kaupa nýja eldhúsinnréttingu fyrir þau. En þá dettur konan niður og er dáin! Hún dó sem sagt úr reykeitrun, og var sett í öskju sem var inni í eldhúsi. Maðurinn grét í þrjá daga samfleitt og vinir þeirra komu í heimsókn til þess að gráta með honum. En svo giftist hann aftur en hélt samt alltaf áfram að gráta konuna sína. Hann var meira að segja búinn að eignast son með nýju konunni en grét alltaf svona inn á milli gömlu konuna sína. Að vísu grét nýja konan og sonurinn líka þessa konu svo þetta var svona eins og jarðaför alla daga. Á endanum var ég orðin svo þreitt á þessu væli að ég eyddi fjölskyldunni og bjó til nýja.