Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Jóladót í búðum!

í Hátíðir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það er aðeins komið jóladót í búðir hér í Kanada en aðallega er halloween dót. Þegar halloween er búin eða í byrjun nóvember tekur jóladótið við.

Re: Ráð gegn kvefi?

í Tilveran fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það eru til alls konar lyf og gömul húsráð til að gera þér kvefið bærilegra en það eina sem virkar er tíminn. Það verður bara að hafa sinn gang. Annars sé ég ekki af hverju það er eitthvað að stoppa þig að fara út.

Re:

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Fólk er bara hætt að fá kikk út úr því sem er leikið. Þess vegna höfum við raunveruleikasjónvarp. Reyndar velja þættir eins og Survivor og Big Brother ákveðnar týpur til að taka þátt og sérstaklega fólk sem er líklegt til að koma illa saman svo það verði smá rifrildi og hasar. Síðan er líka klippt þannig að þegar þeir hafa ákveðið að einhver manneskja sé í ákveðnu hlutverki, t.d. tíkin, fýlupokinn o.s.frv. þá klippa þeir til að staðfesta það hlutverk en sýna ekkert sem gæti sýnt betri hliðar...

ekki meðlag heldur eyðing

í Hundar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þetta var ekki meðlag sem var rukkað heldur fóstureyðing. Annars finnst mér sjálfsagt að fólk sem á karlhunda passi þá líka. Það fylgir þarna sögunni að þessi hundur hafi verið hirtur af löggunni 6 sinnum á jafnmörgum mánuðum og nú er þetta blendingur og ekkert hægt að rækta undan þannig að það er bara spurning af hverju eigandinn er ekki búinn að gelda hann fyrir löngu. Svo var hann víst líka búinn að bíta strák í fyrra og mann fyrir 2 árum þannig að kannski hefur dómarinn bara litið til...

Re: Fordómar á Huga eða bara yfir höfuð

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Held að það séum frekar við sem erum að vaða yfir útlendingana. Þeir geta verið með góða menntun en við viljum samt ekki sjá þá vinna neitt nema láglaunastörf. Hópurinn er til kominn vegna þess að okkur vantar þetta fólk í störf sem eru of léleg fyrir okkur og okkar börn. Konan sem talaði ekki íslensku í sjónvarpsviðtali getur vel kunnað eitthvað í henni en kannski ekki treyst sér til að tala hana í viðtalinu, væntanlega verið í uppnámi eftir að einhver íslenskur óþjóðalýður braust inn hjá...

Re: hjálp1992

í Ferðalög fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Spurðu Flugleiði.

Re: Af hverju fara allir á sama stað?

í Ferðalög fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég skil reyndar ekki heldur hvernig fólk nennir að fara alltaf á sama staðinn en ætli það sé ekki eins og að eiga sumarbústað frekar en að fara með sitt fellihýsi eða tjald út um allt land.

Re: herinn

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það er herskylda í Noregi þannig að þú hefur ábyggilega góðan félagsskap þar af strákum á þínum aldri. Heimasíða Norska hersins er á <a href="http://www.mil.no/">http://www.mil.no/</a> Ekki svo fara í Frönsku útlendingahersveitina. Ég hef heyrt afskaplega ljótar sögur af henni.

Re: Golden Retriever

í Hundar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég vann hundastríðið við foreldra mína þegar ég var 12 ára og bara með suði. Mér tókst sko að vinna á þeim hvoru fyrir sig. Mamma var erlendis og þá gat ég suðað í pabba þannig að hann gaf sig.. ef mamma segði já sem hann var viss um að myndi ekki gerast. Þá vann ég á henni þegar hún kom heim og hún gaf sig líka á endanum. Hins vegar myndi ég sjálfur aldrei gefa barni hund og ekki ráðleggja neinum að gera það nema þau séu tilbúin að sjá um hann sjálf. Það getur vel verið að þú ætlir þér að...

Re: Strætóferð...

í Tilveran fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Virkar eitthvað að spyrja svona fólk hreinlega hvort það sé vangefið? Gæti reyndar verið pínlegt ef það kemur svo í ljós að manneskjan er vangefin :)

Re: Sjón katta

í Kettir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Kötturinn minn horfir á sjónvarpið, sérstaklega kattamatsauglýsingar vegna þess að þá sér hún ketti. Hún hefur meira að segja einu sinni reynt að ráðast á kött í sjónvarpinu. Hún hefur líka reynt að veiða <a href="http://home.wanadoo.nl/annekebroenink/maukie2.swf">þennan</a> á tölvuskjánum.

Re: Jaja gott fólk!

í Fjármál og viðskipti fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Jú, þetta áhugamál gæti alveg verið virkara en ég held nú að þetta sé styttsta grein sem ég hef séð samþykkta á Huga :) Skrifaðu nú einhverjar langar greinar fyrir okkur, t.d. hvað þér finnst um fjármál unga fólksins og tilboð bankanna um að setja þig í milljóna skuldir, helst áður en þú verður sjálfráða :)

Re: Er leikskóli mikilvægur?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það sem ég er að reyna að segja er það að margar kynslóðir á undan þinni komust ágætlega af án þess að hafa verið á leikskóla en vegna þess að þú varst á leikskóla og hefðir ekki viljað missa af því, þá finnst þér að það hljóti að vera mikilvægt. Kannski álíka og þeir sem voru í íþróttum, skátunum, sveit, sumarbúðum eða whatever sem krakkar og geta ekki ímyndað sér að hafa misst af því finnst að það hljóti að vera mikilvægt fyrir börn meðan hinir sem gerðu ekkert af þessu sakna þess ekki neitt.

Re: Með Lögum Skal Land Byggja.

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Sáu vitnin sem sagt ekki að þeir réðust aftan að þér og hvað hver stakk margar stungur? Mér finnst þessi náungi sleppa létt með að honum er bara kennt um eina stungu miðað við að hann heldur hlífiskildi yfir hinum sem var með honum. Mér finnst að þeir hefðu átt að bjóða honum að annað hvort segði hann frá hinum eða honum yrði kennt um allar fimm.

Re: Með Lögum Skal Land Byggja.

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hefurðu annars prófað að tala við þína stjórnmálamenn? Þú getur fengið email addressur allra þingmanna á althingi.is og skrifað þeim öllum bréf. Kannski tekur einhver þetta mál upp. Alla vega aldrei að vita. Samt byrja kannski á dómsmálaráðherra.

Re: Með Lögum Skal Land Byggja.

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég held nú ekki að það sé öllum sama en ég fatta ekki hvað er málið þó hann neiti. Ef ég ræni banka og allir sjá mig, slepp ég þá bara ef ég neita því statt og stöðugt að það hafi verið ég? Ég held nú ekki. Af hverju ætti þá þessi maður að sleppa? Ok, ef það hefðu ekki verið nein vitni, þá hefðu það verið þín orð gegn hans en nú voru vitni. Ég er bara ekki að fatta þetta. Mér finnst alla vega að það megi kæra hann og sjá hvort það stendur. Ef það eru ekki nógar sannanir, þá verður hann...

Re: pabbi minn, ef pabba skal kalla!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
“er enginn faðir betra en slæmur faðir?” Strákurinn hefur náttúrulega rétt á að þekkja pabba sinn sem hann fær ekki ef þú lokar á sambandið. Það getur líka komið í bakið á þér, bæði ef strákurinn er það ungur að hann gleymir hvernig pabbi hans var að haga sér og fer að gera sér einhverja rosa drauma um hvað hann sé æðislegur og líka ef hann kemst að því seinna að þú hafir bannað pabba hans að hitta hann. Það er líklega best fyrir þig að láta þetta ganga svona áfram. Strákurinn mun sjálfur...

Re: klikkaður pabbi

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þú getur ekki látið eyða fóstrinu án þess að segja pabba þínum. Þú ættir að fara uppá spítala og fá að tala við félagasráðgjafa sem fyrst eða þá tala við heimilislækninn þinn. Ef þú ætlar að láta eyða máttu ekki bíða þar til það er orðið of seint.

Re: Á barnið þitt gemsa?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Sumir 8 ára krakkar eru mikið á flakkinu, fara langt að heiman í könnunarferðir, týnast kannski og rata ekki heim eða hreinlega gleyma sér. Það eru ekki allir krakkar sérlega duglegir að muna að hringja í mömmu sína til að tilkynna hvar þeir eru og í þannig tilfellum er fínt fyrir foreldrana að hann sé með síma. Þetta þarf ekkert að kosta það mikið. Það er hægt að hafa símann opinn til að hringja í hann með því að kaupa inná hann 500 kall tvisvar á ári. Líklega alveg rétt að þetta sé óþarfi...

Re: Er leikskóli mikilvægur?

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég fór ekki á leikskóla en ég held að það sé mjög sjaldgæft að barn alist upp aleitt með mömmu sinni. Ef hún er heimavinnandi, þá kíkir hún með það á mömmumorgna þar sem það getur leikið við aðra krakka eða fer með það á róló af og til. Svo eru nú oftast systkini. Ég var sjálfur á róló og var það oftast ill vist. Rólóhliðið var læst með hengilás og var heitasta ósk flestra krakkanna að strjúka. Mér tókst það einu sinni með því að klifra yfir girðinguna og henti skóflu í hausinn á einni...

Re: S.O.S

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þessi prósentutala er reiknuð þannig út að ef grilljón pör nota smokkinn í heilt ár, þá eru 97% enn barnlaus á eftir. Svo fer það náttúrulega bara líka eftir hvað fólk er heppið :)

Re: Forsetamerkið

í Skátar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Afsakaðu fávisku mína en hvað er þetta forsetamerki og fyrir hvað fékkstu það? Hvað gerir fólk svo þegar það er búið að útskrifast úr Skátunum? :)

Re: Þórhallur miðill og Gunnar í Krossinum

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þetta er ferlega góð ríma hjá þér en svona í alvöru, þá er ansi margt sem stendur í Biblíunni. Kíktu bara í hana þar sem stendur að bannað sé að hafa samband við anda og næstu nokkur bönn á undan og eftir. T.d. ansi hreint margir sem við eigum að lífláta.

Re: Deiglan - Íslenska ríkið - Ísland - herinn

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það voru tveir hnífar, tveir menn sem stungu en annar ákvað að taka sökina fyrir þá báða. Af hverju löggan lætur það bara gott heita skil ég hins vegar ekki.

Re: S.O.S

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
1414 er reyndar númerið hjá OgVodafone. Hins vegar má prófa RauðaKross húsið: Rauðakrosshúsið. Fyrir börn og unglinga. Sími 5115151/grænt nr. 8005151. Ef það er hringt í græna númerið þá kemur það ekki fram á símareikningi foreldranna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok