Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: S.O.S

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Reyndar á hún að taka þessa ákvörðun sjálf og ekki foreldrar hennar fyrir hana. Foreldrar hennar mega ekki neyða hana til að gera neitt sem hún vill ekki. Foreldrarnir þurfa samt að vita af þessu og skrifa uppá.

Re: skiptinemi

í Ferðalög fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Skítt með það þó þú missir úr skóla. Það skiptir nákvæmlega engu máli eftir 10 ár hvort þú kláraðir skólann ári fyrr eða seinna en ef þú ferð út áttu alltaf eftir að eiga góðar minningar og hafa prófað eitthvað sem ekki allir hafa gert. Hvert ertu að spá í að fara?

Re: Skiptinemaáhugamál

í Hugi fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég bara held ekki að það væri mjög virkt. Ég sé ekki fólk vera hérna alveg brjálað að skrifa fullt af skiptinemagreinum á skóli eða ferðalög. Þannig fengu skátarnir sitt áhugamál, að þeir voru inni á ferðalög en skrifuðu bara svo margar greinar að þeir fengu sitt eigið áhugamál.

Re: S.O.S

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hún ætti að fara í apótek og kaupa þungunarpróf til að vera viss. Ef hún þorir ekki að fara sjálf, þá getur hún kannski beðið einhverja vinkonu að fara fyrir sig. Ef hún er virkilega ólétt, þá ætti hún að fara strax til heimilislæknisins, ekki panta tíma, bara mæta og segja að hún verði að fá að tala við hann eða fara á sjúkrahúsið og biðja um að fá að tala við félagsráðgjafa. Hún þarf ekki að segja hvers vegna, bara heimta að fá tíma strax og hlusta ekki á neitt röfl í kellingum í...

Re: Talsetja malcom in the middle?

í Sjónvarpsefni fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mér finnst þetta slæm þróun. Við endum bara með að verða eins og Frakkar sem talsetja allt efni, bíómyndir sem og sjónvarpsþætti og kunna svo ekki ensku. Malcolm in the middle er ekki sýndur hjá mér fyrr en kl. 10 á kvöldin þannig að það er greinilegt að hann er ekki ætlaður fyrir mjög litla krakka. Ég veit ekki hvort stafrænt sjónvarp myndi bjóða uppá það en ef það á að fara að talsetja allt, þá væri sniðugt ef fólk gæti valið hvort það vill frekar hlusta á talsetta hljóðið eða upprunalega...

Re: Fundur er settur hjá femínista félagi Íslands

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það væri líklega bara best hjá þér að mæta á alla fundina hjá þeim. Þá gætu þær ekki talað illa um þig á meðan ;)

Re: Ég ætla í bæinn í kvöld og stinga Ameríkana.......

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
“Það er rétt hjá þér að ef þetta hefði verið fertugur fjölskyldufaðir þá hefði fólk litið málið öðrum augum. En þar sem þetta var ungur piltur og eflaust undir áhrifum áfengis þá má alveg ætla að hann hafi átt einhverja sök á þessu sjálfur.” Þetta eru náttúrulega bara fordómar. Ég þekki fertuga fjölskyldufeður sem eru algjörir hálfvitar þegar þeir eru í glasi og líka þekki ég unglinga sem eru mjög prúðir undir áhrifum. Það má kannski segja að það hafi ekki verið mjög gáfulegt af honum að...

Re: Ég ætla í bæinn í kvöld og stinga Ameríkana.......

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ef þetta hefði verið dæmt sem nauðvörn, þá hefði hann ekki fengið neinn dóm.

Hann breytti bara um nafn

í Tilveran fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Já, það er rétt. Hann heitir núna skuggi85.

Re: Ég ætla í bæinn í kvöld og stinga Ameríkana.......

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Upphaflega greinin er 100% ágiskanir um eitthvað sem gæti hafa gerst af manni sem var ekki einu sinni á staðnum en það sem scorpion25 segir er hans frásögn og það var hann sem var stunginn. Ég trúi því alla vega að hann viti betur hvað gerðist þetta kvöld heldur en sá sem skrifaði greinina. Það er mjög auðvelt að segja að allir sem eru beittir ofbeldi hafi bara átt það skilið eða verið að gera eitthvað en ég er þeirrar skoðunar að ofbeldi sé aldrei réttlætanlegt nema í sjálfsvörn og lögin...

Re: Hjálp!!!!!!

í Skóli fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Kokkurinn er iðnnám og það er mjög lítið bóklegt. Í rauninni myndir þú vera á samning í 4 ár og fara síðan 3 annir í skóla einhvern tímann á því tímabili, allan tímann á fullum launum. Það er hins vegar ekkert sem stoppar þig að taka stúdentinn á undan eða eftir. Ef þú gerir það í MK ætti að vera auðveldara að fá eitthvað metið á milli sem gæti stytt eitthvað smá fyrir þér. Ef þú býrð ennþá hjá foreldrum þínum, þá er best að taka stúdentinn fyrst ef þú hefur áhuga á að gera það á annað borð...

Re: Ég ætla í bæinn í kvöld og stinga Ameríkana.......

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hér er 30. grein: — 30. gr. Vopnaburður á almannafæri er bannaður. Heimilt er að bera á sér bitvopn þar sem eðlilegt og sjálfsagt getur talist, svo sem við vinnu eða veiðar eða í öðrum tilvikum þegar engin hætta er því samfara. Bannað er að flytja til landsins, framleiða, eignast eða hafa í vörslum sínum: a. bitvopn ef blaðið er lengra en 12 sm, enda sé það ekki ætlað til notkunar við heimilishald eða atvinnu, b. fjaðrahníf, fjaðrarýting, fallhníf, fallrýting, stunguvopn eða önnur slík vopn,...

Re: Ég ætla í bæinn í kvöld og stinga Ameríkana.......

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Er það eitthvað sannað að sá sem var stunginn hafi gert eitthvað? Var hann vopnaður? Það er ekki sjálfsvörn að stinga einhvern 5 sinnum með hníf, jafnvel þó hann sé vopnaður nema hann haldi áfram að gera eitthvað fram að síðustu stungu. Sjálfvörn má aldrei vera alvarlegri árás en það sem hún á að verjast, t.d. máttu ekki stinga mann fyrir að slá þig og ekki slá hann fyrir að rífa kjaft. Síðan er þar að auki bannað að ganga með hníf á sér á Íslandi, sjá...

Re: Hahaha !

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hefur þú spurt að því af hverju hann er ekki handtekinn? Hann ætti ekkert að sleppa frekar en hinn.

Re: Hahaha !

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Jæja, alltaf kemur réttarkerfið manni skemmtilega á óvart. Ég hélt að hann myndi sleppa með minna en hann á líklega eftir að áfrýja. Verst að þeir náðu ekki hinum gaurnum líka.

Re: Skotaras

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
“Byssulöggjöf var hert þónokkuð í Bandaríkjunum síðari hluta 20. aldarinnar, hvað varðar byssuleyfi og framleiðslu á byssum. Þó hafa byssumorð aldrei verið fleiri á höfðatölu en einmitt á þeim tíma. Augljóslega er eitthvað annað sem hefur áhrif en byssulöggjöfin ein og sér.” Bróðir minn býr í Bandaríkjunum og þetta er nokkuð strangt í fylkinu hans en hann segir að það sé farið framhjá þessu öllu á byssusýningum þar sem er selt grimmt, yfir og undir borðið og ekki spurt um neitt nema pening.

Re: Einelti

í Skóli fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þessi “Gunni” hefur ábyggilega bara verið viðkvæmur fyrir að vera kallaður lúser og kannski hélt hann að “Steini” hefði kastað í hann og ekki viljað viðurkenna það. Þeir sem hafa verið lagðir í einelti geta verið mjög viðkvæmir fyrir því ef einhver segir eitthvað við þá. Þeir eru kannski að reyna að verja sig og geta þá brugðist of harkalega við þegar flestir aðrir myndu bara taka þessu sem gríni.

Re: Smá pæling um hansen málið.

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það hefði átt að gera eitthvað í þessu fyrir 10 árum. Mér finnst að Íslensk stjórnvöld hefðu átt að fara fram á það við Tyrki að þeir sendu stelpurnar til baka, enda þær Íslenskir ríkisborgarar og Sophia hafði forræði skv. Íslenskum lögum. Auk þess hefðu þeir líka átt að fara fram á framsal á Halim Al fyrir barnarán. Hins vegar er þetta of seint í dag. Hann er búinn að heilaþvo þær. Of seint. Það er oft með ólíkindum hvað stjórnvöld á vesturlöndum geta verið lin í svona málum. T.d. konan sem...

Re: Smá pæling um hansen málið.

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það er nú ekki sérlega erfitt að heilaþvo börn sem maður nær í 9 og 10 ára gömul. Meira að segja ekki mjög erfitt að heilaþvo fullorðið fólk ef það er veikt fyrir. Á kannski að ræna þeim og heilaþvo þær til baka?

Re: Ætla hætta hjá ogVodafone

í Farsímar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Tal eða Íslandssími eða jafnvel bæði klöguðu Símann fyrir að lækka gjaldskrána óeðlilega mikið og Síminn var skikkaður af Samkeppnisstofnun til að hækka aftur. Mér finnst hins vegar að Síminn ætti að láta reyna á þetta aftur. Nú er OgVodafone ekki lengur þetta litla saklausa fyrirtæki sem risinn Síminn er að níðast á heldur hluti af samsteypu sem er miklu stærri en Síminn.

Re: Eftir ljósatíma..?

í Heilsa fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þar sem þetta áhugamál heitir heilsa, þá er náttúrulega langbest heilsufarslega séð að fara ekkert í ljós. Það eyðileggur teygjanleika húðarinnar og fólk verður hrukkótt.

Re: Smá pæling um hansen málið.

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það hefði átt að gera það fyrir svona 10 árum eða þegar þetta mál byrjaði. Hins vegar of seint að gera það núna. Dæturnar eru báðar orðnar sjálfráða og gætu þess vegna komið til baka ef þær vildu, þær bara vilja það ekki enda er pabbi þeirra búinn að halda þeim frá mömmu þeirra frá því að þær voru 9 og 10 ára gamlar og segja þeim hvað hún sé vond kona og gjörsamlega heilaþvo þær.

Re: Ritalin umræða

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það var ekki hann sem skrifaði greinina heldur svaraði hann af miklum móð. Greinin er á <a href="http://www.hugi.is/bornin/greinar.php?grein_id=62168">http://www.hugi.is/bornin/greinar.php?grein_id=62168</a> en önnur grein um sama efni skrifuð stuttu seinna er á <a href="http://www.hugi.is/bornin/greinar.php?grein_id=62540">http://www.hugi.is/bornin/greinar.php?grein_id=62540</a

Re: Íslensk ungmenni vilja út !

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ef þú átt leið til Edmonton, þá er stuðið á Buddy's Bar. Mér er sagt að þeir hafi blaut-boxer keppni reglulega :)

Re: Ritalin umræða

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Og það hefur ábyggilega ekki neitt af þeim verið ofvirkt. Ég efast um að hún viti nokkuð hvað hún er að tala um. Er þetta ekki annars sama amman og henti þér út á vinnumarkaðinn strax eftir 9. bekk?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok