Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Íslensk ungmenni vilja út !

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Eftir 11. sept. eru Bandaríkin það land þar sem þú getur lent í að vera handtekinn og haldið eins lengi og þeir vilja án nokkurra sannana eða útskýringa ef þeir álíta minnsta möguleika á að þú hafir tengsl við hryðjuverkamenn. Það er fullt af Bandaríkjamönnum búið að lenda í þessu og slatti af sárasaklausum Kandamönnum sem voru þarna í fríi. Bandaríkin eru klikk. Þar að auki eru Kanadamenn miklu frjálslyndari. T.d. búið að leyfa hommum að giftast og Kanarnir eru brjálaðir vegna þess að þeir...

Re: Ritalin umræða

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Og er amma þín barnageðlæknir?

Re: Ritalin umræða

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hvaða máli skiptir það hvað var vitað í gamla daga eða gert í gamla daga? Tveir bræður ömmu minnar voru örvhentir og þeir voru barðir í skólanum þar til þeir skrifuðu með hægri. Mjög góð leið til að “lækna” örvhenta eða þannig. Finnst þér verra að það er ekki gert lengur?

Re: Skuldabréf

í Fjármál og viðskipti fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Prófaðu að fara á heimasíður bankanna eða jafnvel kíkja í verðbréfamarkaði og tékka hvort þeir eiga einhverja bæklinga handa þér.

Re: Einelti með símum!

í Farsímar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hún hefði bara átt að geyma þessi SMS og fara með þau til Símans og láta loka á þá sem voru að senda henni. Jafnvel þó það sé gert í gegnum netið hefði verið hægt að rekja IP tölu og loka á netþjónustu hjá viðkomandi.

Re: Evrópa næsta skotmark hryðjuverkamanna ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Og hverjum er ekki sama?

Re: Evrópa næsta skotmark hryðjuverkamanna ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Og hvað ætlar þú að gera í því? Nákvæmlega ekkert sem þú getur gert. Bara vona að þú lendir ekki í því ef það gerist. Eða ætlarðu að hætta að fara á staði þar sem er margt fólk samankomið af ótta við árásir? Kannski byggja þér bara kofa til fjalla og búa þar með nokkrar skjátur og hænsni? Það eru til Bandaríkjamenn sem lifa svoleiðis en ég er ekki með það á hreinu hvort það er af ótta við hryðjuverkamenn eða bara eigin ríkisstjórn. Samt bara leiðinlegt fyrir þá ef það gerist síðan ekkert :)

Re: Ritalin umræða

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Og þú ert ennþá að neita því. Það er svolítið furðulegt með þig að þú ert eins og múrveggur. Þú ert búinn að bíta eitthvað í þig, t.d. það að ofvirkni sé ekki til og þá verður því ekki haggað. Engin rök eða upplýsingar geta breytt því. Sjúkdómar sem uppgötvast í dag eru ekkert minni sjúkdómar en þeir sem hafa verið þekktir í 100 ár.

Re: Ritalin umræða

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þú fékkst ábyggilega ekki bann fyrir að segja eitthvað um lyfið heldur líklega frekar fyrir að neita því gjörsamlega að það væru til ofvirk börn sem þyrftu á þessum lyfjum að halda og halda því fram að þau væru öll bara óþekk og að foreldrarnir nenntu ekki að aga þau og vildu frekar dópa þau upp.

Re: Evrópa næsta skotmark hryðjuverkamanna ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Og hvernig þekkir þú svona vel til í þessum hryðjuverkasamtökum? Ertu að hóta einhverju hérna eða hvað? ;)

Re: Evrópa næsta skotmark hryðjuverkamanna ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hver segir að þeir hati öll vesturlönd?

Re: Mengele - The Complete Story

í Bækur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Alla vega er vitað að nasistar gerðu mikið af rannsóknum t.d. hvað tekur fólk langan tíma að deyja úr kulda, hvernig er best að hita það upp o.s.frv. Þessi gögn hafa verið notuð í læknisfræðilegum tilgangi og þó sumir segi að það sé ekki rétt að nota þau þá finnst mér eiginlega að með því að nota þau ekki hafi þetta fólk dáið til einskis.

Re: Búnaðarbankinn

í Tilveran fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Datt þér ekkert í hug að hann vildi kannski fá málfræðiáhugamál vegna þess að hann langar að bæta málfræðina hjá sér? :)

Re: Íslensk ungmenni vilja út !

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
“Annars bara svo þú vitir þá eru líka ágætis líkur á að hryðjuverkamenn geri hryðjuverkaárás í Kanada… svo það er nú ekki beint heldur fullkomið land til þess að flytja í.” Þetta er reyndar ekki rétt hjá þér. Kanada er ein besta leið sem hryðjuverkamenn hafa inní Bandaríkin. Það er mjög auðvelt að flytja til Kanada og ef þú kemur og segist vera flóttamaður, þá er þér næstum undantekningalaust sleppt inní landið og getur látið þig hverfa meðan Bandaríkjamenn setja sína í hálfgerð fangelsi svo...

Re: Hér er ókeypis kennsla í fjármálastjórnun

í Fjármál og viðskipti fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Smá ókeypis og svo á maður að kaupa námskeiðin og plata aðra til að gera það líka svo maður geti fengið prósentur, ekki satt? Það er ekkert flókið við fjármál. Það eina sem maður þarf að passa er að fá ekki meira lánað en maður getur borgað. Svo einfalt er það nú.

Re: 2 Dollarar.

í Fjármál og viðskipti fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þeir eru víst ekki mjög verðmætir nema þeir séu því eldri. Það er ennþá verið að prenta þá, þeir eru bara sjaldgæfir í umferð vegna þess að flestir safna þeim eins og þú :) Smá upplýsingar um $2 seðilinn á <a href="http://taco.com/reb/cnn/2billcnn.html">http://taco.com/reb/cnn/2billcnn.html</a

Re: Íslensk ungmenni vilja út !

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það er rétt að það eru margir sem fara út í nám eða út að vinna en langflestir koma aftur. Stundum er það vegna þess að fólk hefur heimþrá eftir landinu, veðrinu, fjöllunum og sjónum eða kannski bara næturlífinu í Reykjavík. Kannski vegna þess að það saknar fjölskyldunnar, foreldrarnir eiga ekki svo mörg góð ár eftir og kannski fólk komið með börn sem það vill að þekki afa og ömmu og alist upp á Íslandi þar sem börn eru mun frjálsari en víða erlendis. Kannski bara vegna þess að það vill...

Re: Ísrael = þriðja ríkið ???

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
“Einmitt.. ekkert að því að hefna hryðjuverkaárásir.” Þannig að ef Ísland væri hernumið og ég frem hryðjuverk, þá finndist þér allt í lagi að innrásarliðið dræpi þig og þína fjölskyldu í hefndarskyni, tala nú ekki um ef þeir hefðu þig grunaðan um að eiga aðild að þessu? Væri kannski bara hið besta mál að skjóta einu stykki eldflaug á húsið sem þeir telja þig vera staddan í án tillits til þess hvort þú sért raunverulega þar, hvort þú hafir raunverulega gert eitthvað og hversu margir aðrir eru...

Re: FRISK - Er ég

í Netið fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Það sem hann er kannski að meina er að fólk skrifar til baka og fer að rífast í þeim. Ef maður virkilega álítur eitthvað vera ruslpóst, þá myndi maður ekki fara að skrifast á við sendandann, þ.e. nema maður væri eitthvað greindarskertur :) Annars myndi ég alveg vilja vita ef tölvan mín væri að senda eitthvað rusl út um allt en ég myndi líklega uppfæra eigið vírusvarnarforrit og skanna frekar en að kaupa eitthvað frá fyrirtækinu sem sendi mér póstinn.

Re: Ísrael = þriðja ríkið ???

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þannig að þér finnst það bara gott mál ef stjórnvöld í Ísrael senda hermenn út af örkinni til að myrða grunaða hryðjuverkamenn án dóms og laga og allt í besta lagi með það þó þeir drepi slatta af saklausu fólki í leiðinni? Ég held að það segi nokkuð mikið um þig.

Re: Ísrael = þriðja ríkið ???

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
En bíddu, er þeim alveg sama hverja þeir eru að drepa? Það eru ekkert allir Palestínumenn sem eru ábyrgir fyrir hryðjuverkunum en þeir þurfa samt allir að gjalda þeirra. Hins vegar er það Ísraelska ríkisstjórnin, kosin af Ísraelskum almenningi sem er að fremja þeirra hryðjuverk.

Re: Skutu tígrisdýr á fylleríi...

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Þetta eru hermenn, ekki Bandarískur almenningur. Það er mjög mikilvægt að hermenn hagi sér rétt. Getur verið mikið í húfi ef þeir gera það ekki. Þess vegna eiga ekki að veljast menn í hermennsku sem geta ekki haft hemil á sér.

Re: Skutu tígrisdýr á fylleríi...

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Eða bara heimsku. Hver er svo heimskur að stinga hendinni inn í búr hjá tígrisdýri? Hinn sem var að hefna er bara jafn heimskur. Þetta er svona álíka og að halda réttarhöld yfir dýrum sem er reyndar gert sums staðar í heiminum. Ég hef svo sem ekki heyrt mikið um þetta mál en finnst að þeir ættu að reka báða þessa menn úr hernum með skömm, öðrum heimskingjum til viðvörunar.

Re: Hass

í Heilsa fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég veit það ekki, hef aldrei prófað það en þetta fólk sem ég þekki situr ekkert heima og reykir alla daga, það gerir þetta bara í partýjum.

Re: George W. Bush junior

í Deiglan fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Vigdís Finnbogadóttir var heldur ekki kosin af meirihluta þjóðarinnar þegar hún varð forseti 1980. Bara okkar kosningalög sem virka þannig að sá sem fær flest atkvæði er kosinn og eins þau Bandarísku sem virka með kjörmönnum þannig að minni fylki hafa meira vægi en þau ættu að hafa miðað við íbúafjölda.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok