Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Morgan Kane

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég átti fullt af þessum bókum en henti þeim öllum þegar ég flutti fyrir ca. ári síðan :( Ég held að forlagið sé hætt en það var einhvers staðar uppí Faxafeni. Ég fór þangað einu sinni og keypti slatta af bókum. Prófaðu að fara í fornbókasölur eða kannski bókasafn :)

Re: Hrós sem forvörn??

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það hefur reyndar verið afsannað að þeir sem leggja í einelti geri það vegna þess að þeir hafi lélega sjálfsmynd. Yfirleitt hafa þeir gott sjálfstraust og álíta sig jafnvel betri en aðra og eiga auk þess erfitt með að setja sig í spor annarra. Þessi blanda veldur því að þeir sjá ekkert að því að pína aðra krakka sér til skemmtunar og gera sér ekki grein fyrir hvernig þeim líður sem lendir í eineltinu. Hins vegar er annað sem er kallað fölsk sjálfsmynd sem er líka hættulegt. Það er þegar...

Re: Harður árekstur við Hlemm (27. s.m.)

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það er nú svo sem ekkert slæmt að verða gjaldþrota 17 ára. Hann má bara ekkert eiga á eigin nafni í 7 ár sem þýðir að ef hann ætlar að eiga bíl eða eitthvað þá er það skrifað á einhvern annan.

Re: Sniðug leið til að drepa simsa

í The Sims fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Mér finnst lang fljótlegast að loka þá inni og kaupa handa þeim flugelda :)

Re: Verkir í hné

í Heilsa fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Farðu til læknis. Þú gætir verið að labba eitthvað skakkt og þú gætir verið að eyðileggja á þér hnéð hægt og rólega. Ef læknirinn heldur að þú þurfir innlegg þá sendir hann þig í mælingu.

Re: Heimilisvinur

í Kettir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hvað segirðu, fór fyrrverandi kærasta þín meira úr hárum? :) Ég var annars líka með svona kött í láni og gaf henni stundum að éta. Þetta er líklega ekkert rosalega vinsælt hjá eigandanum sem vill líklega vita hvað kötturinn er að éta en rosalega vinsælt hjá kettinum :) Annars er ég frekar á móti lausagöngu katta eins og ég hef ábyggilega sagt einhvern tímann þannig að eigendurnir geta ekki mikið verið að kvarta þó maður bjóði lausum köttum þeirra í heimsókn og mat :) Þeir lenda þá alla vega...

Re: Exorcism - Hvað finnst ykkur um þetta?

í Dulspeki fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Kaþólska kirkjan, alla vega í Bandaríkjunum, ku ennþá vera með andasæringadeild og ábyggilega kostar það ekki neitt. Hins vegar held ég að þú getir ekkert fengið þá til að koma og særa anda bara eftir því sem þig langar til heldur þarftu að sýna fram á að eitthvað sé í gangi. Þessi manneskja virðist vera að “lækna” geðveikt fólk fyrir $150 á tímann og eflaust virkar það eitthvað ef manneskjan trúir á þetta. Það er þekkt fyrirbæri að platlækningar geta virkað ágætlega. Hins vegar finnst mér...

Re: Frelsiskort

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hvar eru allir vinir þínir sem þú ætlar að hringja í með kort? Fáðu þér sama. Það er nefnilega miklu ódýrara að hringja úr SímaGSM í SímaGSM eða Tal í Tal.

Re: tónlistadiska varmir skífunar kanski ólöglegar?

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Jú, það er löglegt að taka allt að 3 afrit til eigin nota, þess vegna var STEF gjald sett á tóma diska og brennara. Hins vegar ef þú kaupir disk með afritunarvörn og veist að hann er með afritunarvörn, þá er spurning hvort þú sért ekki að ganga að þeim skilmálum með því að kaupa diskinn.

Re: Reynslusögur: Versta slys ykkar

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Það er sko ekkert gamanmál að vera bitinn en alla vega var þetta bara í nöglina, hins vegar ef þú ert bitinn til blóðs þá geturðu fengið rosalegar sýkingar af því fólk er svo eitrað. Kettir eru líka frekar eitraðir og maður sem ég þekki var að lenda í því nýlega að hann veiktist, hélt fyrst að hann væri bara þunnur og svo endar hann á spítala vegna þess að hann var kominn með 40 stiga hita og eitthvað. Þeir héldu að þetta væri heilahimnubólga og gerðu mænustungu sem er víst ekkert rosalega...

Re: Reynslusögur: Versta slys ykkar

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Bróðir minn datt svona á hnakkann á svelli í frímínútum í barnaskóla og fékk heilahristing. Hann sagðist ekkert hafa séð nema einn punkt fyrir framan sig og bað strák að labba á undan sér að skóladyrunum. Svo ældi hann í skólanum og var þá sendur heim.. labbandi.

Re: Reynslusögur: Versta slys ykkar

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Heyrðu, þetta með ostaskerann kom líka fyrir mig. Ég var að skera sneið af osti sem var orðinn mjög lítill og ég þurfti að halda við hann með puttanum og skar einmitt smá puttasneið af þumalfingrinum mínum. Ég setti bara sneiðina aftur á og límdi plástur yfir og svo varð þetta svona rautt og grænt næstu daga og greri fyrir rest. Mjög flott ör líka :)

Re: Húsið brann! Landssöfnun?

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Það var alla vega þannig með ömmu minnar kynslóð að því fólki þótti skömm að því að eiga ekki fyrir jarðarförinni sinni og þegar þær voru gerðar upp blessaðar, þá áttu þær báðar fyrir sinni, pabbi fékk meira að segja smá í arf eftir mömmu sína. En náttúrulega eru ekki kannski allir sem hafa tök á því að safna. Sérstaklega fólk sem þarf að vera á leigumarkaðnum. Annars hélt ég að útfarir væru svona rosalega dýrar eins og þú segir en svo fór ég að kíkja á utfor.is og þú getur verið með allt...

Re: Húsið brann! Landssöfnun?

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Í flestum tilfellum er gamalt fólk búið að safna fyrir útförinni sinni en það er ábyggilega til gamalt fólk sem lendir í slæmum málum þegar makinn deyr. Mér finnst að mætti alveg eins safna fyrir þeim eins og einhverjum sem er svo heimskur að skilja eftir kerti á eldhúsborðinu með allt innbúið ótryggt.

Re: Það er allt of mikið af köttum !

í Kettir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ef þeir voru innikettir, hvernig enduðu þeir þá inni í bílvél? Ef kettir eru virkilega innikettir þá komast þeir aldrei nálægt bíl, hvorki til að skríða upp í vélina eða lenda fyrir honum. Kettir eru bara ekkert allir neitt rosalega gáfaðir. Ég á frænku sem er í sveit og á slatta af hlöðuköttum og einn þeirra skreið upp í vélina og varð ansi langur orðinn þegar þau náðu honum út (og náttúrulega steindauður). Ég hef líka oftar en einu sinni séð ketti liggja úti á miðri götu og hreinlega bíða...

Re: Reynslusögur: Versta slys ykkar

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Stórhættulegt að vera á hjóli. Ég var líka á svona gömlu hjóli einu sinni og var alveg á fullri ferð þegar annar pedalinn brotnar af og ég náttúrulega endasentist beint á hausinn. Fékk annan endann á stýrinu beint í bringubeinið sem var reyndar allt í lagi, hefði verið verra að fá það í magann. Tók alveg skinnið af öðru hnénu og hruflaði mig smá á hendinni og svo tognaði ég í öxlinni þó ég fattaði það ekki fyrr en nokkrum dögum seinna þegar ég fékk rosa verk í öxlina sem lagaðist ekki fyrr...

Re: Öxulveldi ömurleikans

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég sá nú í einhverjum fréttaþætti um daginn að mikið að því “þrælahaldi” sem viðgengst enn í Afríku væri sett á svið til að narra peninga út úr bláeygum vesturlandabúum sem gjarna vilja borga til að leysa þrælana úr haldi. Þeir töluðu við mann sem er með samtök í Bandaríkjunum og búinn að leysa þúsundir manna úr haldi með gjafafé. Það var sýnt frá því þegar hann fékk til sín fjölda manna og túlkar hans túlkuðu það sem hann sagði og þrælahaldararnir fengu pening fyrir fólkið og allir fóru...

Re: Reynslusögur: Versta slys ykkar

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég hef eiginlega aldrei lent í neinu stórvægilegu en þegar ég var 4-5 ára hljóp ég á dyrakarm og fékk gat á hausinn.

Re: Einelti!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég held að kennarar viti það nefnilega oft t.d. eins og er á þessari heimasíðu í sambandi við leikfimikennarann sem kom inn og fór bara að hlæja þegar hann sá alla vera að berja einn. Svo vita þeir það náttúrulega alltaf þegar það er búið að segja þeim það þar sem krakkinn sem lendir í einelti kvartar við foreldra sína og þeir við kennarann. Hins vegar er það oft þannig að kennari gerir ekkert í málinu eða jafnvel kemur einelti á stað eða eykur á það með því að taka ákveðna krakka fyrir. Ég...

Re: Helvítis mýflugur

í Heilsa fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ouch :( Ef þig klæjar í þetta þá er langbest að láta ís á það, bara ísmola í poka eða poka með frosnu grænmeti eða hvað sem þú átt. Annars er til einhver áburður sem á að fæla flugur svo það er kannski spurning að nota það næst, líklega bara með flugnanetinu líka til öryggis.

Re: Aftur búið að handtaka Stóra-Dan hundana í Höfnum

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Það er náttúrulega ekki hægt að pína eigandann til að selja þá eða lækka verðið ef hún vill það ekki. Það eina sem er hægt að gera er að krefjast þess að hún sjái um hundana og hóta að lóga þeim ef hún gerir það ekki. Nú var því hótað þegar þeir náðust í júní að þeim yrði lógað næst þegar þeir yrðu teknir en það var ekki gert þannig að það er spurning hvort hún trúi því nokkuð lengur að þeim sé alvara.

Re: Aftur búið að handtaka Stóra-Dan hundana í Höfnum

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Síðast þegar ég vissi voru þau ennþá að biðja um 190 þús. á stk. Það væri ábyggilega hægt að gefa þá, bara spurning hvort rétta fólkið myndi gefa sig fram. Frekar eitthvað fólk sem finnst bara flott að fá hreinræktaðan hund ókeypis. Ég veit persónulega um mann sem fékk hund svoleiðis og kunni ekkert með hann að fara. Þetta eru það stórir hundar að þá þarf að þjálfa. Ef þeir t.d. stökkva upp á fólk þá hugsa ég að þeir fari létt með að fella það.

Re: Húsið brann! Landssöfnun?

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Nú veit ég ekki aðstæður þessa manns en hann þarf náttúrulega að borga útför fyrir alla familíuna og það er ekki gefins og oft eitthvað sem fólk er ekki tryggt fyrir þó það sé kannski með heimilistryggingu. Maður getur nú alveg búist við að það kvikni í hjá manni en að öll fjölskyldan farist á einu bretti kemur ekki svo oft fyrir. Svo ef familían hefur unnið á veitingastaðnum hækka útgjöldin hjá honum þegar hann þarf að ráða starfsfólk í staðinn.

Re: mynd af hárlausum hundi!!!!!!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hér eru linkar á fleiri hárlausar týpur: http://members.aol.com/AHTerrier/ahtfriends.html http://xolo.home.mindspring.com/piophoto.html#anchor1044797 http://www.oceanes.fr/~cth1eric/album1.html

Re: Húsið brann! Landssöfnun?

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Fólkið sem var safnað fyrir eftir snjóflóðin á Súðavík kvartaði yfir því að bæjaryfirvöld þar hefðu bara gert það við peninginn sem þeim sýndist, t.d. fengu þeir sem ætluðu ekki að búa þar áfram miklu minna en hinir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok