Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Húsið brann! Landssöfnun?

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Foreldrar mínir hafa alla vega alltaf fengið bætt þegar það hefur verið eitthvað. Gamla þvottavélin fór stundum yfir á suðu bara af gamni sínu og tryggingafélagið tók alltaf þeirra orð fyrir því hvað hefði verið í vélinni og hvað það hefði kostað. Bróðir minn lenti einu sinni í svaðilförum í ferðalagi þegar hann var unglingur og tapaði svefnpoka ofl. og það var allt bætt og þegar kviknaði í hjá þeim var allt bætt. Þau fengu alla vega nýtt gólfteppi á alla stofuna og nógan pening til að kaupa...

Re: Umburðarlyndi

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Frjálshyggja? Er það ekki að hafa sem mest frelsi? Þurfum við þá kannski líka að skilgreina frelsi?

Re: Umm.. mig vantar smá aðstoð...

í Heilsa fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Alkar eru þeir sem eru háðir en drykkjumynstrið getur verið mjög misjafnt. Tveir nánir ættingjar mínir eru alkar, báðir þurrir í dag. Annar fór á nokkurra daga túra en þar sem hann var á sjónum gat hann samt unnið. Hann lenti hins vegar oft í rugli þegar hann var fullur, slagsmálum og ölvunarakstri og þvílíku. Hinn drakk á hverjum degi eftir vinnu árum saman. Hvort sem hún er alki eða ekki þá er engin leið að fá hana til að hætta að drekka nema hún virkilega vilji það sjálf. Þú getur sagt...

Re: Bifvélavirkjun

í Bílar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég held að Mímir hafi verið með svona stutt námskeið einhvern tímann en heimasíðan þeirra er í hakki http://mimir.is/ þannig að ég veit ekki hvort þeir eru með þau ennþá. Þú getur náttúrulega hringt og spurt.

Re: Ég hef keyrt bíl!! (annað en GoKart)

í Bílar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Nei, ég átti þýskan Ford :)

Re: Það er allt of mikið af köttum !

í Kettir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
En kettir lifa ekki villtir í náttúrunni á Íslandi. Þetta er þess vegna ekki eins og einhverjir spörfuglar eða rottur heldur eru þetta gæludýr einhvers fólks. Þú vilt væntanlega ekki að hundur sé hlaupandi um laus, að leika sér í garðinum þínum og noti hann fyrir klósett. Af hverju þá köttur? Í mörgum löndum eru til flækingshundar, úlfar lifa villtir. Af hverju þetta tvöfalda siðgæði, reglur fyrir hunda og engar fyrir ketti?

Re: jú víst.

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Bílatryggingar eru náttúrulega rán en kostar það aukalega að tryggja börn? Ég held að ég einn með litla íbúð og lítinn bíl í kaskó hafi sloppið með 100 þús á ári allan pakkann. Það er líka annað sem hjálpar. Segðu upp öllum tryggingunum árlega og leitaðu tilboða. Það er ótrúlegt hvað þeir hafa allt í einu svigrúm til að lækka sig ef þeir halda að þú sért að fara. Nota bene þá þarftu ekkert að skipta, bara láta þá halda það :)

Re: Ég hef keyrt bíl!! (annað en GoKart)

í Bílar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Þú heppinn. Ég átti foreldra sem leyfðu mér aldrei að snerta bílinn og þegar ég tók prófið neituðu þau að lána mér hann líka. Þau settu bara upp svip og sögðu “Hvað, við eigum bara einn bíl, hvað gerum við ef þú klessir hann?” Mér þótti þetta alveg þrautfúlt fyrst og var alltaf á strætó eða á hjóli þangað til ég kláraði skóla og hafði efni á að fá mér bíl en þá fattaði ég bara að það var ekkert varið í það. Kostar bara heilan helling og þú færð ekkert í staðinn nema að komast frá A til B sem...

Re: Skilaboð frá tigris88

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ok, það skýrir ýmislegt :)

Re: EstHerP á afmæli í dag, 19.júlí !

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Til hamingju :)

Re: Skilaboð frá tigris88

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Er hann ekki bara 12 ára eða eitthvað svoleiðis?

Re: Húsið brann! Landssöfnun?

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Fólk heldur alltaf að ekkert komi fyrir hjá þeim sjálfum. Ég hef alltaf verið með tryggingu og foreldrar mínir voru alltaf með tryggingu. Það kom þeim vel fyrir 2 árum þegar kviknaði í sjónvarpinu þeirra. Þau voru sem betur fer heima þannig að þau náðu að slökkva eldinn en það hefði getað farið illa annars. Þrátt fyrir að þau hefðu slökkt strax var sjónvarpið náttúrulega ónýtt, standurinn undir því og videoið og svo gólfteppið á stofunni. Auk þess sót upp um alla veggi. Þau fengu þetta allt...

Re: Það er allt of mikið af köttum !

í Kettir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hmm, ég held ég hafi aldrei heyrt um að hundar hafi farið í barnavagna :)

Re: Aftur búið að handtaka Stóra-Dan hundana í Höfnum

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ef þú skilur hunda eftir einhvers staðar en þeir eru ekki í hættu, hafa að éta og eru ekki að ónáða annað fólk, þá hugsa ég að það sé allt í lagi. Eina vandamálið þarna er að þeir eru alltaf að sleppa og kannski óvinsælla en ella þar sem þeir eru stórir og margir saman. Ég fatta samt ekki hvers vegna þeir kröfðust ekki þess að allir hundarnir yrðu skráðir þegar þeir voru teknir í fyrra skiptið.

Re: Smá um Ottó og nýju systur sína :)

í Kettir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ottó gæti bara sest á hana ef hún er eitthvað að pirra hann :) Ég þekkti fólk sem átti litla terrier tík og stóran feitan kött. Þau voru svona svipað stór. Þeim kom nú ekkert sérlega illa saman. Tíkin var svona oft að stríða kettinum og þá stakk hann út einni kló, svona eins og Garfield og Odi og stakk hana í nefið. Þá varð hún náttúrulega voða sár. Kötturinn var aftur búinn að kenna tíkinni að hoppa upp á allt. Þetta virðist fara bæði eftir persónuleika hjá dýrunum sjálfum og kannski líka...

Re: Það er allt of mikið af köttum !

í Kettir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég hef lengi sett spurningamerki við lausagöngu katta. Ég sé bara ekki af hverju þeir ættu eitthvað frekar að ganga lausir heldur en hundar. Þeir éta fugla, skíta í sandkassa, fara inn um glugga hjá fólki o.s.frv. Svo er bara ekkert öruggt fyrir þá að vera lausir að flækjast í borgarsamfélagi. Þeir lenda undir bílum og lokast inni í geymslum o.s.frv. Villikettir eru jú réttdræpir en eins og meindýraeyðir sagði einhvern tímann í útvarpinu þá er sáralítill munur á villiketti og heimilisketti...

Re: Aftur búið að handtaka Stóra-Dan hundana í Höfnum

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Skv. frétt á ruv.is - http://www.ruv.is/main/view.jsp?branch=2010141&e342Reco rdID=32251&e342DataStoreID=2213589&uid=2231240 þá eru þetta foreldrarnir og 3 hvolpar. Voru þetta ekki upphaflega fleiri hvolpar? Eða sluppu þeir kannski ekki allir út?

Re: Aftur um lausagöngu hundana fimm á höfnum

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Skv. visir.is (http://www.visir.is/ifx/?MIval=frettir_btm&nr=120601&v=2) ætla þeir að gefa eigandanum annan séns. Síðast þegar þeir náðust var sett það skilyrði að eigandinn setti hundhelda girðingu til að halda þeim inni. Eigandinn setti girðingu en hún var ekki betur hundheld en svo að þeir grófu sig undir hana. Núna á að gera kröfu um það að eigandinn skrái þá og tryggi og komi algerlega í veg fyrir að þeir geti sloppið. Það er gefinn viku frestur til að gera það, annars verður þeim lógað :(

Re: Sundlaugin í Breiðholti... hmmm

í Deiglan fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ef allir sem fara í laugina eru gamlir, þá er ekkert skrítið að henni sé ekki haldið við. Kemur nefnilega enginn peningur inn. Gamla liðið fær allt frítt í sund.

Re: Trúlofun...

í Rómantík fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Það er svo sem ekkert fjarri lagi að þetta sé bara þróun að trúlofun breytist í það að fólk lofi að vera hvort öðru trú en ekki að það sé að skuldbinda sig til að gifast viðkomandi. Samt bara hafa það á hreinu að bæði séu að meina það sama áður en hringar eru settir upp :)

Re: Hver vissi þetta um nágranna ?

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Já, og veistu annað. Haltu þér nú fast. Nágrannar er LEIKINN þáttur! Alveg satt ;)

Re: Þjóðhátið í Eyjum, giskum núna....

í Tilveran fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Eru verðlaun fyrir að giska rétt? 6 nauðganir, þar af 2 þar sem notuð eru lyf. Af þeim 3 tilkynntar en engin kærð. 2 hópnauðganir (það er nú að komast í tísku). 6 slagsmál með alvarlegum meiðslum 3 barsmíða

Re: Meira um Julie... framhald.

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Þú verður bara að sýna tíkinni hver er alpha kvendýrið á svæðinu, þú eða hún :)

Re: Þjónusta við heilbrigði á Íslandi.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Heilbrigðiskerfið er líka illa skipulagt. Mágur minn er skurðlæknir og nokkur ár síðan hann kom úr sérfræðinámi að utan. Hann tók þá við stöðu á öðrum stóru spítalanna og sagði að það hefði komið sér mest á óvart að hann átti að eyða megninu af vinnutímanum í skriffinnsku í staðinn fyrir að vera að lækna fólk. Ég held að þeir hafa talið sig heppna að mega skera upp 2 daga í viku þrátt fyrir 2ja ára biðlista. Ennfremur var hann svo bláeygur að halda að hann gæti verið með samvinnu við...

Re: Þjónusta við heilbrigði á Íslandi.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Þetta er náttúrulega rugl að menn séu að vinna 24 tíma í striklotu og taka ákvarðanir uppá líf og dauða þegar atvinnubílstjórar t.d. eru sendir í rúmið eftir 10 tíma keyrslu. Hins vegar heyrði ég einhvers staðar að þeir þyrftu að vinna svona mikið til að geta aflað sér nauðsynlegrar reynslu á kandídatsárinu sínu. En má þá ekki bara láta þeim nægja 12 tíma vaktir og hafa 2 kandídatsár? Mér finnst líka endilega að við ættum að leita meira samstarfs við norðurlöndin um sameiginleg sendiráð. Það...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok