Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Sjómannaafsláttur, gott eða vont?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Jú, það eru sett lög á fleiri. Það hafa verið sett lög á flugfreyjur og hjúkkur og ýmsa aðra. Annars vorkenni ég útgerðunum ekkert að borga þeim meira. Mér finnst alveg útí hróa að ríkið sé að koma þarna inn í.

Re: Landsíminn hækkar

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég var með ISDN og var hjá Íslandssíma og það var bara fínt mál. Ég fór aðallega þangað vegna þess að þeir buðu allt að 70 tíma á netinu á 2500 kall á mánuði. Hins vegar þurfti ég áfram að borga fastagjaldið til Landssímans vegna þess að þeir eiga koparinn.

Re: Lýðræðisrammi og mótun siðgæðis.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég heyrði það einhvern tímann að hvert heilsdagspláss væri niðurgreitt um 20 þús. kall og væntanlega þá meira fyrir einstæða foreldra. Ég sé ekki að það skipti máli fyrir sveitarfélögin hvort þau nota þennan pening í að reka leikskóla eða láta fólk hafa hann beint í vasann.

Re: Mjög erfið spurning!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það er náttúrulega mjög erfitt að meta það fyrir annan einstakling hvort líf hans sé þess virði að lifa því eða ekki. Það er líka spurning hvar svoleiðis endar. Hins vegar má spyrja hvort það sé eitthvað verra að foreldrar láti eyða vegna þess að þau vilja ekki eignast fatlað barn frekar en ef þau eyða vegna þess að þau vilja ekki eignast barn einmitt núna. Annars held ég að þetta sé erfið ákvörðun að taka og lendir á því fólki sem lendir í þessu. Ég var að vinna með einum sem var að eignast...

Re: Harður árekstur við Hlemm (27. s.m.)

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég veit aðeins um þetta vegna þess að bróðir minn varð einu sinni næstum því gjaldþrota. Sem betur fer er það liðin tíð að kröfuhafar geri fólk gjaldþrota bara upp á grín nema þeir fái eitthvað út úr því og það er bara þegar þeir vita að fólkið á eitthvað sem það er að stinga undan. Kröfuhafinn græðir ekkert á að gera mann gjaldþrota sem virkilega á ekki neitt og getur ekki borgað. Alla vega lenti bróðir minn á svörtum lista í nokkur ár og allt sem hann átti var á nafni annarra....

Re: Sjómannaafsláttur, gott eða vont?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ef fólk er búsett erlendis þá borgar það væntanlega skatta þar og nýtir sér þá þjónustu sem þar er í boði. Það er hins vegar líka til fullt af fólki sem vinnur hjá íslenskum fyrirtækjum og er sent mikið erlendis.

Re: Sjómannaafsláttur, gott eða vont?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ertu að segja að það fáist ekki menn á sjóinn? Síðast þegar ég vissi var frekar erfitt að fá pláss. Frændi minn var alltaf á sjónum á sumrin þegar hann var í skóla og hafði moktekjur en hann fékk plássið í gegnum klíku.

Re: Sjómannaafsláttur, gott eða vont?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ef fyrirtæki ætti að geta borgað starfsmanni sem er sendur erlendis laun undir borðið inn á erlendan reikning þyrfti fyrirtækið að hafa einhverjar svartar tekjur til að nota í svoleiðis. Mörg fyrirtæki hafa alls ekkert ráðrúm til að gera það. Hvað hefurðu fyrir þér í því að þetta sé algengt?

Re: Motorcrossarar – Reiðgötur, hver greiðir?

í Hestar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Skiptir það einhverju máli hver borgar? Þetta eru *reið*vegir og ætlaðir fyrir hestamenn. Þess vegna finnst mér að þeir hafi fullan rétt á að kalla þetta *sína* vegi. T.d. mega vélhjól ekki keyra eftir göngu- og hjólreiðastígunum í Reykjavík. Og það er ekki vegna þess að göngu- og hjólreiðafólk hafi borgað þá. Ef vélhjólamenn eru eitthvað sárir að fá ekki líka stíga borgaða fyrir sig þá þurfa þeir bara að koma manni á þing. Hestamennska er það gömul íþrótt að ábyggilega helmingur...

Re: Sjómannaafsláttur, gott eða vont?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Mér finnst þetta léleg rök. Sjómenn gætu ekki verið sjómenn nema vegna þess að einhverjir aðrir eru til í að vinna öll hin störfin í þjóðfélaginu. Einhver verður að vinna í Bónusi líka :)

Re: Sjómannaafsláttur, gott eða vont?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Af hverju ætti þá sá sem verður aldrei veikur að borga fyrir heilbrigðiskerfið og af hverju ætti sá sem á engin börn að borga fyrir skólakerfið? Af hverju fær fólk sem þarf mikið að fara til útlanda út af vinnu þá ekki sjómannaafslátt og af hverju fá þá hafnsögumenn sjómannaafslátt? Ef pabbi þinn notar ekki vegakerfið, hvað þá með konuna hans og börnin hans? Nota þau það ekki heldur? Ef þau eru á hans framfæri þá er hann ábyrgur fyrir þeirra notkun líka.

Re: Sjómannaafsláttur, gott eða vont?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Mér skilst að þetta hafi byrjað þegar útgerðirnar voru fátækar og sjómenn í verkfalli og ríkið kom inn til að redda þeim kauphækkun en auðvitað á ríkið ekki að hjálpa einni atvinnugrein með launahækkanir frekar en annarri. Sjómenn hafa stundum sagt að þetta sé vegna þess að þeir eru alltaf úti á sjó og þurfi því ekki að nota t.d. vegakerfið og annað sem skattpeningurinn fer í en þetta er náttúrulega bara kjaftæði þar sem það er fullt af fólki sem er t.d. mikið í útlöndum vegna sinnar vinnu...

Re: Of flókið að skila sköttum !

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég er alveg sammála þér en skatturinn er víst á öðru máli :)

Re: Of flókið að skila sköttum !

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Í fyrra borgaði ég þetta bara tvöfalt vegna þess að ég vissi svo sem að ég hefði jafnmiklar tekjur á því ári en núna þegar ég á að fyrirframgreiða fyrir árið 2002 ætla ég að kæra vegna þess að ég veit að ég hef lækkað í tekjum þannig að ég ætti ekki að þurfa að borga þetta núna.

Re: Skattar! Skattar!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég þekki slatta af liði í USA og kerfið þar er sko ekkert sérlega sniðugt. Fólk hefur oft sjúkratryggingu í gegnum vinnuna sem þýðir að ef þú skiptir um vinnu getur þú verið tryggingalaus á meðan. Ef þú ert í láglaunavinnu eða verktaki færðu ekki tryggingu gegnum vinnuna og hún er of dýr til að fólk hafi efni á því. Ég kannast við náunga sem er kennari og tók sér ársleyfi til að klára doktorsritgerðina sína og verður ekki manngreyið svo óheppinn að veikjast. Hann fór á slysó og þurfti að...

Re: Of flókið að skila sköttum !

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Jú, það var einmitt þess vegna sem ég kvartaði. Mér fannst ekki sérstaklega til þess fallið að létta greiðslubyrði mína með því að láta mig borga tvöfaldan skatt og heldur ekki sérlega réttlátt að ég væri að borga hátekjuskatt af tekjum sem ég væri ekki búinn að fá í vasann þó náttúrulega þegar álagningin kemur í ágúst þá veit maður kannski nokkurn veginn hverjar árstekjurnar verða. Mér var hins vegar sagt að þetta væri bara svona og ef ég sætti mig ekki við álagninguna þá gæti ég bara kært.

Re: 7 mánaða móður laus og vantar au-pair.

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ef hann er úti á landi, hvernig væri þá að auglýsa líka í bæjarblaðinu? Það eru ábyggilega einhverjar stelpur á svæðinu sem eru til í að fara í vist eða jafnvel þó það væri bara að passa yfir daginn. Sama með kannski heimavinnandi mæður sem væru til í að taka að sér að passa þar til hann finnur eitthvað varanlegt.

Re: Hér er ekki mikið lýðræði.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Stjórnmálamenn líta almennt á kjósendur sem sauði og telja okkur ekki hafa vit á málunum og þess vegna álit okkar einskis virði. Þar sem þeir eru allir svona, þá er eiginlega ekkert val um að kjósa neitt annað. Sorrý :-/

Re: Hvað tekur við eftir menntó?!

í Skóli fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég fékk út að ég ætti að fara í herinn :) Annars áttu bara að spá í hvað þér finnst skemmtilegt að gera og velja það.

Re: Pæling um bekkjarskiptingar

í Skóli fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Mér finnst þetta mjög gott mál. Þegar ég var í grunnskóla dauðleiddist mér vegna þess að mér fannst ekki farið nógu hratt. Svo voru aðrir í bekknum sem náðu aldrei að halda í vegna þess að þeim fannst farið of hratt. Sumir voru sendir í sérkennslu í einhverjum greinum og þó þeir væru teknir út úr bekknum til þess þá var þeim aldrei strítt á því að þeir væru tossar. Einu sinni fengum við mismunandi lestrarbækur eftir getu og ég öfundaði krakkana sem fengu léttu bókina vegna þess að það voru...

Re: Of flókið að skila sköttum !

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég er ekki að fatta þennan skatt. Ég lenti í því í fyrsta skipti í fyrra að fá hátekjuskatt og þá er hann rukkaður fyrir árið 2000 og fyrirfram áætlað fyrir 2001, þ.a. ég borga tvöfaldan hátekjuskatt í fyrra. Ég spurði af hverju þeir gerðu þetta svona og þeir sögðu að það væri til að “létta greiðslubyrði mína”. Í ár er ég hins vegar næstum ekki með neinar tekjur og nú vilja þeir samt frá fyrirfram hátekjuskatt fyrir 2002 þannig að ég verð að kæra.

Re: 7 mánaða móður laus og vantar au-pair.

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Segðu honum að auglýsa í DV. Hann ætti alla vega að geta fundið einhvern sem getur passað hana í 4-6 vikur þangað til au-pair dæmið virkar. Af hverju vill hann annars frekar fá au-pair heldur en t.d. dagmömmu? Ég sá þátt um au-pair stelpur á BBC fyrir 1-2 árum síðan og flestar voru þær að lenda í einhverju veseni, partýja of mikið, hætta í vistinni fyrirvaralaust, rúlla upp símareikningum o.s.frv. Auðvitað eru margar góðar stelpur líka en þetta eru oft bara unglingar sem hafa ekkert þroska í...

Re: Einelti

í Skóli fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Í mínum skóla var best að láta eins og manni væri alveg sama. Þeir sem börðu frá sér voru bara barðir til baka af allri klíkunni og þeir sem fóru að grenja eða hlupu heim voru bara hrekktir meira. Þeir sem leggja í einelti gera það til að fá viðbrögð. Ef þeir fá einhver viðbrögð þá halda þeir áfram. Það er ekkert gaman að stríða einhverjum sem er alveg sama.

Re: Morgan Kane

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Morgan Kane er ekki rithöfundur heldur James Bond villta vestursins. Hann er fljótur að skjóta og tekur alltaf í stelpu eða tvær í hverri bók auk þess sem hann drekkur sig útúrfullan. Þetta var svona kilju sería svipað og Ísfólkið nema bara betri ;) Höfundurinn er norskur og skrifaði bækurnar undir nafninu Louis Masterson.

Re: Egill Ólafsson leikari

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Egill hefur leikið í fleiri myndum. Hann var náttúrulega í Stuðmannamyndunum “Með allt á hreinu” og “Hvítir mávar” og svo var hann kórstjórinn í “Karlakórinn Hekla” og svo lék hann pabbann í “Jón Oddur og Jón Bjarni” og líklega hefur hann verið í fleirum sem ég man ekki eftir. Hins vegar alveg satt að Eggert Þorleifsson hefur verið í ótrúlega mörgum myndum. Samt ábyggilega ekki öllum :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok