Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: heimskuleg grein í mogganum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hvernig *komst* hann til valda? Var hann ekki kosinn? Hver á að ákveða það fyrir aðrar þjóðir hvað þær kjósa yfir sig? Ef EB t.d. líkaði ekki við sjálfstæðisflokkinn, finnst þér þá að þeir ættu að setja viðskiptabann á Ísland og heimta að það yrði kosið aftur?

Re: Mars vs. Snickers

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Mér finnst Mars betra. Mér finnst jarðhnetur bara ekki passa með súkkulaði. Annars finnst mér þær ágætar.

Re: Lýðræðisrammi og mótun siðgæðis.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég kannast við konu sem sjálf átti ofvirkan son sem reyndar er orðinn fullorðinn en þessi kona vinnur nú á greiningarstöð fyrir ofvirk börn þar sem hún býr í Bandaríkjunum. Hún sagði það vera mjög algengt að foreldrar kæmu með börnin sín og staðhæfði að þau væru ofvirk og með athyglisbrest þegar í rauninni var ekkert að þeim nema óþekkt og frekja. Sumir þeirra meira að segja búnir að fá greiningu hjá heimilislækni og koma barninu á lyf. Hún sagði að það væri greinilegt ef einhver annar getur...

Re: Jolie vill skilnað

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það að eignast barn er víst rosalegt álag á sambönd. Allt í einu kominn 3ji aðili inn í sambandið sem heimtar 100% af athyglinni. Hins vegar er líka sagt að hjónabönd leikara endist verr vegna þess að bæði vilja vera stjarnan og fá athyglina og þess vegna líklega ennþá erfiðara þegar leikarahjón eignast börn.

Re: Jason Priestley í lífshættulegu slysi

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það er nú allt í lagi fyrst hann slasaðist ekki alvarlega. Læknar hans segja að hann hafi engin meiðsli sem hann ætti ekki að ná sér af. Meira um þetta á http://sportsillustrated.cnn.com/motorsports/news/2002/08/12/priestley_update_ap/

Re: Menntun og vandamál.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þessir læknar eru bara að bjóða þá þjónustu sem fólk vill kaupa. Erum við ekki líka að mennta á kostnað skattborgara lögfræðinga sem margir hverjir fara í einkabisness, presta sem eingöngu þjóna þeim hluta þjóðarinnar sem er kristinn, iðnaðarmenn sem ábyggilega flestir fara í einkabisness o.s.frv. Er það eitthvað öðruvísi?

Re: Rottweiler og Árni Johnsen....

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
ok, hvað gerðu þeir eiginlega?

Re: afhverju ég!!!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Af hverju myndi ég ekki hafa sagt frá þessu? Heldur þú að fólkið uppi á Grensás viti ekki af því að fólk getur lent í slysum án þess að örkumlast? Það fólk er jú óheppið að lenda í slysinu en heppið að slasast lítið. Hinir sem örkumlast eru bara ennþá óheppnari en það er nú þannig með okkur öll að við þurfum að taka við því sem lífið réttir okkur og gera okkar besta. Það þýðir ekkert að væla yfir því að einhver annar sé heppnari en maður sjálfur.

Re: afhverju ég!!!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Jú, þú ert bara ferlega óheppin en kannski verður það ekki alltaf svoleiðis. Ég þekkti einu sinni stelpu sem átti systur sem var svona óheppin. Systir hennar datt niður stiga og handleggsbrotnaði, lenti í bílveltu og fótbrotnaði, fór á útihátíð í Atlavík og datt í ána og var næstum drukknuð, vaknaði á spítala með brunasár á fótunum af því það voru settir á hana of heitir hitapokar, einu sinni var hún í jeppaferð og það keyrði yfir hana jeppi, sem betur fer snjór þannig að hún meiddist frekar...

Re: djöfullin!! já hann er ekki hér

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Segðu bara “fuck” í staðinn. Ef þær segja eitthvað við því geturðu gargað á þær hvort þær hafi ekki fengið neitt nýlega ;)

Re: milljón

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Allt um þetta á http://www.visindavefur.hi.is/index.asp?url=svor/svar_1624.html

Re: Afhverju tekur Ísrael þátt í Evrópumótinu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég get ekki svarað fyrir Evrópumót frjálsíþrótta en Eurovision eru samtök sjónvarpsstöðva sem ekki eru allar í Evrópu. T.d. eru Alsír, Marokkó ofl. lönd í þessum samtökum þó þau taki ekki þátt í keppninni.

Re: Svona er Ísland í dag!

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Fælingarmáttur refsinga mun vera sáralítill. Í fyrsta lagi ætlar sér enginn að nást og í öðru lagi eru sárafáir brotamenn sem eru að spá í refsingunni þegar þeir fremja glæpinn. Ég held að það hafi einu sinni gerst á Íslandi að maður sem hafði drepið einhvern í slagsmálum og var kominn út á skilorði drap aftur. Flest af þessu liði er ógæfufólk sem hefur lent í að drepa einhvern og ekki ætlað sér að gera það. Þeirra vandamál er ekki óviðráðanleg morðárátta heldur dóp og drykkja. Best að koma...

Re: Sjómannaafsláttur, gott eða vont?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Halló? Af hverju á ríkið að borga þeim þessa uppbót? Af hverju ekki útgerðirnar?

Re: 9 ára og gsm

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Mér finnst ekkert að þessu. Þetta er bara þróun. Stelpan getur þá líka hringt í foreldrana ef hún þarf að láta ná í sig eða eitthvað. Það er ekki neitt ofboðslega langt síðan að börn áttu almennt ekki úr, fengu það kannski í fermingargjöf. Ætli það hafi ekki verið sagt þá að börn myndu missa allt tímaskyn ef þau fengju úr fyrr og yrðu bara ósjálfstæð ;) Fólk hefur verið að segja “heimur versnandi fer” og “æskan nútildags” í mörghundruð ár og alltaf reddast þetta nú samt :)

Re: Kennaralaun

í Deiglan fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Mér finnst að bónusinn ætti að fara til skólanna miðað við hvað nemendur þeirra standa sig vel á samræmdu. Bónusinn myndi síðan skiptast jafnt niður á kennarana í þeim skóla. Þannig væru allir kennararnir að vinna að sama markmiði en ekki að keppast um hver þeirra fengi hæstan bónus eða hver væri vinsælastur hjá nemendum.

Re: !!!!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hver segir að pabbi hans sé ekki alvöru jólasveinn?

Re: Lýðræðisrammi og mótun siðgæðis.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það er nú allt gott og blessað að segja að börn ættu ekki að vera vistuð fyrr en 2ja ára og ekki heilsdags fyrr en 4 en hvernig á þá t.d. einstætt foreldri að fara að því að vinna? Ef einhverjar svona reglur yrðu settar myndi það bara færa dagvistunina frá sveitarfélögum yfir á einkaaðila og jafnvel þá ennþá meira hringl á börnunum ef foreldrar væru kannski með pláss hjá dagmömmu hálfan daginn og barnið á leikskóla hinn helminginn. Börn eru ekki eins viðkvæm og fólk heldur og það þarf ansi...

Re: Borgarleg hjónavígsla..

í Rómantík fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þú getur fundið smá upplýsingar á http://www.sidmennt.is/hjonavigsla/svor-syslumanna.html Líka á http://www.syslumadur.is/efni.asp?id=13&cmd=menu

Re: Of flókið að skila sköttum !

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ef þú getur sannað að hann hafi dregið þetta af þér t.d. með því að sýna launaseðla, þá er ég 99% viss um að skatturinn borgar þér til baka og rukkar hann. Samt leiðinlegt að lenda í svona vitleysu.

Re: Mjög erfið spurning!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Foreldrar vilja barninu sínu náttúrulega það besta og vilja að það verði hamingjusamt en það getur enginn sagt fyrirfram hver verður og hver ekki. Fólk getur líka verið 100% ófatlað en með sjúklega minnimáttarkennd eða þunglyndi eða eitthvað svoleiðis. Hins vegar er náttúrulega annað mál þegar vitað er að fóstrið er það mikið fatlað að það muni lifa stuttu kvalafullu lífi eða verða grænmeti.

Re: Hjátrú varðandi brúðarkjólinn

í Rómantík fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Systkini mín fór sko alls ekki eftir þessu. Systir mín gifti sig í hvítu og þó var hún svo ólétt að það var farið að sjá á henni. Mágkona mín gifti sig í hvítu og þó voru þau að skíra son sinn í leiðinni og önnur mágkona mín gifti sig í hvítu og þá áttu þau tvö lítil. En mér finnst reyndar ekkert að þessu. Af hverju að hafa reglur um þetta? Fólk gerir bara það sem því finnst flott :)

Re: Lýðræðisrammi og mótun siðgæðis.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég held það skipti engu rosalegu máli hvort börn eru alin upp í heimahúsum eða á leikskóla, svo framarlega sem á hvorugum staðnum sé þeim parkerað fyrir framan imbann. Mamma mín var heimavinnandi og ég fór bara á róló til að hitta krakka.

Re: Hjátrú varðandi brúðarkjólinn

í Rómantík fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Eitthvað hef ég heyrt um erlendis frá að hvítt eigi að tákna hreinleika brúðarinnar og fólki jafnvel þykir ekki við hæfi hún sé í hvítu ef þau hafa búið saman áður eða hún hefur verið gift áður en sem betur fer erum við ekki svo forpokuð :)

Re: Lýðræðisrammi og mótun siðgæðis.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég man eftir að hafa séð grein eftir íslenska konu sem flutti til Bandaríkjanna og hún sagði að það væri ætlast til miklu meira af foreldrum þar í sambandi við t.d. að hjálpa börnunum með skólann og sjá til þess að þau lærðu heima. Það var allt í einu orðin vinna hjá henni að vera mamma :) Þetta sem þú telur upp ætti náttúrulega ekki að tilheyra verki kennarans, alla vega var það standardinn þegar ég byrjaði í skóla að maður gæti alla vega skeint sig og bundið skóreimarnar skammlaust áður en...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok