Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Rúllustigar

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þú verður bara að taka það að þér að koma upp rúllustigamenningu á Íslandi og troðast framhjá þessu fólki sem stendur þarna eins og beljur.

Re: Bit

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þegar hundurinn minn var lítill, þá beit ég hann bara til baka ef hann var eitthvað að ibba sig. Yfirleitt bara smá í eyrun, það var alveg nóg. Kannski þarf hvolpurinn að finna að hann er neðstur í virðingarstiganum. Sinntu alltaf stelpunum á undan honum og láttu þær alltaf borða á undan. Ef hann virðir þær ekki og þær að reyna að skipa honum fyrir, þá getur líka hjálpað fyrir þær að gera sig stærri með því að fara upp á stól eða rúm. Frændi minn var smá hræddur við hundinn minn þegar hann...

Re: Bit

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Síðast þegar ég vissi var hundaæði ekki til á Íslandi. Þess vegna þarf ekki að sprauta hunda við því. Það eru miklu færri sýklar í munninum á hundi heldur en ketti og köttur en með færri en api og api með færri en maður. Það er sem sagt miklu hættulegra að vera bitinn af manni en hundi. Miklu meiri hætta á ígerð. T.d. ef þú meiðir þig og sleikir blóðið af puttanum, þá er það miklu verra en að láta hund sleikja það.

Re: Ruiz-Jones

í Box fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Roy Jones jr. er með 74“ faðm, 1,80m á hæð, 33 ára og hefur verið að berjast í kringum 175 pund sem er hámarkið á léttþungavigtinni. Hans tölur eru 47-1-0, þar af 38 rothögg. John Ruiz er með 78” faðm, 1,88m á hæð, 30 ára og hefur verið að berjast í kringum 225 pund. Hans tölur eru 38-4-1, þar af 27 rothögg. Ég held að reglurnar séu þannig að þú mátt alltaf berjast upp fyrir þig þannig að eftir því mega allir berjast í þungavigt þannig að hann þarf ekki að þyngja sig neitt frekar en hann...

Re: Hundamatur

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Tíkin bróður míns var svona. Hún var með ofnæmi fyrir hveiti og einhverju fleira og mátti bara fá fóður sem hét Rice & Lamb en samt var hún alltaf með kláða. Gróðurinn ætti alla vega að fara að minnka þar sem það er að kólna. Frjókornatímabilið er liðið fyrir flestan gróður. Ef hann heldur áfram að vera svona, þá er þetta kannski eitthvað annað. Kannski er þetta eitthvað heima hjá þér, stofublóm eða hvað. Þekkirðu einhvern í plássinu sem er til í að hafa hann í svona viku og gá hvort hann...

Re: Vangavelta um skatta

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
En það hlýtur líka að velta á trúgirni manna. Ef einhver t.d. segir þér að þú þurfir á heimabíókerfi og DVD spilara að halda og ekki gleyma alla vega 29" sjónvarpi, þá veistu að það er ekki alveg satt. Þig kannski langar í þessa hluti en veist það mætavel að þú getur alveg lifað án þeirra. Fólk þarf bara snefil af sjálfsstjórn og þá er allt í góðu. Hins vegar allt of margir sem virðast hreinlega ráða illa við að sjá um fjármálin og svoleiðis fólk ætti að koma sér í greiðsluþjónustu sem fyrst...

Re: Nei, þetta er nú einum of...

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er bannað með lögum að skjóta upp flugeldum nema í kringum áramótin. Bara kæra þetta fífl.

Re: Spurning

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er ekkert að gerast í þessu máli. Þetta á eftir að halda svona áfram þangað til yfirvöld annað hvort setja aðrar reglur um hvernig ræktun heimilisdýra skuli háttað (í dag fylgir þetta víst sömu reglum og fyrir minkabú) eða fólk fer að kynna sér málin og hættir að versla við þetta fólk sem þá hlýtur að hafa það í för með sér að það verður annað hvort að bæta aðstöðuna eða bregða búi.

Re: Meira um hundarækt.

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það sem ég meinti var að ef HRFÍ leyfir ekki ræktendum að selja hunda með stimpilinn “ekki til ræktunar” eða gerir það mjög erfitt, þá er fátt til ráða nema lóga lakari hvolpunum, ekki nema þú ætlir að eiga þá alla fram að 6 mánaða og sjá til þess að þeir verði geldir. Þess vegna er einmitt mikilvægt að koma þessum breytingum inn hjá HRFÍ að ræktendur geti sjálfir ráðið hvaða hvolpar fá ræktunarstimpil og hverjum verður ekki ræktað undan.

Re: Einelti

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Í sambandi við uppeldi gerenda þá þekki ég hjón sem eiga son sem var að spá í að hætta í fótbolta út af strák sem hann var að æfa með sem var svo leiðinlegur. Alltaf þegar einhver gerði mistök, þá gargaði þessi “Helv. aumingi geturðu verið maður!”. Eftir því sem strákurinn þeirra sagði þá var þessi strákur ekki einu sinni bestur í liðinu og margir voru miklu betri en samt miklu þolinmóðari við hina sem voru ekki eins góðir. Svo kom mamman einhvern tímann á æfingaleik og þegar hann er búinn...

Re: Einelti

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held það skipti líka máli hvernig kennarinn biður krakkana að hætta eineltinu. Ég var í bekk þar sem kom tvisvar upp einelti. Í annað skiptið hélt kennarinn þrumuræðu yfir bekknum og sagði okkur að við skyldum bara skammast okkar niður í tær að koma svona fram við bekkjarfélaga okkar og hvort við vildum að einhver gerði svona við okkur. Krakkarnir urðu náttúrulega eins og aumingjar og litu hver á annan og sögðu nei. Og kennarinn var ekki hættur því hann sagði að við ættum að skammast...

Re: Sundlaugar

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Kópavogslaugin er það stór að þú ættir að geta synt þar í almenningnum þó þú fáir ekki braut. Ég lenti alla vega aldrei í vandræðum og samt eru alltaf sundæfingar þarna. Laugardalslaugin sömuleiðis. Ætti að vera nóg pláss. Af hverju prófarðu þig ekki bara áfram?

Re: Tíðni svæfinga í USA.

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég hef nú ekki mikið samband við hana en heyrði þetta frá mömmu. Ég verð að segja að þessar fréttir hafi ekki látið mig langa til að bæta sambandið.

Re: Tíðni svæfinga í USA.

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er ábyggilega alveg jafn mikið um svæfingar á Íslandi. Ég bý í Kanada og hef búið í USA og það er miklu meira talað um þetta þar og fólk hvatt til að láta gelda dýrin sín. Jafnvel að þú fáir afslátt af leyfisgjaldi ef þú lætur gelda. Það er líka mjög algengt að fólk sem langar í dýr fer í dýraverndunarfélagið og fær dýr þar sem annað fólk hefur losað sig við. <a href="http://www.espca.com/petsearch.html">Heimasíða</a> þeirra í bænum mínum er með langa lista af hundum og köttum sem þeir...

Re: Meira um hundarækt.

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Af hverju takið þið þetta ekki upp innan HRFÍ? Það væri náttúrulega hægt að lóga hvolpum sem uppfylla ekki ræktunarstaðal en frekar sárt að þurfa að gera það þegar þetta eru heilbrigð dýr sem gætu orðið ágæt heimilisdýr.

Re: Einelti

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er satt að skólayfirvöld þurfa að taka harðar á þessum málum en oft er nú líka vandamál að þolendur þora ekki að segja frá. Nú er það orðið svo að skólayfirvöld hafa eiginlega ekki það val að geta rekið nemendur úr skóla, sama hvað þeir gera. Tek sem dæmi litlu villingana sem voru að sprengja í Hagaskóla fyrir nokkrum árum og skólastjóra var bannað að reka þá þó það hefði bara verið tímabundin brottvísun. Mér dettur í hug að í staðinn fyrir að vísa úr skóla megi aga nemendur með því að...

Re: Pælingar

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ástæðan fyrir því að kenna sem flest er að nemendur fái breiðan grunn. Ef það ætti ekki að fara að kenna algebru fyrr en í Háskóla, þá væri það svo mikið að læra að það tæki svona 10 ár að klára háskólanám. Þá mætti alveg eins segja af hverju að vera að hafa grunnskóla yfirleitt? Geturðu ekki bara lært allt sem þú þarft þegar þú ert búinn að ákveða hvað þú ætlar að vinna við? Ef grunnskólanemendur mættu ráða hvaða fög þeir taka, þá myndu þeir strax vera búnir að útiloka ýmsa möguleika í...

Re: Stéttaskipting á Íslandi ???

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það eru nokkri gallar við að skattleggja þá úr hófi fram sem eru hálaunaðir. 1. Það eykur tilhneigingu þeirra til að reyna að svíkja undan. 2. Það minnkar áhuga þeirra á að vinna yfirvinnu ef þeir eru komnir í 80% skatt og fá því bara 20% laun fyrir hvern tíma. 3. Það ýtir undir það að fólk sem er með góða menntun og há laun eða t.d. frægir listamenn flýja land. Númer 2. gætir þú spurt hverjum er ekki sama hvort þetta lið vinnur yfirvinnu eða ekki en það gæti jú skipt máli ef þú ert t.d. með...

Re: Hlutabréf

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Rétt þetta, fólk getur að sjálfsögðu fjárfest í hlutabréfum ef það dreifir áhættunni en það verður samt að passa að fjárfesta ekki pening sem það á ekki til. Sbr. suma sem tóku bankalán til að kaupa Decode á 55 dollara og ætluðu að græða rosa mikið :)

Re: ó.þolandi kennari

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Spurðu hann hvort hann fái borgað fyrir að kenna ykkur ensku eða heilsufræði.

Re: Ofurhugar

í Hugi fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þegar þú ert skráður inn er nafnið þitt ofarlega til hægri og stendur hvað þú ert með mörg stig. Þú getur klikkað á stig og þá sérðu hvað þú hefur fengið mörg stig á hvaða áhugamáli. Ef þú ert búinn að fá það mörg stig á grafík að þú ert einn af 12 hæstu, þá ættirðu að komast í Ofurhugar þar. Samt endilega ekki fara að senda inn innihaldslausar greinar bara til að fá stig þar. Það er ekki eins og það séu nein verðlaun fyrir það og allir hata stigahórur :)

Re: Hvaða fóðri mælið þið með?

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég hef heyrt að 1 teskeið af lýsi á dag saman við matinn eigi að draga úr hárlosi. Ég prófaði þetta meðan ég átti hund og fannst það virka smá.

Re: Vangavelta um skatta

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fólk á bara ekkert að hlusta á svona lífgæðakapphlaupsdæmi. Það eru alltof margir sem láta bara berast með straumnum og spá svo bara í það seinna hvernig á að borga. Svo er fólk að tala um hvað það hafi það allir gott á Norðurlöndunum. Málið þar er nefnilega að þeir eru ekki eins miklir flottræflar og við Íslendingar þannig að fólkið sem lætur bara berast með straumnum þar er að lifa miklu ódýrar. Alveg hægt að gera það sama á Íslandi. Bara þarf að hafa meira fyrir því.

Re: Kettlingur fæddur

í Kettir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jú, hann er fæddur 13. en á sunnudegi :) Mömmu hans finnst hann frábær en ég var nú að stríða henni á að hann væri með rottuskott. Hún leit á mig og urraði. Má ekki segja neitt ljótt um litla kútinn hennar :) Hún virðist hins vegar ekki vera neitt rosalega vön í þessu. Þau hafa verið á gólfinu þar sem hann fæddist og hann hefur tvisvar strokið frá henni og tekið skjaldbökuskrið eftir gólfteppinu og hún hefur bara setið kyrr og ekkert vitað hvað hún ætti að gera. Ég er búinn að setja þau í...

Re: Leggja niður RÚV?!!!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ef eitthvað mjög slæmt gerðist og t.d. færi allt rafmagn þá er RÚV líklega eina dæmið með vararafmagn og næst um allt land, alla vega langbylgjan. Í slíkum tilfellum myndi fólk spá í hver fjandinn væri að gerast og grafa upp batteríisútvarp eða fara útí bíl að hlusta og þá get ég lofað að þeir myndu ekki vera að lýsa fótboltaleik :) Hins vegar hefur RÚV sjónvarpið ekkert öryggisgildi því ef eitthvað gerist þá er hálf þjóðin að horfa á aðra stöð og ef eitthvað gerist svo slæmt að rafmagn fer,...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok