Ruiz-Jones John Ruiz er að setja smá pressu á Roy Jones jr. og starfsmenn hans og sagði að Joy þyrfti að vera búinn að skrifa undir á föstudaginn kl. 17. Ég held að Jones ætli að fara í þennan bardaga og verði að fara í hann því annars verður hann kallaður gunga því að það vita allir að WBA titill Ruiz sé lang ódýrasti titillinn í þungavigtinni. Þetta var þónokkuð sniðugt hjá Ruiz að setja svona tíma á þetta því þá er ekkert verið að draga samnings viðræður mjög lengi eins og gerist oft. Þetta á eftir að verða spennandi bardagi. Ruiz hefur þyngdinna og reynslu í þungavigt en Jones vegur þetta allt upp með hæfileikum. Jones er höggþungur léttþungavigtari en Ruiz höggléttur þungavigtari.
Dabbi er nettur töffari