Bli, miðað við þá sem ég þekki sem hafa verið að rækta, þá er fólk að gera þetta í smáum stíl í þeim tilgangi að bæta tegundina sína og það er að gera þetta af áhuga, ekki í gróðaskyni. Það eru þess vegna alls ekki allir að rækta til að græða. Um leið og þú ert farinn að rækta til að græða, þá kemur upp tilhneiging til að setja oftar á tíkur en gott þykir og hafa fleiri hunda en fólk getur séð um með góðu móti. Þú segir að Ásta setji ekki oftar á tíkur en “leyfilegt er”. Eru einhver lög til...