Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Hvað finnst ykkur um American Idol

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta er ekkert búið hér úti. Ég bý í Kanada og við fáum sjónvarpið frá Bandaríkjunum. Eins og kemur fram á Fox heimasíðunni eru núna 4 keppendur eftir. Þættirnir eru sýndir á þriðjudögum og fólk getur þá hringt inn og kosið og á miðvikudögum er svo aftur þáttur þar sem er sagt hver dettur út. Í kvöld á einmitt að fækka niður í 3.

Re: Spegill, spegill herm þú mér........

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er ein rás sem ég horfi á sem er með þátt um lýtaaðgerðir og manni finnst nú fólk bara yfirleitt vera mjög ánægt á eftir. Það var reyndar ein stelpa sem fór í brjóstastækkun sem fannst þau ekki vera nógu stór á eftir og fór aftur og þá var hún ánægð.

Re: kötturinn minn eiðileggur öll húsgögn

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Og ekki má gleyma að klippa klærnar oftar, þá eru þær ekki eins beittar. Ég reyni að klippa klærnar á minni einu sinni í viku. Nota bara venjulegar naglaklippur og tek bara rétt oddinn af þeim.

Re: Kattarmatur - tilraun 2

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég var að sjá það í imbanum hér í Kanada að eitthvað fólk sem átti veikan kött fór að gefa honum hráfóður, það er hakkað kjöt, kjúklingar, grænmeti og alles og það bara svínvirkaði og hann náði heilsu. Hins vegar er það ekkert gefins heldur.

Re: Hmmm!!

í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Farðu með hann á námskeið og spurðu hundaþjálfarann hvernig er best að taka á þessu. Eins og þetta hljómar þá ættirðu ekki að sleppa honum fyrr en þú finnur leið til að taka á þessu. Ég kannast við fólk sem fékk ársgamlan Setter. Þau fóru með hann í sumarbústað og þegar þau stoppa sleppur hann út úr bílnum, ræðst á lamb og hálfdrap það. Börnin náttúrulega horfa á þetta grátandi og pabbinn þurfti að fara til bóndans með lambið og borga skaðabætur þannig að það eru alls konar leiðindi sem geta...

Re: hvers vegna halda hund

í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þú gleymdir nokkrum ókostum. 10. Æla á gólfteppinu þegar þú kemur heim 11. Búið að éta öll stofublómin þín af því hann var veikur og komst ekki í gras. 12. Hann vekur þig á nóttunni ef hann er veikur eða langar á lóðarí. 13. Þú þarft að fara heim í hádeginu til að hundurinn sé ekki einn allan daginn og verður síðan að skreppa heim strax eftir vinnu í staðinn fyrir að fara á barinn með vinnufélögunum. Hins vegar skiptir það ekki nokkru máli hvað það eru margir ókostir. Fólk sem vill eiga hund...

Re: veggfóður

í Heimilið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Geturðu þá ekki bara pantað það að utan?

Re: Baðherbergi.

í Heimilið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er búinn að svara og ég er 33. En þú? :)

Re: Hvort virkar betur?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Fólkið sem ég umgengst hér í Kanada lætur sér nægja að reykja í partýjum og búið og það virðist ekkert hafa slæm áhrif á það. Bráðgáfað fólk margt af því og sumt heimskara bara eins og fólk almennt. Ég reyki ekki sjálfur og hef engan sérstakan áhuga á að prófa en mér finnst bara rugl að leyfa þetta ekki fyrir þá sem vilja. Kemur það einhverjum við þó einhver vilji frekar reykja en að fá sér í glas?

Re: Á að rústa menntakerfinu aftur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég var með félagsfræðikennara í Iðnskólanum sem hafði farið til Skotlands með einhverjum kennurum að kynna sér þetta starfsnám og hún sagði að það væri nú illt dæmi. Skólarnir væru tengdir atvinnulífinu á þann hátt að fyrirtæki pantar 7 saumakonur sem kunna að sauma vinstri ermar og þá er kallað í stelpurnar í fátækrahverfinu og þeim boðið þetta nám. Ég sel þetta náttúrulega ekki dýrara en ég keypti það því þessi kona var svolítið spes og líklega verið að ýkja þetta eitthvað. Alla vega sé ég...

Re: canada !!

í Ferðalög fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það eru heilar 9 búðir í borginni sem ég bý sem selja þessi hjól og þar af ein sem á leiðinni minni í vinnuna. Hins vegar er ég ekki á leiðinni að flytja heim en ég sé að þeir eru líka með seljendur í mörgum Evrópulöndum sem þú gætir kannski reynt að panta frá eða kannski þekkir einhvern þar sem getur kippt því með á leiðinni heim. Ég er ekkert á leiðinni að flytja heim, ekki einu sinni í heimsókn. Annars var einhver hérna á huga að tala um að hann pantaði á ebay og væri með samning við...

Re: hvað segir þetta ykkur?

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Er þetta tekið af bílar? Annars gæti þetta líka verið bílamál fyrir rómantík. Horfa á innra eðli manneskjunnar, ekki bara útlitið.

Re: Panasonic GD87e

í Farsímar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Tékkaðu á <a href="http://forum.gsmhosting.com/vbb/archive/forum/41-1.html">http://forum.gsmhosting.com/vbb/archive/forum/41-1.html</a> Mér sýnist vera fullt af hjálplegum einstaklingum þar.

Re: hárlos!!!!!!!!!!!!!!

í Heilsa fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ef það hefur verið að detta af þér hárið í brúskum, þá er eitthvað að. Hins vegar er eðilegt að hrynji af manni ca. 200 hár á dag. Sum fara á koddann, greiðuna, fötin eða fjúka burt í rokinu.

Re: canada !!

í Ferðalög fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég bý reyndar í Kanada en það er nú bara helvítí stórt land. Það er eiginlega ekkert sem þú getur gert til að sleppa við tollinn nema fara með það heim í pörtum í ferðatösku og reyna að smygla því inn þannig. Það er bæði tollur og VSK þannig að tollurinn sem er einhver prósenta fer ofan á verðið og svo VSK ofan á allt saman. Hvernig hjól er þetta annars?

Re: Afhverju þú ættir að setja X við...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég held að það sé nú ekkert sniðugt þetta námsstyrkjakerfi í Danmörku. Ýtir bara undir það að fólk hangi endalaust í námi og jafnvel ekkert að spá í hvort það gæti síðan fengið vinnu út á það þegar það væri búið að klára. Ég bjó líka í Danmörku í smátíma og kynntist þá náunga sem var með 2 háskólagráður en var að vinna á barnaheimili. Skömmu seinna hætti hann þar og fékk vinnu sem aerobic kennari. Danska ríkið hefði nú betur sparað námsstyrkina hans.

Re: Baðherbergi.

í Heimilið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er sko ekki stelpa þannig að ég hafði smá áhyggjur af að ég mætti ekki svara :)

Re: Nokkrar góðar ástæður...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Af hverju þurfa börn að læra um líf Jesú? Ef þú vilt að barnið þitt læri um líf Jesú, getur þú þá ekki bara kennt því? Annars efa ég það ekki að ef kristnifræði væri tekin út úr skólanum myndi kirkjan reyna að gera meira til að höfða til barna á skólaaldri.

Re: Auglýsingarnar!!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þeir verða að græða smá líka. Það er ekki eins og það sé afnotagjald á Huga.

Re: Kennarar sem sýna enga virðingu!

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þið þurfið að kvarta yfir ákveðnum atvikum og lýsa nákvæmlega hvað gerðist, hvað sagði kennarinn við hvern og hvenær það gerðist og hvort þessi manneskja gaf eitthvað tilefni til. Það er bara rugl að það sé ekkert hægt að gera. Skólastjóri getur rekið og ráðið og ef einhver kennari er með dónaskap og leiðindi við nemendur að fyrra bragði, tala nú ekki um að gera lítið úr þeim fyrir framan alla, þá finnst mér það bara ágæt ástæða fyrir brottrekstri. Áður en til þess kemur getur skólastjórinn...

Re: Sveppate???

í Heilsa fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mamma var með þetta líka. Mjög vinsælt fyrir ca. 10 árum. Þetta virkar þannig að þú ert með sveppinn í skál eða fötu inni í ísskáp. Hann er stór og flatur eins og pönnukaka og hann liggur í vatni. Sveppurinn litar vatnið brúnleitt og bætir einhverjum efnum í það. Það er þetta vatn sem sveppurinn liggur í sem er sveppateið svokallaða. Þú tekur smá af því á hverjum degi og drekkur, heitt eða kalt og bætir bara venjulegu vatni hjá sveppnum í staðinn. Á einhverra daga fresti býr sveppurinn til...

Re: Nokkrar góðar ástæður...

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Skv. Hagstofunni voru 86,6% þjóðarinnar skráð í Þjóðkirkjuna 1. des. 2002. Ábyggilega eru margir af þeim ekki sérlega spenntir fyrir kirkjunni og eru þar bara vegna þess að þeir nenna ekki að skrá sig úr henni. Alla vega finnst mér að það eigi að aðskilja ríki og kirkju og að það eigi ekki að kenna ein trúarbrögð í skólum fremur en önnur. Fólk sem vill að börnin þeirra séu trúuð getur sjálft farið með þau í barnamessur og kennt þeim bænir heima hjá sér. Skólinn hefur enga ástæðu til að...

Re: Er "Fattarinn" í lagi?

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það tók mig ca. hálfa mínútu að fatta muninn. Sniðugt.

Re: ????

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það var 249 kr. á tímann í fyrra en þeir eru ekki búnir að setja nýjar upplýsingar inn á vefinn sinn. Þú getur séð kjörin í fyrra á umsóknareyðublaðinu fyrir 14 ára á <a href="http://www.vinnuskoli.is/nytt/skrar/14ums.htm">http://www.vinnuskoli.is/nytt/skrar/14ums.htm</a

Re: Aspartame

í Heilsa fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég hef heyrt ýmislegt ljótt um þetta efni líka en ástæðan fyrir að ég nota það ekki er nú aðallega sú að mér finnst það ekkert gott. Svona gervilegt eitthvað.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok