Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: snobb á íslandi

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sammála. Fyrir svona 15 árum var Hagkaup að selja frekar léleg föt sem entust stutt en í dag eru þeir að selja alveg ágæt föt, alla vega er það mín reynsla. Alveg sammála með skóna líka. Ég hef nokkrum sinnum keypt mér skó þar og þeir eru drasl. Þessar einu Diesel gallabuxur sem ég keypti mér og kostuðu fúlgu entust heldur ekkert sérlega lengi eða um 6-8 mánuði og það var líka reynsla mín af þessu eina skipti sem ég keypti Levi's. Ef maður skoðar fötin og sér að það er gott efni og vel...

Re: Hvort virkar betur?

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Af hverju heldur þú að allir myndu hætta að drekka og fara að reykja hass? Myndir þú gera það? Þar sem ég bý í Kanada hef ég orðið var við að fólk reykir mun meira hass en heima á fróni en ég sé ekki að það sé neitt verra. Fólk reykir í partýjum eins og það drekkur í partýjum og fyrir utan það gerir svo bara yfirleitt allt annað sem venjulegt fólk gerir, svo sem stundar skóla og vinnu, giftir sig, eignast krakka o.s.frv. Ég bara sé ekki hvað er svona slæmt við þetta.

Re: veggfóður

í Heimilið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Gula línan er með númerið 1444 og heimasíðu á <a href="http://www.gulalinan.is/">http://www.gulalinan.is/</a

Re: uberman

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ok, ef aðeins 1% nauðgunarákæra eru falskar, hvernig á að vita hvaða 1% það eru? Sönnunarbyrðin er bara mjög erfið í þessum málum og þess vegna er svona sjaldan dæmt í þeim. Ég er viss um að þú vildir ekki að bróðir þinn eða sonur færi í steininn eða væri lagður í einelti af þjóðfélaginu vegna þess að kona hefur ásakað hann um nauðgun en engin leið að vita hvort sé satt eða ekki. Eða finndist þér bara allt í lagi að dæma alla seka sem eru ákærðir þar sem það eru hvort sem er bara 1% af þeim...

Re: Önnur stig = 0

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er samt ekki endilega allt bara “önnur stig”. Það var sá tími sem maður fékk stig fyrir að svara könnunum, korkum og greinum þannig að margir af ofurhugunum gætu verið með fullt af stigum þar líka.

Re: Börnin okkar og Kostningar !!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Lestu fyrsta svarið mitt við þessari grein þar sem ég tala um róló í mínu hverfi. Það var ógeðslegur staður og konurnar sem unnu þar höfðu engan áhuga á börnum heldur sátu þær inni í skúrnum sínum og reyktu á meðan krakkarnir sátu og átu sand úti á velli. Í mesta lagi komu þær út ef einhver fór að grenja. Klósettið var í hinum helmingnum af skúrnum þar sem dótið var geymt og stundum voru þær svo seinar að opna þegar einhver krakkinn þurfti að pissa að hann pissaði í sig. Ég veit um dagmömmur...

Re: Viðbjóðsleg auglýsing hjá VG

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hins vegar fáum við ekkert að vita hvað leyniþjónustan hefur fundið. Bandaríkjastjórn segir okkur e.t.v. hvað leyniþjónustan eigi að hafa fundið en það þarf ekkert endilega að vera satt eða hvað?

Re: Börnin okkar og Kostningar !!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ef hún var svona hneyksluð, þá hefði hún bara ekkert átt að hafa hann á þessum gæsluvelli eða þá kvarta við borgina um að fá þessum reglum breytt. Ef þú kemst að því að einhver sem er að passa barnið þitt stendur sig ekki eins og þú vilt, þá læturðu ekkert þá manneskju halda áfram að passa eða hvað? Það getur varla verið neitt nýtt að það sé ekki skipt á börnum á róló. Það hefur ábyggilega aldrei verið gert en ég held reyndar að hér áður fyrr hafi börn líka verið klósettvanin fyrr.

Re: Konur í stjórnunarstöðum

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta með 50% hlutfallið. Þetta er alltaf sett fram með þeim hætti að það séu ein kona og einn karlmaður að sækja um stöðu og þau eru bæði jafnhæf. Hins vegar finndist mér gaman að vita hvort það er jafnt hlutfall kvenna og karla sem sækir um þessar stöður. Ef konur væru t.d. ekki nema 1/3 af þeim sem sækja um stjórnunarstöður á annað borð, væri þá ekki réttlátara að stefna að því að hlutfallið yrði 1/3 konur frekar en helmingur?

Re: Hvað finnst ykkur um American Idol

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég veit ekki hvað þið eruð mörgum þáttum á eftir en miðað við upphaflegu greinina hérna hverjir eru eftir þá ætti Corey að hafa verið hent út síðast hjá ykkur þó hann hafi ekki verið kosinn út heldur var vísað úr keppni vegna þess að hann sagði þeim ekki að hann væri með kæru á sér. Trenyce og Carmen lentu í neðstu sætunum í þeim þætti en þú hefur eitthvað misskilið. Þær voru ekki báðar reknar heldur var þeim báðum leyft að vera áfram vegna þess að Corey var rekinn.

Re: Hvað finnst ykkur um American Idol

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þú getur séð hverjir eru dottnir út á http://www.idolonfox.com/contestants/ en endilega ekki vera að segja frá því hér því það vilja kannski ekkert allir vita það fyrirfram.

Re: Auglýsing einkamal.is

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég heyrði einhvern tímann að maður hafi fundist í stíu mjaðmagrindarbrotinn og með allt niðrum sig. Það var eitthvað fátt um svör hjá félaganum en líkast til ætlaði hann að eiga ástarfund með merinni sem var í stíunni en hún vön að fá eitthvað stærra þannig að hún hefur líklega bakkað og kramið hann.

Re: Skapa störf...

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég held ekki að það myndi þýða neitt að setja miða því þeir leita ábyggilega samt og finna ábyggilega eitthvað þar sem þetta er blokk og eflaust einhverjir að henda flöskum í gáminn. Ég set mínar yfirleitt bara við hliðina til að fólkið geti gengið að þeim.

Re: Hvað finnst ykkur um American Idol

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Vá, 32 þættir. Það er líklega rétt. Það eru fyrst allir undanrásaþættirnir og svo þegar er komið niður í 12 keppendur eru 24 þættir eftir, 2 á viku, fyrst þar sem þau syngja og svo þegar úrslitin eru kynnt. Ég býst við að þeir gætu ekki haft símakosningu þannig að úrslitin væru kynnt strax vegna þess að þættirnir eru ekki sýndir á sama tíma í Bandaríkjunum vegna tímamismunar. Alla vega finnst mér alltaf gaman að sjá þó þetta sé sama fólkið að syngja hver stendur sig vel og hver illa. Stundum...

Re: Síminn minn heldur að hann sé fax-tæki !!!!!

í Farsímar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvernig fax tákn? Fannstu enga mynd af því í leiðarvísinum til að sjá hvað það gæti þýtt? Annars kannski bara best að fara með hann þangað sem þú keyptir hann og sjá hvort fólkið í búðinni getur reddað þessu fyrir þig.

Re: Kennarar sem sýna enga virðingu!

í Skóli fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég myndi spyrja á skrifstofu skólans eða námsráðgjafann hvort kennarinn hafi leyfi til að halda ykkur lengur og hvort þið fáið þá seint í næsta tíma á eftir. Ég hugsa ekki en ef þú spyrð, þá hefur þú það svart á hvítu úr þínum skóla. Ég myndi líka skrifa niður nákvæmlega þá atburði þegar kennarinn er með leiðindi við nemendur og dagssetningar. Nákvæmlega hvað gerðist, alls ekki reyna að gera ykkur betri eða kennarann verri og ef þetta er búið að gerast í nokkur skipti, panta þá viðtal hjá...

Re: Hræðilegt ástand!!!!!!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þú getur prófað að tala við sálfræðing hvernig er best að venja hana af þessu en annars hef ég heyrt um börn sem hafa verið að koma uppí allt uppí 17-18 ára aldur og alveg ræst úr þeim en mér finnst það nú kannski einum of. Kemur hún uppí af gömlum vana eða er hún myrkfælin? Hvernig væri þegar þú vaknar við að hún kemur uppí á nóttunni að þú leiðir hana aftur yfir í hennar rúm? Ef hún er hrædd getur þú haft ljós frammi á gangi eða setið hjá henni í smástund þar til hún sofnar. Hún hlýtur að...

Re: veggfóður

í Heimilið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta var rosalega vinsælt fyrir ca. 25-30 árum. Hefurðu prófað að spyrja í veggfóðursbúðum eða hringja í gulu línuna?

Re: Hvað finnst ykkur um American Idol

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mér finnst reyndar skemmtilegast þegar þeir eru að byrja með keppnina og eru að prófa allt þetta hræðilega fólk sem heldur að það geti sungið og er alveg hræðilegt. Sigurvegarinn í fyrra er nýbúin að gefa út disk og líka sá sem var nr. 2. Sú sem var nr. 4 en hefði líklega átt að vera nr. 3 miðað við hæfileika er að leika í Boston Public þáttunum þó hún verði líklega bara eitt season því hún leikur nemanda. Þetta er ekkert vitlaus keppni því sigurvegarinn fær mikla athygli og hjálp við að...

Re: Til allra!

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ef það er ástæða til að loka vefum þar sem strákar tala illa um kvenmenn, er þá ekki líka ástæða til að loka vefum þar sem stelpur tala illa um karlmenn?

Re: Skapa störf...

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er í Kanada og hér er sett eitthvað smá skilagjald ofan á flöskurnar en það er líka allt morandi í fólki sem hreinlega skríður ofan í ruslagámana og rífur gat á alla poka til að leita að flöskum. Jafnvel þó það sé ágætt að einhver sjái um að endurvinna þá verð ég að segja að mér finnst þetta ekkert sérlega geðslegt og mér finnst það heldur ekkert sérlega spennandi að eitthvað lið sé að fara í gegnum ruslið mitt :(

Re: Kanínur

í Gæludýr fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta þykir bara eðlilegt hér í Kanada og það er hægt að fá kanínukjöt í mörgum búðum rétt eins og kjúkling og annað kjöt. Þeir myndu hins vegar líklega segja að við eigum eitthvað bágt að éta hesta því þeir éta ekki hesta.

Re: Sannleikurinn um HABL ... framhald

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þeir hafa einangrað fólk sem álitið er að hafi sjúkdóminn þangað til hægt er að dæma um hvort það hafi hann eða ekki. Þeir sem veikjast eru geymdir í einangrun á spítölum. Í 20% tilfella þarf að setja fólk í öndunarvél. Ca. 10% þeirra sem fá sjúkdóminn deyja. Hinir hafa náð sér aftur en nýjustu fréttir frá Hong Kong eru að einhverjir sem búið var að útskrifa hafi veikst aftur. Líklega eru einhverjir vísindamenn að vinna að bóluefni eða lækningu en ég hef ekki heyrt neinar fréttir af því. Þú...

Re: Nicky í Malcolm in the middle

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eldra fólk er oft fengið til að leika unglinga vegna þess að þá eru þeir ekki lengur skólaskyldir og framleiðandinn þarf ekki að ráða kennara fyrir þá auk þess sem þeir hafa rýmri reglur um vinnutíma. Eldri börn eru líka oft fengin til að leika yngri börn vegna þess að það er auðveldara að vinna með þeim. Malcolm sjálfur (Frankie Muniz) er fæddur ‘85 en leikur 14-15 ára strák. Sá sem leikur stóra bróðurinn Reese er í rauninni yngri þar sem hann er ’86 módel. Dewey er '91 módel. Erfiðara að...

Re: Hjálp takk

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 1 mánuði
Farðu á <a href="http://www.google.com/search?q=dana+carvey">http://www.google.com/search?q=dana+carvey</a
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok