Er með smá fyrirspurn um sveppate.
Þ.e.a.s. að það eru heilir sveppir (veit ekki hvað þeir heita) og er einhver rútína með þá.
Það á t.d. að taka einn svepp og grafa hann í garðinum með einhverri athöfn sem ég veit ekki nánari deili á.

Sveppirnir eru að ég held soðnir í vatni eða látnir liggja í heitu vatni og er það síðan drukkið.

Móðir mín var með svona sveppi en man ekki hvað þeir heita eða hvar hægt er að nálgast þá.
Hún er í mikilli þörf fyrir að finna þá aftur því þeir virkuðu svo vel á hana þegar hún drakk þetta te á sínum tíma.

Getur einhver sagt okkur hvaða sveppir þetta eru og hvar hægt er að nálgast þá?
Værum þakklát fyrir upplýsingar um þetta.
Kveðja demco