Menn eiga að vera þyngri vegna meiri vöðvamassa en BMI gerir ekki greinarmun á kyni. BMI er reiknaður þannig að þú tekur hæðina í metrum og margfaldar hana með sjálfri sér og deilir svo þyngdinni með því sem kemur út. Ef einhver er 170cm og 70 kg, þá er það 70/(1,70*1,70) eða 24,2. Skv. doktor.is þá er BMI 24 í lagi. Ef þú vilt reikna út öfugt til að fá út hvað þessi einstaklingur ætti að vera þungur geturðu reiknað það með BMI*1,70*1,70. T.d. ef hann vill hafa BMI milli 19 og 24 sem er...