ég er búin að vera að taka 2 hylki á dag í 3 vikur af svona hárkúr sem hefur að geyma ýmis vítamín…ókei, það festist minna hár á hárburstann, en ekki heilu brúskarnir sem hægt var að tína úr kollinum á mér…en….samt sé ég örfá hár á koddanum mínum…ekki mikið samt en kærastinn minn er alltaf að tína hár af lakinu á hverjum degi sem eru úr mér og hendir í ruslið. Gerist þetta hjá öllum að alltaf einhver hár eru á lakinu? Hann sér hár af mér útum alla íbúð. Hann sá eitt sinn eitt hár upp í eldhússkáp sem var af mér og ekki veit ég hvernig það komst þangað.