Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Kynning á göldrum

í Dulspeki fyrir 23 árum
Já, það var ég. Tókst reyndar ekki alveg nógu vel hjá mér því hún er ekki nógu hraðvirk.

Re: Snobb?

í Hundar fyrir 23 árum
Þessi blanda sem þú átt er mjög algeng í Bandaríkjunum og gengur undir nafninu Golden-Lab. Annars ekkert því til fyrirstöðu að þú standir fyrir því að stofna veiðihundaklúbb sem er opinn öllum og býður uppá námskeið fyrir alla án tillits til þess hvort þeir eru hreinir eða ekki. Sumir sem eiga veiðihunda gefa bara skít í þetta snobb hvort sem er. Ég heyrði einhverjar kellingar vera að tala um það á hundasýningu fyrir nokkrum árum að maður einhver ætti ótrúlega fallegan Golden Retriever....

Re: Jæja...

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Öll lönd hafa sína kosti og galla og ef þú heldur að Danmörk eigi vel við þig, þá er bara um að gera að prófa en endilega ekki fara að flýja xd :)

Re: sýning íshunda

í Hundar fyrir 23 árum
Ég er bara ekki nógu klár á því hvernig þetta virkar en ef þú byrjar að rækta undan hundi sem er ekki viðurkenndur, hvernig geta afkvæmin þá einhvern tímann orðið viðurkennd? Af hverju ekki bara hafa þennan Dalsmynnishund sem gæludýr og flytja inn hunda til ræktunar frá viðurkenndum ræktendum úti? Þá hlýtur HRFÍ að þurfa að viðurkenna þig.

Re: Ingibjörg ekki á þing :D

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Mér er nokk sama hvort hún fer inn eða hvað en er hún ekki varaþingmaður? Væri ekki auðvelt fyrir xS að fá einhvern ofar á lista til að fórna sér og leyfa henni að fara inn.

Re: eitt sem ég skil ekki?

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Það fer eftir því hver hefði hugsað sér að ráðast á okkur og hvers vegna. Ef það væru einhverjir Osama gæjar, þá hafa þeir engan áhuga á fiskimiðunum, bara að koma höggi á Bandaríkjamenn. Redda sér einni sprengju og reyna að sprengja eitthvað á vellinum og nokkra íslendinga sem vinna þar í leiðinni. Annars held ég að líkurnar á því að það verði ráðist á Ísland séu hverfandi. Við eigum frekar friðsama nágranna og restin af heiminum veit varla að við erum til.

Re: Katta "Abuse"

í Kettir fyrir 23 árum
Rændu kettinum og farðu með hann í Kattholt.

Re: móður lausir hvolpar

í Hundar fyrir 23 árum
Tékkaðu á <a href="http://www.peteducation.com/article.cfm?cls=2&cat=1651&articleid=863">http://www.peteducation.com/article.cfm?cls=2&cat=1651&articleid=863</a> Vonandi reddast þetta hjá þér :)

Re: eitt sem ég skil ekki?

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Þeir sem eru á móti hernum segja það einmitt líklegra að einhver myndi vilja ráðast á Ísland vegna þess að það er bandarísk herstöð. Svo er líka spurning hvort Bandaríkjamenn væru eitthvað að verja okkur þó það gerðist eitthvað. Herstöðin hafði alltaf þann megin tilgang að verja austurströnd Bandaríkjanna fyrir rússneskum kafbátum sem gætu reynst að læðast hér framhjá. Nú er sú hætta ekki lengur fyrir hendi þannig að þeir vilja pakka saman og fara en ríkisstjórnin er á hnjánum að biðja þá að...

Re: Jæja...

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Ha, bara flýja land? Það koma nú kosningar eftir þessar og ríkisstjórnir eftir þessa og þar að auki er þetta allt sama tóbakið eða alla vega mjög svipað tóbak. Ég held alla vega að það sé algjör óþarfi að flýja land þó manni líki ekki þeir sem eru í stjórn.

Re: Jöfnunarmenn?!?!

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Ég myndi endilega vilja sjá landið eitt kjördæmi. Þá gætu flokkar bara gert út um það í prófkjörum hvað það koma margir á hverjum lista frá landsbyggðinni og hver flokkur hefði bara einn lista með 60 manns á. Annars þá þóttust þeir vera að jafna atkvæðisréttinn með síðustu kjördæmaskiptingu en það hefur greinilega ekki tekist betur. Þeir ætluðu að fara þá leið að hafa ca. jafnan íbúafjölda og þingmanna fyrir hvert kjördæmi en það gefur auga leið að Reykjavíkurkjördæmin og Suðvestur með 43-49...

Re: Jöfnunarmenn?!?!

í Stjórnmál fyrir 23 árum
Ef einn flokkur er mjög nálægt því að ná inn manni í mörgum kjördæmum, þá hefur hann kannski færri þingmenn í heildina heldur en hann ætti að hafa samkvæmt því fylgi sem hann hefur á landsvísu. Þá fær hann jöfnunarmann til að bæta sér það upp. Ég er samt ekki alveg klár á hvernig það er valið hver kemur inn sem jöfnunarmaður. Líklega bara næsti maður inn.

Re: Skotið á kött !

í Kettir fyrir 23 árum
Maður getur ekki stjórnað öllu í kringum sig. Ef mamma þín væri með ofnæmi fyrir fuglum, myndir þú þá vera útí garði að skjóta skógarþresti? En ef hún væri með ofnæmi fyrir grasi? Talaðu frekar við bæjarstjórn og fáðu þá til að setja reglur um kattahald. Ef þú drepur kött sem einhver annar á, þá ertu að brjóta lög og fyrir utan hvað það er ljótt að drepa dýr sem einhver annar á, jafnvel þó það sé í garðinum þínum, þá lendir það á sakaskrá hjá þér ef það kemst upp um þig og það mun fylgja þér...

Re: lærdómur

í Skóli fyrir 23 árum
Að flokka í orðflokka nýtist ábyggilega þeim sem ætla að verða íslenskukennarar og líklega líka þeim sem læra tungumál. Það þarf ekki að kenna það að sitja kyrr í tímum í HÍ og hlusta á kennarann vegna þess að það er búið að kenna það í grunnskóla, alla vega 99% nemenda búnir að ná því ;) Í HÍ er að sumu leyti merkt við mætingu líka. Alla vega í verk og raun þegar ég var það þá var 75 eða 80% mætingarskylda í dæmatíma og sömuleiðis sama skilaskylda á heimadæmum og 100% mætingarskylda í...

Re: Stig

í Hugi fyrir 23 árum
Þetta er held ég aðallega notað til að sýna stjórnendum hver er aktívur á hvaða áhugamáli ef t.d. einhver sækist eftir admin stöðu en reyndar gætu þeir alveg eins notað leit til að sjá hvað viðkomandi hefur verið að gera þar. Svo eru líka ofurhugar á hverju áhugamáli og hægt að keppast um að komast á þann lista. Mér skilst að það séu orðið bara stig fyrir að skrifa greinar, senda inn myndir og kannanir. Stigahórur er fólk sem skrifar mjög lélegar greinar, jafnvel copy-paste sem virðast vera...

Re: lítið betur eftir börnunum ykkar

í Börnin okkar fyrir 23 árum
Skóladagheimili eða gæsla í skólanum, er það ekki nokkurn veginn sami hluturinn? Ég sagði aldrei að það væri eðlilegt að 8 ára börn væru ein heima en það var algengt þegar ég var lítill. Ég var aðallega að benda á það misræmi sem er í því þegar fólki finnst ekkert mál að barnið sé eitt heima frá 3-5 á daginn en eitthvað miklu verra ef það er eitt heima, kannski bara í hálftíma, um 9 leytið. Eins og þegar það eru auglýsingar í sjónvarpi á kvöldin þar sem er sagt “Kl. er 10, veistu hvar barnið...

Re: Ósiðlegt

í Deiglan fyrir 23 árum
Fólk á bara ekkert að vera að versla við búðir sem eru að auglýsa vöru trekk í trekk sem þeir eiga svo ekki til.

Re: Ósiðlegt

í Deiglan fyrir 23 árum
Ég bara man þegar BT opnaði, þá voru rosa auglýsingar og það var eitthvað 3ja tíma röð að komast inn í búðina og svo var allt búið sem hafði verið auglýst. Það eru víst engin lög varðandi það að þeir þurfi að auglýsa að það sé takmarkað magn. Svo framarlega sem þeir eiga eitt tæki þegar auglýsingin fer í prentun, þá er þetta víst löglegt. Í sambandi við hvað Elko reynir að selja manni, þá keypti ég sjónvarp hjá þeim fyrir nokkrum árum og sölumaðurinn ráðlagði mér að kaupa Sony. Hann sagði...

Re: The muppet show

í The Sims fyrir 23 árum
Nokkrum árum? Voru þetta ekki endursýndir gamlir þættir? Þessir þættir voru framleiddir 1976 til 1980 og voru þá sýndir á RÚV. Á <a href="http://www.daryl.barber.btinternet.co.uk/guests.htm">http://www.daryl.barber.btinternet.co.uk/guests.htm</a> er sagt hvaða gestir voru í þáttunum og hvað varð um þá. Fyrirtækið fór síðan að framleiða kvikmyndir með brúðunum og það var líka teiknimynd um þær sem hét Muppet Babies og gæti hafa verið sýnd á Stöð 2 fyrir nokkrum árum. Jim Henson, sá sem...

Re: lítið betur eftir börnunum ykkar

í Börnin okkar fyrir 23 árum
Það fer samt bara mikið eftir krökkum hvað þeir þola að vera mikið einir heima. Það er í rauninni ekkert meira sem þeir geta farið sér að voða á kvöldin en á daginn og það var alsiða þegar ég var að alast upp að krakkar voru með lykla og voru einir heima eftir að skóla lauk þar til foreldrarnir komu heim. Ég veit ekki hversu algengt það er í dag því fólk getur sett þá á skóladagheimili.

Re: Foreldrar hittast... hjálp

í Rómantík fyrir 23 árum
Ef þetta er allt sæmilega eðlilegt fólk, þá gengur það ábyggilega fínt.

Re: Hjálmar

í Hestar fyrir 23 árum
Það er nú ekki eins og fullorðið fólk sé alltaf mjög góðar fyrirmyndir og þú þarft eiginlega bara frekar að kenna barninu að það eigi ekki að gera eitthvað sem það veit að er vitlaust eða hættulegt þó aðrir geri það. Hjálmarnir eru að koma meira inn. Það tekur bara tíma að breyta svona. Svo maður beri þetta saman við reiðhjólahjálma, þá var enginn með svoleiðis þegar ég var krakki, veit ekki hvort þeir voru einu sinni til en núna eru flestir krakkar með þá.

Re: Vantar hjálp!!!!

í Tíska & útlit fyrir 23 árum
Prófaðu að spyrja leiðbeingastöð heimilanna: Leiðbeiningastöð heimilanna Veitir upplýsingar um heimilisstörf, heimilistæki og heimilishald. Kvenfélagasamband Íslands. Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík. Skrifstofutími kl. 9-17 virka daga, símatími kl. 10-12 og 13-15, sími 551 2335. Fax: 562 5150. Netfang: kvenfels@centrum.is Annars hugsa ég að það myndi virka best að blanda saman klór og vatni í bala og láta svo pilsið liggja í því nema hræra í til að það liggi ekki alltaf í sömu...

Re: sýning íshunda

í Hundar fyrir 23 árum
Ef Ásta var rekin úr HRFÍ fyrir að falsa ættbækur sem sagt er að hafi verið sannað með DNA rannsóknum, þá átt þú þess að gjalda að þú ert að rækta undan hundi sem gæti verið með falsaða ættbók og ekki víst að foreldrar séu þeir sem þeir eiga að vera og að hundurinn sé 100% hreinn.

Re: Skotið á kött !

í Kettir fyrir 23 árum
Það þarf ekki að heyrast neitt, bara einhver að sjá þig við þessa iðju eða þú grobbar þig af því við vitlausan aðila.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok