Hvaða máli skiptir það eiginlega hvernig Davíð lítur út? Eru það ekki verkin sem tala? Sumum líkar hans verk og öðrum ekki, þeir kjósa sem vilja. Svona í framhjáhlaupi, af hverju varstu að senda mér þennan kork í skilaboðum? Spammaðirðu alla Hugara eða hvað? Nú bý ég í Kanada þannig að ef ég hefði ætlað að kjósa á annað borð, þá væri ég búinn að því utankjörstaða.