Góður sigur hjá Arsenal 4-0, Já það er nú varla hægt að ákæra þá þegar bæði lið voru að spila leik í deildinni daginn áður. Einhvers staðar þarf að draga mörkin. Þessi lið ásamt Liverpool þurfa að fara í gegnum stíft leikjaprógramm stóran hluta vetrarins og það er varla hægt að ætlast til þess að hægt sé að stilla upp sínu besta liði í hverjum einasta leik. Meistaradeildin hefur forgang, síðan deildin-bikarinn og loks deildabikarinn.