Grindavík fær Bjarna og feitan pakka með Allar líkur eru á því að Bjarni Jóhannsson verði kynntur sem nýr þjálfari Grindavíkur á fimmtudaginn. Milan Stefán Jankovic, sem stýrt hefur liði Grindvíkinga undanfarin ár, er þó ekki á förum frá félaginu því hann á að taka við sem yfirþjálfari yngri flokka félagsins. Eyjólfur Sverrisson mun væntanlega ganga til liðs við Grindavík og miklar líkur eru á því að Sverrir bróðir hans fylgi Bjarna. Eyjólfur hefur sagt að ef hann spilaði á Íslandi yrði það undir stjórn Bjarna. Þetta er síðasta ár hans sem atvinnumaður með Herthu Berlín í Þýskalandi. Þetta er mikill styrkur fyrir Grindvíkinga sem voru með sterkan mannskap fyrir. Það er alveg ljóst að lið þeirra muni verða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn á næsta ári.

En þá að herbúðum Fylkis, að sögn Kjartans Daníelssonar, framkvæmdastjóra félagsins, fer eitthvað að gerast í þjálfaramálum í Árbænum í vikunni. Heyrst hefur að Aðalsteinn Víglundsson sé efstur á óskalista félagsins. Varðandi leikmannamálin hjá Fylki er ljóst að ekki verður samið við Trinidadmanninn Errol Eddison McFarlane, sem farinn er til síns heima. Alexander Högnason ætlar að hætta og Ólafur Ingi Skúlason er á förum til Arsenal. Þó eru líkur taldar á því að hann verði lánaður frá London í Árbæinn á næstu leiktíð. Þó er ljóst að bikarmeistararnir hafa orðið fyrir blóðtöku og slæmt mál fyrir þá að missa Sverrir og fá ekki Eyjólf. En Fylkismenn hafa væntanlega ráð undir rifi hverju og verður spennandi að sjá hvað þeir gera í sínum málum.