Patrick Vieira hefur sagt að hann vilji fara frá Arsenal til þess að takast á við nýja áskorun. Hann segir að þessi ákvörðun tengist ekki peningum þar sem þeir séu ekki “issue” og að þetta tengist Arsenal ekki á nokkurn hátt, þetta sé hans persónuleg ákvörðun og eingöngu “knattspyrnuleg”, hann sagði einnig að eftir 5 ár á Highbury mundi hann ekki endurnýja samning sinn og vonaði að þessi mál gætu verið leist þegar hann kæmi frá fríi í Bandaríkjunum.
Þetta kemur væntanlega sem mikið áfall fyrir Arsenal sem og stuðningsmenn þar sem Vieira var einn besti leikmaður félagsins á tímabili sem leið.