Góður mórall hjá Leeds Leedsara hafa keypt forljótan gulan þríhjóla bíl (sjá mynd) sem þeir ætla að nota í skemmtilegum leik fyrir alla heimaleiki vetursins. Leikmenn liðsins ætla að kjósa þann sem hefur staðið sig verst á æfingum vikunar til að keyra þennan bíl að Elland Road á leikdag. Er þetta gert til að fá menn til að leggja harðar að sér að æfingum og einnig til að fá smá húmor í gang. Bíllinn verður svo seldur á uppboði í lok tímabilsins með eiginhandaráritunum allra leikmanna Leeds til styrktar góðs málefnis.
Gaman verður að sjá hver kemur akandi á druslunni fyrir leik Leeds og Southampton á laugardaginn kemur.