Það voru mikil mistök hjá Arsenal að selja þennan firnasterka miðjumann til Barcelona, og það gegn vilja hans. Hann hefur verið primusmotor Arsenal og franska landsliðsins síðustu þrjú ár. Hver man ekki eftir markinu sem hann skoraði í úrslitaleiknum gegn Brössum 98", (snilld) Sem Arsenal maður skildi ég hvað Wenger var að gera með að selja hann líka með Overmars. Ég tel að Petit sé alveg stórkostlega vanmetinn leikmaður og það lið sem hreppir þennan gæðaleikmann á eftir að styrkjast...