Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

kamalflos
kamalflos Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
1.170 stig
Áhugamál: Stjórnmál, Hip hop

Kæri Hlustandi - Fresh shit (8 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Varð að fá að setja eitthvað hérna inn, peace Kæri hlustandi, mér er skít'sam'um þig Kájoð grípur mæka en reppa bakgrunninn vil ekki frægð, vildi að hún væri afnumin því ég vil ekki að fávitar séu að tal'um mig skítsama um einhverja vinsældalista svo lengi sem rapparar gera indælis diska Þegar þeir segja Kájoð nýliða verður hann mjög sár 'búinn að vera að rappa í cirka svona sjö ár' Tala ekki eins og það sé morð á kreiki þarf ekki orðaleiki heldur fokking skorða leikinn Þeir sem vilja stríð...

Öryrkjabandalagið (4 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Öryrkjabandalagið er ekki hljómsveit! Ég veit að fólk sendi þetta í E-mail.. En ef ég hefði sent Led Zeppelin, hefði hún fengið að koma inn? Jimmy Page hefur gert hiphop lög, og mig minnir að þeir hafi komið til Íslands!

Skiptineminn Achmed (7 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þetta er mjög gott lag, pólitískur áróður og góð ádeila á íslenskt samfélag. Góðir textar on the real!

Komandi Kronik kvöld (3 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég veit að á Airwaves munu Lords of the Underground spila og er það mjög gott mál. Og þar sem við erum komin í old school getum við þá ekki bara farið ennþá lengra og fengið Gil Scott-Heron til þess að spila á næsta kronik kvöldi? Ég veit að hann var í fangelsi árið 2001 en ætti að vera kominn út. Ég skora á kronik yfirvöld að fá hann…hann er væntanlega ekkert alltof dýr og ætti að laða að allskonar crowd.

Ice Cube (4 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ég las greinina hér að ofan um Ice Cube og fannst hún ekkert sérstök, t.d. vegna þess að þar var nokkuð um staðreyndavillur. Mér fannst reyndar mörg svörin varhugaverðari… Sko… Ice Cube er einn af áhrifameiri röppurum í sögunni, og t.d. var honum kennt um L.A. óeirðirnar af sumum bandarískum fjölmiðlum. Ég held líka að versið hans í Fuck the police tali sínu máli, hann var á undan sinni samtíð í flæði. Í dag er hann ekki eins pólitískur, og hreint út sagt ekki eins góður, en ef að fólk lítur...

Halfvitar (12 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Thar sem eg hef ekki postad lengi a huga, langadi mig bara ad segja eitt ad lokum, flestir herna eru algjorir halfvitar Og ja McAnarchy, eg vona ad thu filir mig ekki sem rappara, thvi thu ert heimskur Talar um underground, bla bla bla Eg var ad kaupa Murs diskinn, en Murs er einmitt hja Def Jux, i Best Buy, en their hafa mjog lelegt urval af rappi Thar voru einnig Eastern Confernce allstar diskurinn og fleira fra theim. Geridi thad, haettid ad posta og farid ad gera tonlist, faggar BTW eg er i NY

Hugur ofar efni (4 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum
Spurningin er ekki hvað get ég gert fyrir ykkur heldur hvað þið gerið fyrir mig - vonandi skiljiði og fallið ekki í yfirlið hugur ofar efni - heili ofar líkama ráðist á mig, mér er skítsama sendið mig á spítala en þegar ykkar fals fræjum er sáð í jarðveginn og viskuleysi er í algleymi þá kryddið þið á harmleikinn Þið alið æskuna upp í lygum og blekkingu eyðið þeirra þekkingu þar til þau mynda vart setningu með ykkar þrá í ríkidæmi - þið náið markmiðum með barsmíðum hagræðið sannindum,...

Íþróttamót hiphopara - framhald (8 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum
Ég var að lesa svörin við póstinum og ég hef aldrei séð annað eins. Orð eins og hástétt og hiphop mælikvarði voru búin til og ég skemmti mér konungalega við lesturinn. Það er ekki eins og þetta sé eitthvað erfitt. Þeir sem hafa unnið innan senunar eru gjaldgengir. Það er enginn hiphop mælikvarði á þetta. Þetta voru líka kosningar, eða er kannski hástéttin búin að breyta niðurstöðum kosninganna til þess að vinna örugglega þetta mót, Tyse? Ef að þetta fer svona í pirrurnar á einhverjum þá...

Vonbrigði (11 álit)

í Manager leikir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég verð að segja það að sú reynsla sem ég hef af þessari nýju útgáfu er HRYLLINGUR. Stærsti gallinn finnst mér fjarlæging Back takkans sem var mjög nothæfur. Einnig finnst mér leikurinn vera stirrður, eða stamur einhvernveginn. Ég spila leikinn á örgjöva sem er 1ghz, og 256 í innra minni og hann er mjög hægur. Leikmennirnir eru líka bara leiðinlegir og ég veit ekki þessi leikur er algjörlega að missa marks. Ég bjóst við því að það ætti að bæta upp það sem væri ekki nógu gott í gamla leiknum,...

Nöfn í hiphop senunni á Íslandi (14 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 1 mánuði
Á okkar stríðshrjáðu tímum finnst mér ekki úr vegi að víkja aðeins að spaugilegu hliðinni í okkar tilveru. Ef að við lítum aðeins á íslenskt hiphop og þessar þýðingar. Ég vil nú ekki vera með neina hleypidóma en lítiði á þetta Break Dance - Skrykkdans Battle - Rímnastríð Dj-ing - Skífuskank Beatbox - taktrapp Eflaust munu einhverjir biðja mig um að gera betur en ég held að það þurfi ekkert að gera betur, bara að nota ensku orðin á meðan við höfum ekkert betra. Ég held að þetta snúist ekki um...

Stærsti körfuknattleiksmaður jarðar (14 álit)

í Körfubolti fyrir 21 árum, 1 mánuði
Lið Galatasary var að fá til liðs við sig Sultan Kosen, strák sem er fæddur 1982. Hann er frá Kiziltepe Köyü, sem er lítið þorp í austur Tyrklandi, rétt við landamæri Íraks. Þetta væri nú ekki frásögum færandi nema fyrir þær sakir að þessi leikmaður er 242 cm á hæð, vegur 155 kg og notar skó númer 60!. Kosen þarf að gangast undir skurðaðgerðir á hnjánum en er talinn eiga góðar batalíkur. Galatasary-menn binda miklar voninn við hann og ætla sér að gera körfuboltaleikmann úr honum á 2-3 árum....

Frelsið er svo yndislegt að þá má drepa fyrir það (11 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 1 mánuði
Kenndu þeim réttlæti, þú merki maður, með fána þinn á lofti Dreptu konur og börn, gerðu það hálfpartinn með stolti brostu framan í umheiminn og ljúgðu að þínum kollegum dragðu þína eigin þjóð á tálar, sem trúa þínum orð'leikjum Þau lifa ekki samkvæmt þínum gildum, svo dreptu þjóðina Leiddu þriðja heiminn eins og hund þinn og hertu ólina Flaggið ykkar fána í bakgarði annara, þið segist vilja vel stríð gegn hverjum? Engum því þið stundið hryðjuverk Segist standa vörð um lýðræði, veljið svo...

wbdaz - hahaha (27 álit)

í Manager leikir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég hvet ykkur til þess að skoða ALLA pósta um nýja cm4 demóið og sjá hver virðist alltaf eiga síðasta orðið. Það er wbdaz, og ekkert slæmt um það að segja, nema það að hann þarf alltaf að verja leikinn. Einnig finnst mér persónudýrkunin á Oliver Collyer vera mjög fyndin, það er eins og menn haldi að hann einn geri leikinn góðan. Mér finnst wbdaz sína skilyrðislausa ást á leiknum og alltaf þarf hann að svara fyrir leikinn. Besserwisser er það orð sem kemur í huga minn þegar ég sé nafn þessa...

MORFÍs - FG - Flensborg (0 álit)

í Skóli fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Flensborg ákvað að gefa keppnina gegn FG, sem átti að fara fram á föstudaginn nk. Tveir liðsmanna Flensborgar þurftu að fara í einhverja vinnuferð út á land og stuðningsmaðurinn nennti ekki að keppa. Því stóð Frummælandinn, Sveinn, eftir einn. Hann barðist í bökkunum við að ná sér í lið, en allt kom fyrir ekki. FG-ingar voru reyndar ósáttir með vinnubrögð Flensborgarmanna, því þeir létu ekki vita af því að þeir myndu gefa keppnina, fyrr en nú, á mánudagskvöld og fóru því alls þrír dagar í...

Framhald af Igore (29 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég vildi fá að skrifa þanng að allir sæju. Í fyrsta lagi þá sagði greinarhöfundur að þeir eru rap, en ekki hiphop. Ef að einhver er rap, þá er hann hiphop. Ef einhver rappar þá þarf hann kannski ekki að vera hiphop. En samt sem áður er rappið eitt af fjórum elementunum. En þessi umræða er fáránleg. Mér finnst leiðinlegt hvað fólk þarf alltaf að telja allt sem er of ‘sellout’ sem rap, og það sem það fílar sjálft ‘hiphop’. Þetta er bara asnalegur hugsunargangur. Igore eru ekkert annað en rapp,...

Djö's kjaftæði (3 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 3 mánuðum
DaC hefur póstað eins og óður maður hérna. Hann sér sér heldur aldrei fært að svara einum né neinum heldur æðir áfram ritvöllinn og byrjar á því að gagnrýna fleiri. Hann virðist sjá inn í hugarheim íslenskra rappara, að eigin sögn, og reynir að raska rónni sem hefur verið í íslensku rappi. Þessi grein um ógnarjafnvægið hefur fyllt mælinn. Í fyrsta lagi þá gefur hann sér það að Dóra líki ekki við Erp og fleira í þeim dúr. Í fyrsta lagi verð ég að segja að margir af þessum sem hann nefnir fíla...

Dac er lélegur að svara (7 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Mikið hefur dúkkað upp af hugverjum upp á síðkastið. Þeir sækja margir hverjir hiphop áhugamálið. Eitt hefur einkennt þessi svör og það er einsleitni. Leyfist mér þá að tala um Dac nokkurn. Hann talar bara um Hermigervil, reyndar trúi ég því að þetta sé Herm himself. Í byrjun reyndi hann að vera lúmskur og kallaði hermó rauðhærðan lemúrapa, en svo gerir hann ekki annað en að tala um hann á góðu nótunum. Ég var að spá hvort að þú, Dac, gætir komið með svör eins og Gescom og Danol, þá með...

Könnun (3 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ef þessar pulsur eru Bæjarins Bestu þá er það hiphop..

Heimasíða Bæjarins Bestu (9 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Bæjarins Bestu eru búnir að opna tímabundna síðu; baejarinsbestu.blogspot.com Endilega heimsækið

Ný lesendaverðlaun? (6 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Síðustu lesendaverðlaun kláruðust í mars. Þau eru samt titluð sem lesendaverðlaun 2002, en með réttu eiga þau að vera fyrir 2001, en samt frekar seint á ferðinni… Þar sem íslensku tónlistaverðlaunin og Eddan verða og voru afhend í nóvember/desember, finnst mér að það eigi brátt að huga að því að gera ný lesendaverðlaun huga. Hvað finnst ykkur?

(við erum) Sokkin - Bæjarins Bestu (8 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þetta verður á Bæjarins Bestu plötunni sem kemur út á næstunni.. Þeir segja að ævi fari eftir hans eigin gildum reynum að lenda eigi í gildru þótt við fegin vildum yfirgefa okkar líf, fyrirgera okkar tíð en hættum við svo sættumst við á allt annað en við ætluðum með tárin í augunum og kökkin í hálsinum við skáulum fyrir dauðanum og stökkvum af gálganum brotin loforð, misheppnaðar tilraunir til betri tíðar ég viðurkenni: ég get ei lifað, sama þótt ég létist síðan við erum tilgangslaus, teljum...

Kvöldið sem leið...í MH (16 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Jæja…nú er það búið… Kvöldið í MH í gær var yfirhöfuð ekkert spes. Þetta byrjaði á því að menn þurftu að hafa tónlistina lágt stillt vegna kennslu sem fram fór í húsinu. Hjalti byrjaði og það var alveg fínt, reyndar hefur hann tekið mörg af þessum lögum áður, en það kom ekki að sök, hjalti er annálaður crowd pleaser og sýndist mér honum takast það nokk vel að pleasa crowdið. Mauze steig næstur á svið með eitthvað það harðasta sem sett hefur verið á blað. Reyndar heyrðist ekki nógu vel í...

Hvaða 90% sökka svona (2 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ok Ok ég hef oft heyrt þess getið að 90% af rappi sökki en ég veit ekki alveg hvað það er sem sökkar svona mikið…ég er ekki að efna til beefs eða neitt…ég er bara að segja að ég hlusta á mikið af hlutum, þ.e. á margar hljómsveitir og sólo artista sem spila mjög ólíka tónlist og mest allt sem ég hlusta á finnst mér gott..mig langar bara að vita..eða þ.e.a.s. fá sjónarhorn þeirra sem fíla bara 10% af rappinu…

könnunin (6 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
djöfull eru margir sem ætla að rippa diskinn hans móra..þetta er asnalegt…24 manns búnir að segjast ætla að rippa diskinn, þetta verður til þess að minna verður gefið út af íslensku efni..þ.e.a.s. ef allir ætla að rippa allt..

Múzík.is (4 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
ég var að sjá eitthvað frá Johnnyboy sem var að segja að múzík.is sökki. Mér finnst þetta vera asnalegt komment, því eins og Katrin benti réttilega á, er múzík eina útvarpsstöðin sem spilar íslenskt rapp…og ég get ekki séð hvað sökki við múzík ef að hún er að breiða þetta út.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok