Kenndu þeim réttlæti, þú merki maður, með fána þinn á lofti
Dreptu konur og börn, gerðu það hálfpartinn með stolti
brostu framan í umheiminn og ljúgðu að þínum kollegum
dragðu þína eigin þjóð á tálar, sem trúa þínum orð'leikjum
Þau lifa ekki samkvæmt þínum gildum, svo dreptu þjóðina
Leiddu þriðja heiminn eins og hund þinn og hertu ólina
Flaggið ykkar fána í bakgarði annara, þið segist vilja vel
stríð gegn hverjum? Engum því þið stundið hryðjuverk
Segist standa vörð um lýðræði, veljið svo stjórnir annara
Lýðræði felst ekki í því að knésetja aðra án sannana
Sitjið einir að heimsins auðlindum og mjólkið ykkar arfleið til þrautar
hver valdi ykkur sem sannleiksins taumhald?
Með vopnavaldi þið knúið aðrar þjóðir til þess að velja ykkar foringja
Styrkið svo helför þar sem þið haldið uppi sönnum fjöldamorðingja
Viljið útkljá heimsins vandamál með vopnum, viljið ekki ræða eða skrifa
En að berjast fyrir friði er eins heimskulegt og blæða til að lifa…