Spurningin er ekki hvað get ég gert fyrir ykkur
heldur hvað þið gerið fyrir mig - vonandi skiljiði
og fallið ekki í yfirlið
hugur ofar efni - heili ofar líkama
ráðist á mig, mér er skítsama
sendið mig á spítala
en þegar ykkar fals fræjum er sáð í jarðveginn
og viskuleysi er í algleymi þá kryddið þið á harmleikinn
Þið alið æskuna upp í lygum og blekkingu
eyðið þeirra þekkingu þar til þau mynda vart setningu
með ykkar þrá í ríkidæmi - þið náið markmiðum með barsmíðum
hagræðið sannindum, hagræðið mannslífum
og þegar þjóð ykkar verður orðin blóði þrotin
og þið óðir orðnir vitið til þá verður gróðinn horfinn
og þjóðarmorðinn réttlætt með ykkar fávisku
þegar ég horfi á þetta fæ ég áhyggjur af ykkar þráhyggju…
þegar múgurinn verður soltinn hvar verða þá hvatirnar
fávitar…blandið frelsi saman við fasisma…

Pennin holar steininn, blaðið beygir byssuna
öreigar allra landa standið upp og ég er viss um að
við bugum markaðshyggjuna - og það er satt að
það er einn vilji, ein ást og eitt hjarta…