Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

kamalflos
kamalflos Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
1.170 stig
Áhugamál: Hip hop, Stjórnmál

M.O.P. (8 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég vill frekar fá M.O.P. heldur en þessar hljómsveitir í könnuninni..og margar aðrar..Eins og Atmosphere..sem eru reyndar að koma…en vildi bara koma mínu að..

100.000 kall (4 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
ég hlustaði á Chronic um helgina, og þar heyrði ég lagið 100.000 kall í nýjum búningi. Lagið var mjög gott fyrir og í byrjun var ég mjög impressed með hvað þetta var vel hljóðblandað. En hvað í fjandanum var þetta undir lokin, þetta var mesta fokkin sýra sem ég hef á ævi minni heyrt. Þetta var eins og lokaverkefni í hvernig maður á að nota effecta í cool edit. Þetta var lýti á annars flottu lagi. p.s. hvað var mjáið þarna í öðru erindi?

Ról Kol...bestu... (25 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
bara svona routine check…hverjir eru að gera bestu hlutina að ykkar mati…hverjir eru bestu rappararnir og plís smá rökstuðning…ef hægt er…:)

Forboðni Ávöxturinn (3 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Í byrjun var moldin - Mold Þar á eftir kom orðið - Orð Þar á eftir komi ljósið - Ljós Þar á eftir kom rótin….. Eldur og brennisteinn - svo ég skemmist ey - rigning góð ef ég á að smakkast verð að vaxa en ég stilli mitt hóf Ég heng einn míns liðs í sveitinni, eplið á eikinni ég lifi hér en velti fyrir mér hvar ég verð eftir á?..veit ekki reyn' ekki að sporna við örlögunum - vill ekki rífa mig úr fjötrunum rífa mig úr fötunum því safinn úr mér á að renna eftir hökunum… örlöginn eitthvað sem á...

undra lagið..... (7 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 8 mánuðum
ég stend stirðum fótum og hunsa lætin stunda að ígrunda en nú hallar undan fæti er að reyna að - láta ykkur heyra það í bundnu kvæði en þið stoppið - og horfið til drottins - líkt og þið skuldið bænir vissi að undir lægi - eitthvað af þessu undra tagi og vissi að þið gerðuð skyssur um leið og þið funduð næði er að verða frá mér en hjá mér liggur þessi dulda bræði og mín synd verður upplýst nú hún brýst út er ég skund'um bæinn finnst ég vera að bilast líkt og ég hafi smitast af hundaæði tek...

ásarnir.. (4 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 9 mánuðum
djöfull er ég að fíla ásana þeir sögðust hafa rústað kjarra um helgina og mér fannst það líka…þeir eru bara feitir gaurar þessi kjarri átti ekki sjéns. Þeir sögðu við alla eftir battliið að kródið hefði orðið wild þega þeir heyrðu rímuna hans effa en hún var svona “hey..þetta tvennt rímar ekki” og er þetta feitasta punchline sem ég hef heyrt…Hvati er líka mad gaur og er líkus Steinbíti í útliti…Hvati er líka helvíti þorinn gaur..og þorir öllu

Þyrping Skýjanna (8 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Frá fyrstu sýn, fyrstu snertingu og fyrsta andarætti leið mér eins og þátttakanda í einhverju happadrætti vinningslíkurnar litlar enn potturinn þess virði og ef að ég tek ekki þátt finnst mér ég sjálfur vera nirfill …. …. …. ég hafði horft á skýin makast og afkvæmi þeirra birtast ég hafði merkt sundrungu og einnig séð þau þyrpast tilgangurinn var ennþá ófundinn, og stundin?, sú sama ennþá bundinn af frama, sá ennþá turinn að hrapa hugsjónirnar út á þekju og innan við var veðrið svipað það...

Utanbæjar rapparar (21 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Ég nenni ekki að svara því sem sagt var í síðustu grein, þar sem enginn mun sjá það. Þess vegna ákvað ég að búa til nýjan þráð. Ég ætla að byrja á því að biðjast afsökunar á því að fordæma og alhæfa með ýmsa rappara utanbæjar, það eru kannski einhverjir út á landi sem eru góðir, og ég er heldur ekki að tala um hæfileika, ég er að tala um attitude. Fólk getur alveg verið fínt að rappa en þar sem þeir eru LAAANG bestir í sinni sveit, og nærsveitum, halda þeir að þeir taki RVK með stormi. En...

Ísfirðingarnir frægu og aðrir utanbæjar hiphop hausar... (30 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Ég var að skoða þetta svokallaða battl milli Dóra úr Bæjarins Beztu og svo Prince X, sem er nú hálf gay nafn, en allavega… Stjáni kom með nokkuð sanna fullyrðingu um að utanbæjar hiphoparar eru svolítið úr takt við veruleikann. Þeir lifa í litlu samfélagi þar sem er ekki erfitt að telja sig full færan um að ‘meika’ það annarstaðar á landinu, því þeir eru fljótir að hljóta ‘frægð’ í svona litlu samfélagi. Þessi gaur sem var að battla við Dóra var hryllilega lélegur, hann var bara hreint og...

Myndir af hip-hop tónlistarmönnum (2 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum
'Eg er að gera heimasíðu í tölvufræði og ætla að sjálfsögðu að gera um íslenskt hiphop…mig langar að halda henni uppi eftir áfangann..og vona að þetta geti gert eitthvað gagn En mig vantar jafnframt myndir af íslenskum hip-hop tónlistarmönnum…Ef þið vitið um myndir af einhverjum..eða þá að þið eruð tónlistarmenn og viljið lofa mér að birta myndir af ykkur þá megi þið senda mér ábendingar í kamalflos@hugi.is getið einnig sent mér skilaboð eða bara sagt það hér í þessum þræði.. Mig vantar...

Hverjir verða í dómnefnd á battle of the mc's (8 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 1 mánuði
Já ég endurtek spurninguna mína…ef að þessi keppni verður þá einhverntíma.. En ég legg til að Andri Pet verði í dómnefnd…Hann er svo fróður og frábæ

Kemur EP frá FL? (3 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég verð að hrósa Forgotten Lores mönnum með þeirra besta lag til þessa, munið þetta. Það er eitthvað við það sem er svo ferskt og ég vona að FL menn muni gefa þetta lag út í einu eða öðru formi..verður það gert?

Hver er ég að dæma samfélag? (11 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Búinn að ganga um í hringi bölvandi og ragnandi Að bölva ríkisstjórninni í öðru en reiði, ég hafna því loforð brotin eins og hlekkir gömlu daganna glerbrot sálanna liggja á jörðinni fyrir augum mannana Við stemmum stigum gegn þunglyndi með gervi þörfum Barnameðlög hvetja ungar mæður að eignast heri af börnum En hver er ég að dæma þessa samfélagsmynd? ómenntaður en er hver maður sem tekur menntun yfir skemmtun misheppnaður? Ég finn löngun um að sleppa mér og fljúga burt í flýti Er grasið...

Skoskur gagnrýninn Backpacker með sítt skegg (6 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hvernig væri nú að Caladius myndi gera eitthvað annað en að gagnrýna og leyfa okkur hinum að sjá hverstu ótrúlegur textasnillingur hann er. Gagnrýni er alveg af hinu góða en ekki komment eins og: “svona á ekki heima hér, þetta er bara lélegt” Yfirhöfuð má bæta smá rökstuðning hjá öllum..en hver er ég til að dæma? Caladius ég segi bara að mig langar að sjá eitthvað eftir þig og gá hvort þú hefur texta sem eiga heima hér eða eitthvað sem er of lélegt til þess að vera hérna?

Villa í skoðunarkönnun (1 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Faculty diskurinn sem ég keypti heitir ekki Selected works of the Faculty, heldur THA selected works of THA Faculty… keep it real..faur real

Fólk... (16 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Um daginn voru einhverjir að setja út á Sesar A. Margir brugðust illa við því og sögðu að það ætti ekki að setja út á Sesar A þar sem hann vissi svo mikið um hiphop. Sú ástæða finnst mér ekki neitt voðalega gáfuleg, en ok sætti mig við þetta. En það sem ég á erfitt með að sætta mig við er þegar kannski einhverjir aðilar verja Sesar A og drulla svo yfir Erp. Erpur veit líka mikið um hiphop. Hann er góður rappari, það er ekki spurning. Textar hans eru fyndnir og hann flæðir betur en flestir...

heimskuleg skoðunarkönnun (13 álit)

í Körfubolti fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Sko nú er nóg komið..þessir valmöguleikar á skoðunarkönnuninni eru hryllilegir! Axel er án efa einn sá vitlausasti sem ég veit um! Farðu aftur á Kkdi.is og haltu þig þar. Maður fór nú að pósta hér til að losna við þig, þú ert pirrandi

getur einhver frætt mig... (3 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég hef verið að pæla í þessu með 18 ára aldurstakmarkið…það vantar 6 mánuði upp á að ég nái því, ég hef reyndar alltaf komist inn nema á J-Zone. En af hverju er 18 ára..akkuru ekki 17 eða 16. Það er hvort sem er 20 ára á barinn, þeir tjekka á skilríkjum ef það þarf, og útivistatími 16+ og 17 ára er alveg sá sami og 18 ára. Mig langar bara að vita þetta, veit einhver af hverju þetta er?

Besta tvíeykið..svar við skoðunarkönnun... (9 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 1 mánuði
Vissulega er þetta ágætis skoðunarkönnun, en þetta er alls ekki djúpt í árina tekið. Að nefna aðeins þessa leikmenn, ætti spurningin frekar að vera hvert var besta tvíeyki 10. áratugarins, eða eitthvað í þá áttina, því þetta er fáránlegt. Shaq og Penny voru góðir saman, en að segja að þeir séu eitt af bestu tvíeykum allra tíma og nefna ekki Bird og Mchale er alveg fáranlegt. Þeir höluðu inn sigrum, og unnu titla fyrir Celtics, en Shaq og Penny komu Magic í úrslit en töpuðu 4-0 gegn Rockets....

Sýn og Stöð 2 (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eftir að íslenska útvarpsfélagið fékk rétt á að sýna leiki í enska boltanum hefur áhorfið aukist, að manni finnst. Umfjöllunin er mikil og oft meiri en um innlendar íþróttir, en það er allt gott um það að segja því enska deildin er sú skemmtilegasta í heiminum. Þó finnst mér eitt ábótavant, það eru lýsarnir, margir hverjir fara svo verulega í taugarnar á mér að það er ekki venjulegt. Ég þakkaði nú mínu sæla þegar Guðjón “nefbítari-og-karatesparkari” Þórðarsson flutti út og hætti að lýsa...

Þetta slær allt út (4 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
með fyrirfram afsökunarbeiðni, enn ég vissi ekkert hvert ég átti að setja þessa grein, veit ekki undir hvað hún flokkast, enn vona að hún fái að vera hér. Stjórnendur Huga hafa lengi vel vitað af áhuga hiphop áhugamanna um að fá sitt eigið áhugamál. Það er margt sem hægt er að skrifa um Hiphop; plötudómar, fréttir og svo gætu einhverjir emmsééar sent inn sýna texta og sýnt öðrum og fengið dóma á þá (því hiphop snýst mikið um texta) og einnig gætu “graffarar” sent inn myndir með gröffum...

Vince Carter meiddur.. (0 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Troðslumeistarinn og Hálofta Fuglinn Vince “air Canada” Carter er meiddur og verður ekki með Toronto gegn Dallas Mavericks og Charlotte Hornets..Það verður skarð fyrir skyldi… en ég Toronto ættu að geta tekið þessi lið, allavega Dallas..án hans
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok