Ég var að lesa svörin við póstinum og ég hef aldrei séð annað eins. Orð eins og hástétt og hiphop mælikvarði voru búin til og ég skemmti mér konungalega við lesturinn.

Það er ekki eins og þetta sé eitthvað erfitt. Þeir sem hafa unnið innan senunar eru gjaldgengir. Það er enginn hiphop mælikvarði á þetta.

Þetta voru líka kosningar, eða er kannski hástéttin búin að breyta niðurstöðum kosninganna til þess að vinna örugglega þetta mót, Tyse?

Ef að þetta fer svona í pirrurnar á einhverjum þá verða þeir hinir sömu að sleppa því að mæta, því það er hvort eð er ekkert gaman á hátíðum þegar einhver hópur er með móral, við höfum nú þegar kynnst því á einu fótboltamóti hiphopara. Þá mætti einn hópur og var með móral og þeir sjálfir held ég að hafi skemmt sér sem verst.

Stop bullshittin…