Hvernig er hægt að fá 9,749 í þessum prófum? Eru prófin ekki 100 stig og vægi hvers dæmis í heilum stigum og fyrirgjöfin í heilum og hálfum stigum? Varla er gefið öðruvísi fyrir dæmi en hálft stig, eitt stig, eitt og hálft stig o.s.frv. Þetta var allavega svoleiðis þegar ég tók samræmdu prófin fyrir allmörgum árum (ef til vill reyndar bara gefið fyrir í heilum stigum þá). Miðað við það gætirðu hæst fengið 100 stig, svo 99,5; 99,0; o.s.frv. og augljóslega ekki 97,49 stig.