Það eru jafnar líkur að fá hverja röð í Lottói, þ.e. 1/501942, og skiptir engu hvort um er að ræða bara oddatölur eða bara sléttar. Raðirnar {1,2,3,4,5} og {2,33,34,35,36} eru því jafnlíklegar. Aftur á móti eru líkurnar á að fá bara oddatöluröð, óháð því hvaða oddatöluröð það er, 11628/501942 = 2,3%. Það er rangt hjá ykkur að halda því fram að líkurnar á að fá oddatöluröð séu 1/32, því þegar fyrsta oddatalan er komin eru einungis 18 eftir, svo 17 og koll af kolli. Fjöldi möguleika á að fá...