Mjög gáfulegt, geiri85. Ég er nú það gamall, að ég man eftir skyldusparnaðium hérna í den. Maður bölvaði honum þegar þetta var tekið af þessum launum sem maður hafði í slorinu, en viti menn, þegar ég fór í háskóla, þá þurfti ég lítið að taka að láni. Skyldusparnaðurinn dugði fyrir húsaleigu, skólabókum, skólagjöldum og fartölvu! Og það litla sem ég þurfti að taka að láni hjá LÍN borgaði ég upp á 3 árum (Guði sé lof!). Góð regla er að taka 2,5,10% og leggja inn á hina og þessa reikninga....