Í gær fírum ég og vinkona mín á video leigu. ákváðum að taka The Good girl með jennifer Aniston. þegar við vorum að segja kennitöluna þá kom önnur kona og sagði ''þessi mynd er hund hund leiðinleg! ekki taka hana,, ég hélt nú að það mætti ekki segja svona á video leigu en hún sagðist nú bara vera að ráðleggja kúnanum.
síðan komu aðrir starfsmenn og sögðu að hún væri sko virkilega leiðinleg. við ákváðum nú bara að taka einhverja aðra og 8 mile var fyrir valinu.
hún stóðst ekki alveg mínar væntingar, en fjallaði bara um allt of lítið.
ég nenni nú ekki að fara að segja frá myndinni í smáatriðum, en hún byrjar allavega þannig að eminem er í svokölluðum rapp bardaga= er að keppast við marga aðra gæja, í að ríma. (já ríma) en ahnn guggnar og fer. allir púa á hann og þannig. ok en myndin var BARA um þennan bardaga, að hann þyrfti að fara aftur og sýna hvað í honum býr.
fjallar ekkert um feril hans, bara áður hann var frægur. en sýnir mjög vel hvað hann er virkilega klár rappari og lætur drauma sýna rætast. hann bjó við mjö bágbornar aðstæður og átti nú ekki allt of mikla peninga!

þetta er mjög góð mynd þannig en leið og seinasta atriðið er búið þá hugsar maður: jei loksins gerist eitthvað gaman.
nei nei koma ekki stafirnir upp. við vinkonurnar sátum orðlausar að reyna að ná upp í það að hún væri búin……