Ég leigði þessa umdeildu mynd um daginn. Þessa mynd tel ég vera eina bestu mynd sem ég hef séð, auk þess er hún alveg hrikalega átakanleg. Þessi mynd fjallar um sanna atburði,eða um 16 ára stelpu sem hét Lilya og bjó í fátækrahverfi í Rússlandi. Hún er frekar vinafá og eini vinur hennar er strákur sem ég man ekki kað hét.
Mamma hennar var hálfgerð hóra og er byrjuð með nýjuim manni, mamman flytur síðan til bandaríkjanna og skilur Lilju eftir. eftir það hendir frænka hennar Lilju út úr íbúðinni sem mamman átti. Og hún fær íbúð sem eikker gamall kall átti. Lilja er auðvitað með mjög takmarkaðað peningamagn og fer stundum út á djammið og ríður eikkerjum ógeðslegum köllum fyrir pening. Síðan gerast undur og stórmerki, hún kynnist manni sem heitir Andrei, og hún fellur fyrir honum. Og hann bíður henni að fara með sér til Svíþjóðar. Andrei reddar henni auk þess jobbi við að tína upp grænmeti, sem er alger yfirhylming á raunverulega starfinu. Hún fer til Svíþjóðar alveg rosalega hamingjusöm en þá byrjar martröðin fyrir vissu. Kallinn sem Andrei reddaði henni djobbi hjá er ógeðslegur maður sem læsir hana inni í herbergi sem er tómlegra heldur en gamla herbergið hennar í rússlandi. En hún fattar það ekki strax, og fer í bað,en þá kemur kallinn inn til hannar og naudgar henni. Kallinn hleypir henni bara út á kvöldin og keyrir hana alltaf til fullt af ógeðslegum gaurum sem eru verulega afbrigðilegir. Eftir nokkra mánuði í þessu sukki verður hún auðvitað alveg alvarlega þunglynd og þá ber kallinn hana. En hann gleymir að læsa dyrunum á íbúðinni sem hún var læst inni nánast allan daginn. Og hún fer út og hoppar fram af brú sem liggur yfir hraðbraut. Ég átti erfitt með að fara ekki að gráta yfir þessu og mér finnst alveg ótrúlegt að sona menn séu til þarna útí heiminum sem eru sona verulega ógeðslegir. Þessi mynd er eftir snilldarlegan leikstjóra sem gerði Fucking Åmal og Till Sammans sem eru alveg brilljant myndir. En þessi er örugglega sú besta sem ég hef séð eftir hann. Ég var alveg í rusli eftir að hafa séð þessa mynd. Ég gat ekki losnað við hana úr hausnum á mér.