Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Snoppa

í Kettir fyrir 23 árum
LOL þetta er greinilega skemmtilegur köttur :) IceCat

Re: Landverndarher Íslands

í Deiglan fyrir 23 árum
Þetta er alls ekkert vitlaus hugmynd en ég held samt að þú sért að huxa alltof stórt. Ég sæi fyrir mér um 500 manns, þjálfaða fjallamenn sem væri hægt að þjálfa í sprengugerð og byssufimi. Ef sá tími kæmi að ráðist yrði á Ísland þá myndu þessi menn fara upp á hálendi og fjöll og stunda skæruliðahernað þaðan. 200 manns væru jafnvel nóg. Þetta væri kannski sambland af hjálparsveitamönnum og lögreglumönnum. Þetta þyrfti ekki að kosta mikið, bara að halda þessum mönnum í þjálfun og að sjálfsögðu...

Re: Hjálp! Eintóm vandræði!

í Kettir fyrir 23 árum
En frábært !!! Væri gaman að fá mynd af senda inn af litlu hetjunni :) ICeCat

Re: Þegar ellin bankar á dyr....

í Kettir fyrir 23 árum
Sæl, já það er erfitt að horfast í augu við að gæludýrin manns lifi ekki að eilífu. Mér heyrist Tinna hafa það ágætt miðað við aldur, ef hún ferðast um, malar og borðar eitthvað. Vítamínsprauta væri stórsniðug og svo myndi ég líka láta líta á tennurnar í henni, hún gæti verið með slæman tannstein sem hindrar hana í að borða meira en hún gerir. Mín gamla læða er að verða 10 ára og á ég í akkúrat öfugum vandræðum við þig eða offitu. Mín gamla hefur fitnað svo svakalega seinustu ár að hún á...

Re: Hjálp! Eintóm vandræði!

í Kettir fyrir 23 árum
Já ég hef svona reynslu af henni líka, hún getur verið óttalegur dóni og tilfinningalaus enda hætti ég að fara með dýrin mín til hennar fyrir nokkrum árum. IceCat

Re: CAT-NIP

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta catnip virkar ekki á alla ketti, sumir finna engin áhrif af því…því miður. IceCat

Re: myndir

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þú getur mjög auðveldlega minnkað myndir sem þú vilt senda inn. Víddd á að vera ekki meira en 278, hæð 350 og stærð 32kb. Getur notað Photoshop, Paint Shop Pro og örugglega fleiri. Annars er ég alveg sammála en í myndasafni huga eru um 35.000 myndir og ímyndaðu þér ef myndirnar væru stærri en nú er leyft ! IceCat

Re: Eru kettir gáfaðari en hundar?

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mín persónulega skoðun er sú að almennt séu kettir gáfaðri en hundar. Hef átt nokkra hunda og bunka af köttum og þetta hefur verið málið. IceCat

Re: Hjálp! Eintóm vandræði!

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já því miður er yfirleitt alltaf einn kettlingur sem er “runt” og fær ekki nóg að borða. Hefurðu reynt að gefa honum hreinlega með teskeið ? Endilega talaði við dýralækni strax þar sem mér heyrist þú engan tíma mega missa. Gangi þér sem best ! IceCat

Re: Er hægt að temja ketti?

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Frábær grein og gott umræðuefni ! Ég hef átt nokkra ketti og hef aldrei reynt að kenna þeim neitt en efast ekki um að ef ég hefði gert það þá myndu þeir kunna eitthvað í dag. Ég var með tíkina mína á hvolpanámskeiði hjá Ástu Dóru í Gallerí Voff fyrir nokkrum árum (tíkin fékk gullverðlaunin BTW :) þá hitti ég Ástu einhvern tímann fyrir utan hjá henni og þar var líka bröndóttur köttur. Við fórum að spjalla saman og þá kom í ljós að hún var búin að þjálfa köttinn til að gera alveg fullt af...

Re: óMenning súkkulaði dólga - samfélagsgagnrýni

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er í öllum meginatriðum sammála því sem þú ert að segja eeeeen mér finnst þú vera of harður í garð “hnakkanna”. Þér þarf ekki að líða illa þó þetta fólk lifi í þessum lífstíl, þú átt bara að vera ánægður með þinn ! IceCat

Re: Hjálp....

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nákvæmlega, þú þarft ekki annað en að hleypa henni út og hún kemur mjög sennilega kettlingafull heim. En bara svona að minnast á það að nóg er til að litlum kettlingum sem ekki fá heimili og ef þetta er ekki ræktunarkisa myndi ég persónulega gelda hana. Bara svona smá skoðun frá mér :) IceCat

Re: köttur

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sendi þér samúðarkveðjur ! IceCat

Re: að þæfa=víma katta?

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Jú þetta er alveg rétt hjá þér, þegar kettlingarnir eru á spena þá gera þeir þetta til að mjólkurstreymið verði betra hjá mömmukisunni. Minningin um þetta situr í þeim og því mala þeir oft og loka augunum á meðan þeir þæfa teppi eða annað slíkt. Ég hef heyrt að kettir sem teknir eru snemma frá mömmunni geri meira af þessi en það er svo sem ekki staðfest. Kveðja, IceCat

Re: Dúlla

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
hehehehe…nákvæmlega rétt sagt ! Mín gamla lítur ekki við öðrum köttum og hrekur þá burt langt inn í næstu götu ef þeir voga sér eitthvað nálægt húsinu :) IceCat

Re: Að skilja dýrið eftir :(

í Gæludýr fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já ég get skilið að svona draumar séu óþægilegir. Auðvitað verður þetta skrýtið fyrir kanínustrákinn að vera ekki heima hjá sér en hann verður enga stund að taka gleði sína aftur þegar þú kemur heim :) Gangi ykkur sem best IceCat

Re: Læðan mín búin!

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Innilegar hamingjuóskir með kettlingana og Blettu mömmu ! Mig hefur alltaf langað til að vera viðstödd svona fæðingu, það hlýtur að vera æðislegt :) Gangi ykkur sem best, IceCat

Re: Dúlla

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Gaman að heyra um Dúllu og til hamingju með 14 árin :) Ég er með eina sem verður 10 ára núna 13. maí og finnst ég alltaf hafa átt hana enda er þetta talsverður tími. Gangi ykkur allt í haginn ! IceCat

Re: Afhverju kettir eru betri en hundar.........

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Akkúrat, mínir skíta í rúmið mitt þegar ég er ekki heima til að mótmæla fjarveru minni ! IceCat

Re: Kattarhótel

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Já ég er sammála Barabas að þið ættuð að fá einhvern til að passa hann á meðan þið eruð frá frekar en að senda hann á kattahótel. Kattholt tekur við köttum í geymslu gegn gjaldi veit ég en hef ekki hugmynd um fleiri. IceCat

Re: Hvað er spennandi við ketti?

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég biðst fyrirgefningar á því að svarið sem þú sendir mér er horfið auk þess öll undirsvör undir því…mín mistök og ekki gerð viljandi :-/ Málið er bara að kettir henta fyrir sumt fólk og hundar fyrir sumt fólk. Þetta fer algerlega eftir því eftir hverju þú ert að leita að í fari gæludýrsins þíns. IceCat

Re: Hvað er spennandi við ketti?

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þú biður um málefnaleg og rökstudd svör en ekki verð ég var við mikinn rökstuðning hjá þér við þínar skoðanir. Ég ætla að giska á að þú hafir ekki verið mikið í kringum kisur þar sem fólk hænist að köttum (og eins hundum) í flestum tilfellum þegar verið er mikið í kringum þessi dýr. Kettir hafa einstaka og merkilega persónuleika og engir kettir eru eins frekar en við mennirnir. Kettir eru einnig mjög hændir að sínum húsbónda og það er ekki nema ein manneskja á heimilinu. Það þarf ekki að...

Re: Kattasaga

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Síðan hvenær eru mörk á því hversu langar greinar eiga að vera hér á Huga ? Ég samþykkti þessa grein því þetta er góð og skemmtileg saga. IceCat

Re: Vetrarferðir.

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Alveg er ég 100% sammála þér ! Í DV eða Fréttablaðinu í dag var sagt að fólkið sem býr á Hveravöllum nánast meinuðu þeim að fara þar sem mikill skafrenningur var og ekkert skyggni. En það var ekki hlustað á þau. Menn með GPS tæki halda að þeir komist hvert sem er í hvernig veðri sem er en oft kunna þeir ekki alminnilega á tækin og ekki kemur hver þúfa og lækur fram á þessum tækjum. Grrrr…get orðið svo reið :-/ IceCat

Re: Það var keyrt á Snældu mína....

í Kettir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Innilegar samúðarkveðjur frá mér og kisunum mínum. IceCat
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok