Mig langar að monta mig aðeins eins og allir hér á þessu áhugamáli.
Þannig er það nú að hún Bletta mín er búin að gjóta 3 yndislegum kettlingum. Þeir komu í heimin í gær þann 31.03. En það versta var að ég var ekki komin heim úr vinnu þannig að hún var bara ein að þessu. Ég hélt á tíma að einn kettlingurinn myndi ekki hafa það af en hann er þó sprækur í dag og kom hann að öllum líkindum rétt áður en ég kom heim úr vinnu því hann var enn í belgnum og þurfti ég að hjálpa honum úr og ýta aðeins við honum.
Mig langað bara að monta mig smá því að ég er svo stolt af læðunni minni og kettlingunum þrem (sýnist að þetta séu 2 læður og eitt fress)
kveðja valsrakvk. (katta-amma)