Mig langar að forvitnast um Kattarhótel.
Við eigum Persneskan kött og þurfum að fara í fyrsta
skiptið frá honum í einn mánuð bráðum.
Hann er algjör heimalingur og mjög háður okkur.
Eru til einhver Kattarhótel á Íslandi ?
Hef aðeins leitað og hef ekki fundið neitt.

Ef það eru einhver slík hótel til, með hvaða hóteli mælið þið með ?
Ég hef aðeins átt hunda þannig ég undirstrika það að
ég veit ekki einu sinni hvort slík hótel eru til en allar
uppástungur hvernig við getum auðveldað lífið fyrir greyið
kisa meðan við erum í burtu væru vel þegnar.