Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Aðkast á áhugamálunu okkar.

í Kettir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Ég lét banna þennan með kettlingasúpuuppskriftina en hvar sástu myndir af dýramisþyrmingum ??? IceCat

Re: Aðkast á áhugamálunu okkar.

í Kettir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Þetta er einmitt það sem ég sem admin er að reyna að skilja að, þ.e. dónaskap og svo fólk sem reynir að skíra út sína hlið af hverju því líkar ekki við ketti. IceCat

Re: Aðkast á áhugamálunu okkar.

í Kettir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Boltari, tilfellið er að áhugamál fólks beinist ekki í sömu áttir og þó þú hafir t.d. áhuga á að spila Championsship Manager í tölvunni þinni tímunum saman þá gæti mér fundist það algjör tímaeyðsla. Eeeeeeen ég virði það að þú ert tilbúin að eyða tíma þínum í þín áhugamál og þá vill ég að þú virðir áhugamál annarra jafn mikið. Er það til of mikils mælst ? IceCat

Re: Aðkast á áhugamálunu okkar.

í Kettir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Sæl/l EdalLogi Ég sem Admin hér inni á hugi.is/kettir á erfitt með að eyða ljótum póstum því búið er að svara þeim og þegar svari er eytt, eyðast öll undirsvör með. Því er ég mjög treg að eyða póstum nema að þau taki út fyrir allan þjófabálk í ógeðslegheitum ef þú skilur hvað ég á við :) Ég hef verið dugleg við að eyða út athugasemdum við greinar sem koma greininni ekkert við. En svo verð ég að vega og meta hvort ég á að eyða svari eða ekki, það getur verið voða erfitt stundum. Ég vill í...

Re: Skotið á kött !

í Kettir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Þú ert greinilega reiður, ungur maður með skoðanir. Það er allt í lagi en ætti ég kannski að fá mér loftriffil og skjóta unglingana sem hafa hátt á næturnar um helgar fyrir utan húsið mitt á færi ? Ég hlýt að mega það eins og þú. Nú bý ég í einbýlishúsi með stórum garði og fullt af köttum í nágrenninu sem og mínir 2 kettir. Ég hef ekki orðið var við að kettir eyðileggji plöntur eða nagi tré, ertu viss um að ekki séu kanínur á vappi í kringum húsið þitt ? Vissulega er þetta með ofnæmið erfitt...

Re: Skotið á kött !

í Kettir fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Já um það eru skiptar skoðanir og fólk er ýmist “innikattafólk” eða “útikattafólk”. Mínir kettir fara út en ef kæmi reglugerð um kattahald þar sem lausaganga katta yrði bönnum þá yrðu þeir snarlega innikettir. Já þetta er virkilega ógeðslegt að einhver geti fengið það af sér að gera þetta :( IceCat

Re: Er þetta satt?!!?

í Kettir fyrir 23 árum
Já það er rétt hjá þér lhg að “declawing” er alveg stranglega bannað hér á landi og þetta er sífellt sjaldnar gert í BNA þar sem fólk verður upplýstara. Alveg er ég viss um að þetta sé það sem hún meinar. IceCat

Re: Kúka og míga á gólfið vandamálið leyst!

í Kettir fyrir 23 árum
Þessi aðferð er mjöööög umdeild. Tengdapabbi gerði þetta einu sinni við hann Tóbías minn sem núna er dáinn og það virkaði ekkert. Kötturinn í þessu tilfelli er einfaldlega pempía og getur ekki huxað sér að gera í sand sem komin er smá lykt að eða þess háttar og því gerir hann þetta. Hver veit nema að þetta fólk hafi prófað að troða nefinu á honum í hlandið og það ekki virkað. Ég er kannski ekki á móti þessarri aðferð en ég sjálf nota aðrar ef þetta vandamál kemur upp :) Kveðja, IceCat

Re: Er þetta satt?!!?

í Kettir fyrir 23 árum
Hmmm…þið þurfið bara að kanna hvort þetta er satt, mér finnst sjálfri afar ólíklegt að þetta sé bannað. Aftur á móti á ekki að klippa klær á útiköttum en stundum er það nauðsynlegt á inniköttum. Með kartöflur hef ég ekki heyrt, hundurinn minn étur alla kartöfluafganga sem falla til á þessu heimili. IceCat

Re: Tígrisdýr

í Kettir fyrir 23 árum
Mjög góð og fræðandi grein hjá þér, þetta er sko sannarlega heillandi dýr :) Ungarnir eru svo sætir að mann langar til að hjúfra sig að þeim en það er víst ekki viturlegt hehehe… IceCat

Re: kötturinn minn eiðileggur öll húsgögn

í Kettir fyrir 23 árum
Já ég gerði það líka þeas notaði naglaklippur á kisurnar mínar þegar þær voru innikisur. Þú þarft ekki að nota þær ef kisurnar fara út. IceCat

Re: Kettlingar

í Kettir fyrir 23 árum
Nei, ógeldir kettir eru ekki EINA ástæðan fyrir því hversu margir eru heimilislausir en ein sú stærsta. Núna er kannski í “tísku” að vera með kött eins og ég hef tekið eftir en það verður það ekki endalaust. Fyrir nokkrum árum veit ég að miklum fjölda af litlum kettlingum var lógað á dýraspítölum þar sem ekki tókst að finna þeim heimili. Svo vill ég minna þig á ekki tíðkast að gelda fólk til að minnka heimilisleysi en með því að gelda ketti og hunda þá líður þeim langt um betur, þetta veit...

Re: Kúka og míga á gólfið vandamálið leyst!

í Kettir fyrir 23 árum
Ég skrifaði einmitt grein um EverClean kattasandinn fyrir kannski ári síðan þar sem þetta er einfaldlega besti sandur sem til er. Mjög auðvelt er að hreinsa hann því hann klumpast og ekki þarf að skipta stöðugt um sandinn. Svo eins og þú segir þá kemur nánast engin lykt af honum heldur. Hann fæst aðeins í dýrabúðum og kostar stór kassi um 2000 kr. en margborgar sig þar sem maður á kassann miklu lengur. Frábært að sandurinn leysti vandamálið þitt, þetta hefur örugglega ekki verið mjög...

Re: kötturinn minn eiðileggur öll húsgögn

í Kettir fyrir 23 árum
Byrjaðu á því að kaupa klórubretti fyrir hana svo hún geti brýnt á sér klærnar einhvers staðar þar sem hún má það. Þú gæti keypt Catnip sprey til að spreyja á brettið til að laða hana að því. Til að kenna henni að hún má ekki klóra í veggi eða húsgögn væri sniðugt að vera með vatn í spreybrúsa og spreyja hana UM LEIÐ og hún klórar, ekki á undan eða eftir, þá lærir hún ekkert. Láttu vita hvernig gengur. IceCat

Re: Villiköttur

í Kettir fyrir 23 árum
Hmmm…þetta er alveg einstakt dæmi og sem betur fer ekki algengt að kettir, villikettir eða aðrir ráðist á fólk af tilefnislausu. En maður verður náttla að verja sig. IceCat

Re: Kattarmatur - tilraun 2

í Kettir fyrir 23 árum
Er ekki Iams rándýr kattamatur líka ? Á mörgum stöðum er hægt að fá kattamatsprufur sem þú gæti fengið til að prófa að gefa kettinum þínum. Gangi þér sem best, IceCat

Re: Að vera nörd...

í Lífsstíll (gamli) fyrir 23 árum
Híhíhí…ég er tölvu og stærðfræðinörd og náði mér í annan tölvunörd…lífið er yndislegt ! IceCat sem einnig er dýranörd.

Re: Gáfaðasta hundategundin?

í Hundar fyrir 23 árum
Gaman væri að sjá mynd af Tinnu þinni, þar sem hún er sama bland og Doppa mín. Doppa mín er hvít með stórar brúnar doppur í sjefferlitunum og er með “gleraugu”. Hún er mjög German Shepard leg í laginu en talsvert minni en hann. Ef þú átt mynd á tölvutæku formi af Tinnu máttu alveg senda hana á icecat@simnet.is og ég get þá sent þér myndir af Doppu. Þetta er nefnilega alveg bráðskemmtilegar blöndur sem við eigum :) IceCat

Re: Gáfaðasta hundategundin?

í Hundar fyrir 23 árum
Þessar niðurstöður eru náttla ekkert algildar, það eru til bráðheimskir border collie hundar og bráðgáfaðir Shih Tzu hundar. Það er samt gaman að pæla í þessu :) IceCat

Re: Varðandi ofnæmi og annað....

í Hundar fyrir 23 árum
Já þetta er eins og með okkur mennina, alltaf gott að fá “second opinion” ef á að fara að gera eitthvað meiriháttar. Gott að allt fór vel og gangi ykkur sem best. IceCat

Re: Hún Saga mín

í Hundar fyrir 23 árum
Gaman að heyra af Sögu og greinilegt að vel er huxað um hana. Gangi ykkur sem best, IceCat

Re: Gáfaðasta hundategundin?

í Hundar fyrir 23 árum
Þetta kemur mér sko ekkert á óvart, tíkin mín Doppa er hálfur German Shepard og hálfur Border Collie og hún er alveg ótrúlega gáfuð. Sem dæmi þá fékk hún gullverðlaunin á hundanámskeiði hjá Ástu Dóru í Gallerí Voff. Ég hef held ég aldrei hitt jafn bráðgáfaðan og greindan hund *mont* :-p IceCat

Re: Gáfaðasta hundategundin?

í Hundar fyrir 23 árum
Hefðir þú tekið þér tíma til að lesa upphaflegu greinina þá hefðir þú séð að þarna er ekki aðeins verið að athuga hversu fljótur hundur er að læra heldur eru taldar upp þrjár mismunandi aðferðir við að finna út greindina…svo langt sem það nær. IceCat

Re: Nafnið er fundið!

í Kettir fyrir 23 árum
Flott nafn og hlakka til að sjá myndir af krílunum :) IceCat

Re: Kettlingar

í Kettir fyrir 23 árum
Til hamingju með kettlingana þína en það slær mig svolítið að Nala er aðeins tæplega eins árs og þetta eru þriðju kettlingarnir hennar, ég vona að þetta sé ekki rétt og þú hafir ruglast eitthvað í árunum. Það að læður eignist kettlinga oft eða með stuttu millibili fer ekki vel með þær, hætta af ákveðnum sjúkdómum eykst umtalsvert og líkaminn nær ekki að jafna sig á milli burða. Þið ættuð að athuga að hafa hana á pillunni eða að gelda hana, get lofað þér því að henni mun líða vel samt sem...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok