Ég á kisu sem heitir Snoppa og er algjör dúlla.
Hérna koma nokkur ævintýri sem Snoppa hefur lent í.

Saga 1.

Þetta var fallegt vorkvöld og Snoppa var sofandi og vinkona mömmu
var í heimsókn. Snoppa mátti ekki fara út því hún var bara kettlingur. Þegar vinkona mömmu var farin var dinglað á dyrabjölluna. Þá var það vinkona mömmu með Snoppu. Svo næsta dag sáum við tvær Snoppur á klósettinu uppi (ég hélt að væri orðin klikk). Vinkona mömmu hafði tekið aðra kisu sem var alveg eins og Snoppa. Við hringdum þá í hana og hún sagði okkur hvar hún hefði fundið Snoppu2. Og við fórum og settum hana á staðinn sem hún fannst á.

Saga 2.

Við vorum öll sofandi nema einn einstaklingur og það var Snoppa. Mamma var svo þyrst að hún fór niður í eldhús til að fá sér vatn að drekka. Þá heyrði hún skrölt í ísskápnum og hún opnaði ísskápinn. Gettu hver var þar? Það var hún Snoppa. Hún tók hana út úr ísskápnum og athugaði hvort það væri ekki alveg í lagi með hana. Sem betur fer varð henni ekki meint af volkinu. Og mamma fékk sér vatn og fór svo aftur að sofa.
Moo. Moo. Moo.