Er það ekki þannig að ef þeir eru teknir ungir frá mömmunni, þá fá þeir mikið úr því að þæfa? Köttur tengdaforeldra minna gerir þetta og lokar augunum á meðan. Hann gerir þetta hægt og lengi þegar hann kemst nálægt mjúku teppi og svo leggst hann og sofnar. Er þetta ekki minning frá því að hann var á spena? Gera kettlingarnir þetta ekki á meðan þeir eru á spena. ÞETTA ER SVO SÆTT ÞEGAR HANN GERIR ÞETTA!!!!!! svo leggst hann í fangið á manni(ef maður er með teppið í fanginu og hann hlýjar manni svo mikið! Þvílík dúlla!