Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Dauðir kettir á götunni

í Kettir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ja…hver annar á að gera það ? Lögreglan segir það sjálf að það eigi að hringja í þá ef keyrt er á kött ! IceCat

Re: Skátastarf í dag!

í Skátar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Jæja Sikker, ég verð að viðurkenna að þó margt sé rétt í þessarri grein þinni þá varð ég fyrir vonbrigðum með lesturinn. Þú mátt ekki halda að Hafernir/Eina og Segull séu vælandi, sitjandi á rassgatinu og vilja láta vorkenna sér. Þetta er sko alls ekki rétt og finnst mér mjög leiðinlegt að heyra að þér finnist þetta. Mér finnst persónulega að þú sért að tala um eitthvað sem þú hefur ekki vit á. Þú veist ekki hvernig starf gengur innan þessarra félaga og getur þarafleiðandi ekkert fullyrt um...

Re: Hvert stefnir skátastarfið?

í Skátar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég verð nú að nefna eitt að skátastarf hjá Haförnum/Eina hefur aldrei lagst niður…allavega ekki síðan 1985 að mér vitandi. Einhverra hluta vegna hafa skátafélögin í Breiðholti Segull, Hafernir/Eina einangrast frá stjórn SSR þar sem stjórn þessarra félaga hafa ekki verið sammála öllum gerðum stjórnar SSR. Mér finnst að sjálfsögðu frábært að Árbúar sem hafa verið að starfa í félagsmiðstöð síðustu ár séu komnir með nýtt heimili en samt finnst mér þessi lausn ekki góð. Öll skátafélög í starfi...

Re: Hvert stefnir skátastarfið?

í Skátar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sæll, Það eru sjálfsagt margar ástæður fyrir því að starf fór hnignandi en eins og ég segji í svari til Björns Bragasonar að Hafernir hafa aldrei verið stórir. Kannski er þetta minni kynslóð að kenna að einhverju leiti, um það hef ég ekki myndað mér skoðun. Nú hef ég ekki kynnt mér fjölda skáta í Haförnum síðastliðin 10 ár eða svo og veit satt að segja ekki hversu mikið félagið hefur dalað en að sjálfsögðu er þetta rétt hjá þér með að hafa stöðugan fjöld í skátastarfi. Ég myndi telja að það...

Re: Hvert stefnir skátastarfið?

í Skátar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sæll Björn, gaman að fá góð svör :) Hafernir hafa mjög dapra húsnæðissögu. Þegar ég kem inn í skátastarf á sínum tíma er Hafarnaheimilið í mikilli niðurníðslu, búið að kveikja í því þrisvar en samt sæmilegt skátastarf. Húsið var svo rifið og skátunin var stunduð í skólastofum í Hólabrekkuskóla, herbergjum hjá eldri borgurum í Gerðubergi og að lokum í bílskúr í Hraunbergi. Bílskúrinn var algjör himnasending þrátt fyrir að vera einn geimur en þar var allavega hægt að stunda skátastarf án...

Re: Hvert stefnir skátastarfið?

í Skátar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Sæll, ég er alveg sammála þér varðandi launaða foringja, það samræmist ekki skátahugsjóninni. Launaðir starfsmenn eru afturámóti annar handleggur en ekki hafa öll skátafélög efni á því og byggja því allt slíkt á sjálfboðavinnu. Gaman að því að þú nefnir Haferni sem félag sem hefur hæst um þessar hugmyndir. Í vetur hefur starfið í Haförnum/Eina verið rifið upp á rassgatinu af okkur eldri skátum sem vorum upp á okkar besta í kringum 1990-1995 og höfum við rekið tvær sæmilega stórar...

Re: ég held að kettir skilji mann!!!

í Kettir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er mikið í til í þessu, endilega kíktu á greinina hér á köttum um að kettir skilji mannamál :) IceCat

Re: Kettir

í Kettir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Samkvæmt því sem kettir halda þá voru mennirnir skapaðir þeim til skemmtunur :D IceCat

Re: Kettir

í Kettir fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Yndisleg mynd sem fylgir greininni :) IceCat

Re: Í sambandi við kannanir.

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sæl/l, það er svolítið til í þessu hjá þér, við stjórnendur þurfum að fara betur yfir kannanirnar og eyða þeim sem ekki eru nógu góðar. Undanfarið þá höfum við verið mjög strangar. IceCat

Re: Kisuást

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
OMG en sætt :) Það eru allar líkur á að komin sé kaka í ofninn. Meðgöngutími læða eru 63 dagar að mig minnir, svo að þú verður líklega orðin amma/afi eftir ca. 2 mánuði. Ef það koma kettlingar þá væri best að taka hana úr sambandi eftir gotið því annars verður þú að halda áfram að gefa henni pilluna og það er bara vesen. Gangi ykkur vel, IceCat

Re: Þegar Snúður skeit á gólfið

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Er möguleiki að sandurinn hans hafi ekki verið nógu hreinn ? IceCat

Re: Réttlætanlegt.

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Heyr, heyr !!! IceCat

Re: Veiðileyfi á ketti?

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Finnst þér það líklegt góði minn ??? Þú hefur heyrt eitthvað vitlaust ! IceCat

Re: Drykkja.

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér heyrist þú vera mjög gott efni í drykkjumanneskju. Þótt þú sért ekki að drekka mikið í dag, hvernig verður það eftir 2 ár ? Þessi þörf hjá þér til að drekka er alls ekki af hinu góða. En mér heyrist þú samt skammast þín fyrir þetta og það er gott. Þú talar um að þér líði vel þegar þú drekkur en málið er að næst þarftu aðeins meira til að líða vel og svo aðeins meira í þarnæsta skipti. Ég held að þú vitir sjálf að þetta er ekki rétt og að þú vitir hvert þú stefnir. Hér getur enginn...

Re: Martraðir!!

í Hundar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hahah…ójá hundar prumpa sko sannarlega og þeir eru ógeðslega úldnir að innan, verða verri með aldrinum. Ein góð saga af henni Tátu minni sem dó fyrir 2 árum síðan 17 ára gömul. Einu sinni sat hún á eldhúsgólfinu og prumpaði, stökk svo upp og gelti eins og vitlaus á staðinn þar sem hún hafði setið…ekki alveg að fatta að þetta hljóð kom frá henni :) IceCat

Re: Vond lykt

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er með 2 ketti og lokaðan kassa með filter í og það kemur ALDREI lykt í kassan þó hann sé orðin troðin af úrgangi frá köttunum. Ég er að kaupa kattasand sem heitir Everclean og fæst aðeins í dýrabúðum. Hann er dýr en sparar samt því ég skipti og hreinsa miklu sjaldnar. Svo finnst mér einnig að kisurnar bera ekki eins mikið af honum með sér út úr kassanum eins og með öðrum sandi. Svo er spurning um að athuga kisu hvort séu nokkrir skítakleprar hangandi í afturendanum…já ég veit, ekki...

Re: Könnunin

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hmmm…ég samþykkti ekki sjálf þessa könnun en hefði sennilega samþykkt hana hefði ég séð hana. Í stríðum gleymast oft gæludýrin sem einnig missa heimili sín og fjölskyldur og finnst mér þessi könnun aðeins opna augu fólks fyrir því. Annars er náttla margar skoðanir á því :) IceCat…þessi könnun dettur út annaðkvöld.

Re: Ólöglegur aðalfundur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér er nokkuð sama þótt önnur samtök fara ekki eftir þessum reglum. Mér finnst skrýtið ef farið er eftir einum reglum og önnur hundsuð. Ég myndi nú ekki kalla þetta væl, þetta er eins hlutlaust og hægt er að vera af manneskju með skoðanir. Af því að hlutaðeigandi aðilar koma sér ekki saman þá sendi ég bréf hingað inn til að fá hlutlaust álit…er það væl ? Já ég er svekkt yfir þessum úrslitum en það þýðir samt ekki að ég megi ekki spyrja aðra um álit. Ég allavega fullyrði ekki að aðalfundurinn...

Re: Ólöglegur aðalfundur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég skil hvað þú ert að fara. Þessi lög hafa verið til í mörg ár og því ætti stjórn að vita af þessarri dagsetningu og passa að hafa allt tilbúið fyrir þann tíma. IceCat

Re: Ólöglegur aðalfundur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Heheheh…hin alræmda IceCat hahahah… Veistu að þar sem ég þekki til þín og þinna fyrri skrifa þá ætla ég að láta eins og svarið þitt sé marklaust. Við vitum bæði að þú ert eins óhlutlaus og hægt er að vera. Hvernig er ég að snúa út úr lögum og reglum ? Ég myndi segja að þetta bréf væri mjög hlutlaust. Ég spyr aðeins fróða Hugara um þessar reglur og hvernig er hægt að túlka þær. Einhverra hluta vegna kusu 4 “starfseiningar” af 8 að halda því fram að þessi ákveðni fundur væri ólöglegur og því...

Re: afhverju í fjandanum?

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fyrri kisinn fer sennilega úr hárum því hann er svo stressaður, sumir kettir eiga erfiðara með að aðlagast nýjum heimilum en aðrir. Varðandi moldina þá er ágætt að hafa spreybrúsa með vatni í og sprauta á þá um leið og þeir róta í moldinni. IceCat

Re: Þolinmæði eða?

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Eins og Cat Lady segir þá held ég að þú þurfir ekki að hafa neinar áhyggjur af þeim. Þær eru að leika sér og þó þér sýnist þetta stundum svolítið harkalegt þá er það ekki endilega málið. Ég hef vanið þónokkrar kisur saman og alltaf hefur það endað vel, reyndar eitt skipti sem er bara svona IGNORE í gangi hjá eldri kisunni, hún semsagt vill ekkert við þessa yngri hafa en því fylgja engin slagsmál. Gefðu þessu aðeins meiri tíma og sjáðu svo til. IceCat

Re: Kisan mín...:(

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Já þetta ofnæmi er hvimleitt, sonur minn er orðin rúmlega árs gamall og við erum bæði með hunda og ketti. Til allrar lukku hefur hann ekki sýnt nein ofnæmisviðbrögð og ólíklegt að hann geri það úr þessu. Svona er lífið stundum, mundu bara að þegar þú ert flutt út í þína eigin íbúð áttu möguleika á að fá þér aðra kisu. IceCat

Re: öfundsjúkur,hatar mig eða alveg sama????

í Rómantík fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nei það er ekki rétt hjá þér. Grundvöllur þess að fólk geti verið bara vinir eftir sambandsslit er sá að hvorugt sé lengur hrifið af hinu. Yfirleitt þegar fólk hættir saman er annar aðilinn ekki alveg sáttur. Það er mjög erfitt að vera bara kúl, vera í eðlilegum samskiptum en vera ennþá hrifinn, það endist yfirleitt ekki. Þetta er allavega mín reynsla eftir þrjár sambúðir og nokkur stutt sambönd. IceCat
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok