Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Kynjakattar fundur 7 júní 2003

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Frábært væri að fá tímasetninguna á fundinum :) IceCat

Re: Varist blóm!!!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jú hundar eru í sömu aðstöðu. Gæludýr eiga það til að borða blöð af t.d. pottaplöntum og því verðum við að vera ábyrg og passa að vera ekki með eitruð blóm þó þau séu falleg. Þetta á að sjálfsögðu einnig við um börn ! IceCat

Re: Ófrjósemisaðgerðir katta - rök

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fjölgun barna á Íslandi hefur ekki verið vandamál hingað til, ekki að mér vitandi. Mínir högnar hafa ekki orðið latir og feitir heldur einmitt leikið sér meira, farið ekki jafnlangt úti, ekki hefur verið vond lykt af þeim og svo mætti lengji telja. Þetta er mín skoðun og margra annara og í þessari grein koma fram rök með ófrjósemisaðgerð. Þrátt fyrir þetta verður alltaf nóg af litlum kettlingum svo að íslenski húskötturinn mun ekki deyja út. IceCat

Re: SORI OG SPILLING Í ANDRÉSI ÖND

í Bókmenntir og listir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Eftir lestur þessarar greinar sannfærist ég enn betur um að enginn SORI OG SPILLING er í Andrés önd. Þú getur tekið hvaða ævintýri eða teiknimyndasögur og snúið út úr þeim eins og þú ert að gera með Andrés. IceCat Andrésar Andar aðdáandi

Re: Konungasögur

í Sagnfræði fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ef ég skil þig rétt þá gerðir þú þessa ritgerð án þess að lesa eina einustu sögu ??? Einnig finnst mér vanta betri skilgreiningu á annarsvegar fornaldarsögum sem gerast um 600-800 e.K. og svo Íslendingasögur/konungasögur sem gerast talsvert seinna. IceCat

Re: ebeeedr...

í Skátar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
No hard feelings þó þið hafið eytt greininni minni. Nú auðvitað var hún á mjög svo dökkgráu svæði en ég var bara svo hneyksluð á þessarri sögu sem ég heyrði að ég átti ekki til orð. Ég bara varð að reyna allavega. Svo ég bjó til grein sem ég reyndi að hafa sem hlutlausasta og varð samt rosa hissa þegar hún var samþykkt. Og varð ekkert reið þó henni væri eytt. Það mátti allavega reyna, tapaði engu á því ! IceCat

Re: Ófrjósemisaðgerðir katta - rök

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér finnst ekkert að því að leyfa þeim að eiga einu sinni þó ég sjálf hafi kosið að leyfa mínum læðum það ekki. Það eru öfgarnar í sambandi við þetta sem ég hef áhyggjur af, t.d. læður sem hafa átt 5 x á tveimur árum eða oftar. Þanngi að þú ert alveg ábyrgur kattaeigandi fyrir það :) IceCat

Re: ebeeedr...

í Skátar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
hehehe…þegar einhver hjá SSR mætti í vinnuna í morgun þá hefur sá hinn sami séð þessa grein og hringt í einhvern stjórnanda hér á Hug og fengið greininni eytt. Það er allt í lagi mín vegna, ég var voða hissa á að greinin hafi verið samþykkt í upphafi. Því miður er mér sagt að búið sé að loka skattaskránum og því ekki hægt að staðfesta það. Spurning um að fá sundurliðun á ársreikningi á næsta aðalfundi. En svona er þetta stundum :) IceCat

Re: klikkuð kisa

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sæl/l Fyrst að öllu, ertu búin að taka kisu úr sambandi ??? IceCat

Re: Hjálp, Magni minn er enn týndur!!!!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sæl, ég vona svo sannarlega að Magni komi í leitirnar sem fyrst en mér dettur eitt í hug. Þegar hann Tóbías minn týndist þá ákvað ég að hringja í Lögregluna í Rvk. til að athuga hvort þeir hefðu fengið tilkynningu á þessu tímabili að hefði verið keyrt yfir kött sem samsvaraði lýsingunni. Því miður var það svo :( Einhverra hluta vegna hafði það farist fyrir að tilkynna eiganda (Tóbías var bæði með ól og eyrnamerktur) hans frá þessu og farið var með kroppinn beint í brennslu. Hringdu bara í þá...

Re: Tevur

í Skátar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú hef ég ekki verið í almennu skátastarfi í nokkur ár heldur frekar svona bakhjarl við skátafélagið mitt og ég er að spekúlera í hvað þessar Tevur eru ??? IceCat

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nákvæmlega það sem ég vildi sagt hafa. Ég sem ábyrgur kattaeigandi tel að nóg sé af litlum kettlingum fyrir svo að ég fari sjálf ekki að bæta við. En þetta er náttla bara sick með þennan mann og læðuna hans ! IceCat

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú ert þú alveg að misskilja mig, allir mínir kettir hafa verið íslenskir húskettir og hef ég sko ekkert á móti þeim. Mér finnst það allt í lagi hjá þér að leyfa kisunum þínum að eiga kettlinga einu sinni. Það sem fer fyrir brjóstið á mér eru allir yfirgefnu kettirnir í Kattholti og slatti af litlum kettlingum sem eru svæfðir. Það sem mér persónulega finnst er að af hverju að láta læður eignast kettlinga þegar Kattholt er fullt af kisum sem enginn vill eiga. Mér hefur fundist núna upp á...

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta er ekki nöldur heldur þörf umræða ! Það eru öfgarnar sem hræða mig og aðra. Finnst þér allt í lagi að 2 ára læða sé búin að eiga 4-5 x kettlinga ? Annars eru það gamlar kerlingabækur að mínu mati að læður þurfi að eiga einu sinni kettlinga áður en þær eru gerðar ófrjóar. Mín reynsla er langt í frá að þær verði eitthvað geðvondar piparjúnkur. Nú tek ég það fram að þetta er mín skoðun og sumra annarra sem skrifa hér fyrir ofan. Ég er einmitt að þýða grein sem ég ætla að birta hér sem ég...

Re: Hreinræktaðir kettir í athvörfum !!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þegar ég segi að farið hafi verið illa með þá þá meina ég að þeir hafa týnst og ekki leitað að þeim, ekki fundin ný heimili o.þ.h. Þetta kom mér bara svo á óvart að ég átti ekki til orð. IceCat

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nákvæmlega það sem ég er að huxa ! Ég er með hund og tvo ketti og þeim fylgir ákveðin kostnaður en ég fæ svo mikið í staðinn eins og þú kannast sjálfsagt við :) IceCat

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta er ekki dýrt miðað við að dýralæknar fá ekkert niðurgreitt. T.d. kostar einn keisaraskurður á ófrískri konu um hálfa miljón en við þurfum ekki að borga það. Ef fólk tekur að sér kött þá verður það að gera sér grein fyrir að kostnaður fylgir í kjölfarið ef þú vilt heilbrigðan kött. Þetta verð sem þú ert að tala um á við læður en þegar högnar eru geldir kostar það um 7000. IceCat

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Úti í USA eru á mörgum stöðum dýralæknar á vegum kattaatvarfanna sem gelda dýr ókeypis eða fyrir einhverja málamyndaupphæð. Þeir keyra um í svona stórum sendibílum sem eru útbúnir sem dýralæknastofa. Hluti af framlögum til athvarfanna fer í þetta. Hér væri þetta sniðugt en miðað við fjárhag Kattholts þyrfti talsvert meira fjarframlag. IceCat

Re: Nöldur

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hæ, er að setja kettlingana inn núna og á morgunn koma fullorðnu kettirnir. Victoría er á forsíðunni núna :) IceCat

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Víst er það mikið mál, allavega fyrir langflesta. Í fyrsta lagi á fólk að taka ábyrgð á gerðum sínum. Að gleyma að gefa pilluna þá er nokkuð gefið að það koma kettlingar. Ég vorkenni fólki bara ekki neitt, það getur alveg fengið góð heimili fyrir kettlingana. Í öðru lagi þá er þessi aðgerð, að skjóta kettlinga mjög sóðaleg aðferð og veit ég um fullorðið fólk sem horfði á slíkt í æsku og hefur ekki beðið þess bætur. Ef fólk getur verið að kaupa pilluna árum saman þá getur það alveg kostað...

Re: Karlkyn og kvenkyn

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér hefur fundist þetta voða misjafnt og hef verið bæði með læður og högna. Reyndar geldi ég þau strax um 6 mán. svo að ekki er ég að upplifa uppgvötun kattanna um kynlíf. IceCat

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér varð nú við þegar ég las hausinn á greininni, hvort þú ættir svona einstaklega frjóa læðu :) En já þetta er sko löngu tímabært að komi fram. Sjálf tel ég algerlega ábyrgðarlaust að gelda ekki ketti sem ekki á að rækta undan. Fyrir 10 árum eignaðist ég læðu sem mér fannst alveg sérstaklega falleg en samt sem áður venjulegur húsköttur. Mig langaði til að leyfa henni að eignast kettlinga enda vissi ég ekki betur enda bara unglingur. Var með hana í þrjú ár á pillunni og okkur var báðar farið...

Re: Út úr öfgaskápnum !!!!

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hver er þessi Alþýðufylking, hef aldrei heyrt á hana minnst ? Aftur á móti er til eða var Alþýðuflokkurinn, Alþýðubandalagið, Samfylkingin og Bandalag Jafnaðarmann ! IceCat

Re: Nöldur

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sæl, ég hef bara ekki komist í það að setja kettlingana inn en það verður vonandi í kvöld þegar litli veiki sonur minn er sofnaður :) IceCat

Re: Leiðindi í skátunum

í Skátar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hmmm… nú hef ég engar skýringar á því af hverju þú ert “skilinn útundan” í skátahreyfingunni. Ég er að verða þrítug og hef verið í skátunum í uppundir 20 ár og ég hef ekki orðið var við þetta sem þú ert að segja. Ég er samt ekki að véfengja orð þín. Hvernig er með aðra vini utan skátahreyfingarinnar, ertu sæmilega vinsæll og er ekkert að þar ? Hefur þú athuga hvort eitthvað sé í framkomu þinni sem “fælir” fólk frá eins og t.d. neikvæðni eða eitthvað slíkt ? IceCat
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok