Sælir/ar,

Um daginn átt ég leið fram hjá klósettinu(þar er einnig að finna sandkassa Snúðs) og þegar ég leit inn var Snúður búinn að kúka á gólfið!! Ojj bara Snúður, skamm skamm, Snúður litli skildi ekkert og hélt að þetta(kúkurinn) væri nýtt leikfang. Ég dreif mig í að þrífa þetta upp, setti þetta í pappír og sturtaði niður. Ég þreif gólfið með blautsápu og setti meir að segja smá spritt til þess að lyktin hyrfi. ´Nú var snúður farinn framm og þá kom ég auga á að hann var með kúk í rassinum, ég náði í pappír og reyndi að halda honum föstum til þessa að skeina hann:Þ
Hann var nú ekki alveg sáttur við það og vildi bara sleikja þetta upp sjálfur, en ég lét ekki segjast og þreif þetta samviskulega af. Síðan þurfti ég að endasendast um íbúðina til þess að geta þrifið á honum rassinn með blautri tusku, og að lokum tókst mér það með miklum erfiðis munum. Snúður var samt ekkert hræddur við vatnið hinns vegar gat ég ekki komið nálægt honum í nokkrar mín en það lagaðist mjög fljótt. Nú þarf ég að vakta hann til þess að hann kúki ekki aftur á gólfið:D

p.s snúður er rúmlega 4ra mánaða gamall :) Og myndir af honum eru í kisualbúminu.<br><br>”One ill turn deservers another . It is over. Embrace the power of the Ring…
or embrace your own destruction„
-Saruman