Mín reynsla af þessu er góð. Hún Matthildur mín sem er rúmlega 10 ára í dag fór fyrst út orðin 7 ára gömul. Hún fer aldrei langt og kemur alltaf þegar ég kalla. Svo verður þú að athuga umhverfið hjá þér, er umferðargata nálægt oþh. Spurning um að kaupa kattaól og byrja á því að fara með hann úti í ólinni til að kynna nágrennið fyrir honum og prófa svo að hleypa honum einum en fylgjast með honum á meðan. Gangi þér vel, IceCat