Ég skil vel að þér þyki þetta leiðinlegt en mér dettur reyndar eitt í hug. Veit um kött sem setti hökuna niður á bringu þegar hann var að veiða og því heyrðist ekki í bjöllunni. Spurning um að kaupa nokkrar bjöllur til að hafa á ólinni, voða lítið annað sem þú getur gert þar sem þetta er í eðli hans eins og þú veist. Kettir eru mjög mismunandi í veiðiskap, sumir veiða meira, aðrir minna. IceCat