Það er hræðilegt að vita af þessu, ég hef hugsað til hennar margoft á dag síðan ég las þetta á femin um daginn. Auðvitað óska þess allir að aumingja stúlkan geti bjargað sér út úr þessu, en það er ekki auðvelt. Það er afskaplega fjarlægur möguleiki, svo ekki sé meira sagt, fyrir þessa stúlku að fara í kvöldskóla. Hún á enga fjölskyldu sem getur passað fyrir hana, enga peninga til að eyða í skólann, enda borðar hún ekkert nema núðlusúpur, hrísgrjón og kartöflur. Þegar svona er ástatt, er eina...