ok! nú er þátturinn um Steingrím Njálsson, sönn íslensk sakamál og þetta er svo mikill viðbjóður. Af hverju er maðurinn ekki búinn að sitja inni ALLTAF og af hverju er ekki búið að gelda manninn? Hann er búinn að leggja líf SVO margra ungra drengja - fullorðinna manna sumra núna - í rúst! Hvað er málið! Öll þessi kynferðisbrot á litlum strákum.
Mér er ekki sama um litla stráka sem eru kannski einir úti að labba, meðan að þessi skepna er laus. Afsakið orðbragðið, mér finnst þetta svo hræðilegt!
Hvað finnst ykkur? af hverju fékk maðurinn ekki að sitja inni í a.m.k. 10 ár samfleitt? hann er alltaf úti, fékk kannski nokkra mánuði í einu!!
Þessi maður á ekkert líf í dag, það er ráðist á hann úti á götu o.s.frv. Og hann á það skilið!