Var í skólanum í dag þar sem ein kona, bekkjarsystir mín kom með 3ja ára dóttur sína. Ég tók eftir að þessi fjöruga litla dóttir hennar var alltaf að biðja um meira og meira tyggjó hjá mömmu sinni. Ég sagði:“Þú veist að það er ekki gott að kyngja tyggjóinu.” Þá segir hún soldið sem mér fannst svo fyndið:“Nei, ég kyngi því bara í klósettið”
Kannski finnst ykkur þetta ekkert spes en það var svo einlægt hvernig hún sagði þetta því einu sinni sagði mamma hennar okkur hvað hún hefði sagt þegar hún sá tunglið í fyrsta skiptið:“Mamma komdu út og sjáðu skrýtna skýið”.